The following articles were authored by nordnam

Málþing um stöðu ungs fólks

Staða ungs fólks á Norðurlöndum
Brottfall úr skóla – möguleikar á vinnumarkaði

Nordens Välfärdscenter NVC og Norræna félagið á Íslandi bjóða til málþings um stöðu ungs fólks á vinnumarkaði og brottfall úr skóla í Norræna húsinu fimmtudaginn 23. maí 2013 kl 09.00-11.00.
Meginþema málþingsins verður nýútkomin skýrsla “Unge på kanten” sem unnin var fyrir Norrænu ráðherranefndina. Bjørn Halvorsen verkefnastjóri skýrslunnar kynnir niðurstöður hennar ásamt Jenny Tägtström.
Terje Olsen verkefnastjóri Þekkingarbankans kynnir nýjan vef kunnskapsbanken.org sem fer í loftið 16. maí n.k. Kunnskapsbanken.org er upplýsingavefur um nám og atvinnumöguleika, rannsóknir og velheppnuð verkefni. Þessi hluti málþingsins fer fram á ensku.

Til að kynna stöðu mála á hér á landi og gera samanburð á stöðu Íslands og hinna Norðurlandanna verða pallborðsumræður með stuttum erindum þátttakenda:

• Gestur Guðmundsson prófessor við Háskóla Íslands
• Sigrún Harðardóttir framhaldsskólakennari og starfs- og námsráðgjafi við Menntaskólann á Egilsstöðum
• Þorbjörn Jensson forstöðumaður Fjölsmiðjunnar
• Kristjana Stella Blöndal lektor við Háskóla Íslands
• Tryggvi Haraldsson verkefnastjóri Atvinnutorgs í Reykjavík
• Kristín Ólafsdóttir framkvæmdastjóri Föreningarna Nordens Forbund

Þessi hluti málþingsins fer fram á íslensku.

Fundarstjóri er Þorlákur Helgason

Málþingið er öllum opið
Skráning fer fram á norden@norden.is

Frestun aðalfundar

Aðalfundi Norræna félagsins í Reykjavík sem vera átti þriðjudaginn 7. maí hefur verið frestað til miðvikudagsins 15. maí kl. 17.00.

Aðalfundurinn verður haldinn í húsnæði Norræna félagsins, Óðinsgötu 7.

Með kveðju

Stjórn Norræna félagsins í Reykjavík

Aðalfundarboð

Aðalfundur Norræna félagsins í Reykjavík verður haldinn þriðjudaginn 7. maí kl. 17:00 á skrifstofu Norræna félagsins, Óðinsgötu 7, Reykjavík.

Venjuleg aðalfundarstörf.

Stjórnin

Afsláttur af ferð til Riga

Afsláttur býðst af ferð til Riga í Lettlandi dagana 26.-29. október nk. Flogið er frá Keflavík og Akureyri.

Tilboðið hljóðar upp á 4000 kr. afslátt af skráðu verði og 15% afslátt af skoðunarferðum. Tilboðið gildir fyrir félagsmenn í Norræna félaginu og maka þeirra.

Frekari upplýsingar um ferðina er að finna hér: http://www.transatlantic.is/lettland

Þeir sem vilja nýta sér þessi tilboð geta haft samband við Omar Banine hjá Trans-Atlantic á netfangið omar@transatlantic.is eða í síma 5888900.

Frú Vigdís Finnbogadóttir hlýtur Peruna

Frú Vigdísi Finnbogadóttur var afhent Peran við hátíðlega athöfn í Norræna húsinu á degi Norðurlanda 23. mars sl.  Það er í fjórða skipti sem þessari heiðursviðurkenningu Norræna félagsins á Íslandi er úthlutað. Við sama tækifæri var henni afhent gullmerki Norræna félagsins.

Hér má sjá myndir frá athöfninni.

Myndir: Kristbjörg Erla Hreinsdóttir.

Ragnheiður H. Þórarinsdóttir formaður Norræna félagsins á Íslandi afhendir frú Vigdísi Finnbogadóttur Peruna, heiðursverðlaun Norræna félagsins.

Frú Vigdís með Peruna

 

Frú Vigdís Finnbogadóttir hefur veitt Perunni viðtöku

Allir Peruhafar

 

 

 

 

Peruhafar frá upphafi allir saman. Frá vinstri Unnar Stefánsson, frú Vigdís Finnbogadóttir, Anna Einarsdóttir, Þorvaldur S. Þorvaldsson.

Nordjobb vill ráða tómstundafulltrúa

Staða tómstundafulltrúa Nordjobb er laus frá maí til loka ágúst.

Hlutverk tómstundafulltrúa er að skipuleggja og framvæma dagskrá fyrir Nordjobbara sem vinna á Íslandi í sumar og vera þeim innan handar. Það eru norræn ungmenni á aldrinum 18-28 ára sem fengið hafa sumarvinnu gegnum Nordjobb verkefni Norræna félagsins.

Tómstundafulltrúi Nordjobb þarf að vera skipulagður og röggsamur, félagslyndur og skemmtilegur. Auk þess þarf hann að tala dönsku, norsku eða sænsku. Upplýsingar um Nordjobb má nálgast á www.nordjobb.org.

Frekari upplýsingar veitir Stefán Vilbergsson, verkefnisstjóri Nordjobb á Íslandi, á island@nordjobb.net eða í s. 8 999 210.

Sænskunámskeiði frestað um viku

UPPFÆRT: Sænskunámskeiðið fellur niður vegna ónógrar þátttöku. Stefnt er að því að halda sænskunámskeið í haust.

Sænskunámskeiði sem átti að hefjast 11. apríl hefur verið frestað um viku.

Sænska:
Kennari er Adolf Hólm Petersen.
Grunnnámskeið: fimmtudagar kl. 18:00-19:30, alls fimm skipti 18. apríl 2., 16., 23. og 30. maí 2013.

Staðsetning: Norræna félagið, Óðinsgötu 7, 101 Reykjavík.
Skráning á námskeiðin fer fram í síma 551-0165 og á netfanginu valdis@nordenis. Námskeiðin eru eingöngu ætluð félagsmönnum í Norræna félaginu sem greiða 6.500 krónur í þátttökugjald. Auðvelt er að gerast félagi í Norræna félaginu.

Félagsaðild í Norræna félaginu kostar 2.900 kr. á ári / 1.450 kr. fyrir 18-27 ára og 67 ára og eldri. Greiða þarf þátttökugjald áður en námskeið hefst. Námskeiðið fellur niður ef lágmarksþátttökufjöldi næst ekki.

Upplýsingafundur um flutning til Noregs

Vegna mikillar aðsóknar á upplýsingafund um flutning til Noregs í mars síðastliðnum standa Halló Norðurlönd og EURES fyrir viðbótarfundi um að flytja til Noregs. Fundirnir henta þeim sem hyggjast flytja vegna vinnu, náms eða annarra erindagjörða og eru ókeypis og öllum opnir. Farið verður yfir hagnýt atriði varðandi flutning og atvinnuleit auk þess sem fulltrúi frá Ríkisskattstjóra kynnir skattamál.

Noregsfundurinn verður haldinn mánudaginn 8. apríl  kl. 17:30 og tekur rúmlega tvo tíma.

Upplýsingafundurinn fer fram í húsnæði Vinnumálastofnunar, Kringlunni 1.

Skráning er nauðsynleg á netfanginu hallo@norden.is og í síma 511 1808.

Tungumálanámskeið

Í apríl og maí mun Norræna félagið bjóða upp á grunnnámskeið í sænsku og grunn- og framhaldsnámskeið í norsku. Á námskeiðunum verður lögð áhersla á orðaforða og hagnýta kunnáttu.

Norska:
Kennari er Hermann Bjarnason.
Grunnnámskeið: miðvikudagar kl. 17:30-19:00, alls fimm skipti 10., 17. og 24. apríl og 8. og 15. maí 2013.
Framhaldsnámskeið: fimmtudagar kl. 19:45-21:15, alls fimm skipti 11. og 18. apríl 2., 16. og 23. maí 2013.

Sænska:
Kennari er Adolf Hólm Petersen.
Grunnnámskeið: fimmtudagar kl. 18:00-19:30, alls fimm skipti 11. og 18. apríl 2., 16. og 23. maí 2013.

Staðsetning: Norræna félagið, Óðinsgötu 7, 101 Reykjavík.
Skráning á námskeiðin fer fram í síma 551-0165 og á netfanginu valdis@nordenis. Námskeiðin eru eingöngu ætluð félagsmönnum í Norræna félaginu sem greiða 6.500 krónur í þátttökugjald. Auðvelt er að gerast félagi í Norræna félaginu.

Félagsaðild í Norræna félaginu kostar 2.900 kr. á ári / 1.450 kr. fyrir 18-27 ára og 67 ára og eldri. Greiða þarf þátttökugjald áður en námskeið hefst. Námskeiðið fellur niður ef lágmarksþátttökufjöldi næst ekki.

Með kærri kveðju til Kulusuk

Laugardaginn 23. mars klukkan 14 verða haldnir stórtónleikar í Eldborg í Hörpu, þar sem margir þekktustu tónlistarmenn og hljómsveitir landsins stíga á svið í þágu íbúa Kulusuk á Grænlandi, en tónlistarhúsið í þorpinu brann til grunna í fárviðri á dögunum.

Ókeypis aðgangur er að tónleikunum, en þar verður safnað fjárframlögum og hljóðfærum, svo aftur megi óma tónlist í Kulusuk.

Meðal þeirra tónlistarmanna og hljómsveita sem koma fram í Eldborg á laugardaginn eru Agent Fresco, Digraneskórinn, DJ Margeir, Fóstbræður, Haffi Haff, Jakob Frímann Magnússon, KK, Morgan Kane, Pálmi Gunnarsson, Ojba Rasta, Sam Sam, Sísy Ey, Sykur, Unnur Eggertsdóttir og Þórunn Antonía. Heiðursgestir á tónleikunum eru grænlensku tónlistarmennirnir Anda Kuitse, Anton Sianiale og Efraim Ignatiessen sem koma hingað til lands frá Kulusuk.

KALAK, vinafélag Íslands og Grænlands, stendur að tónleikunum í Eldborg í samvinnu við fjölmarga velunnara Grænlands á Íslandi. Helstu bakhjarlar eru Flugfélag Íslands, Harpa tónlistarhús, Guide to Iceland, Skákakademían og Tónastöðin.

KALAK hefur opnað söfnunarreikning vegna brunans mikla í Kulusuk, sjá nánar á www.kalak.is