Archive for the Halló Norðurlönd Category

Upplýsingafundur um flutning til Noregs

Vegna mikillar aðsóknar á upplýsingafund um flutning til Noregs í mars síðastliðnum standa Halló Norðurlönd og EURES fyrir viðbótarfundi um að flytja til Noregs. Fundirnir henta þeim sem hyggjast flytja vegna vinnu, náms eða annarra erindagjörða og eru ókeypis og öllum opnir. Farið verður yfir hagnýt atriði varðandi flutning og atvinnuleit auk þess sem fulltrúi frá Ríkisskattstjóra kynnir skattamál.

Noregsfundurinn verður haldinn mánudaginn 8. apríl  kl. 17:30 og tekur rúmlega tvo tíma.

Upplýsingafundurinn fer fram í húsnæði Vinnumálastofnunar, Kringlunni 1.

Skráning er nauðsynleg á netfanginu hallo@norden.is og í síma 511 1808.

Ertu að flytja til Noregs, Danmerkur eða Svíþjóðar?

Halló Norðurlönd og EURES standa fyrir upplýsingafundum um að flytja til Noregs, Svíþjóðar og Danmerkur. Fundirnir eru ætlaðir öllum þeim sem hyggja á vinnu eða nám í þessum löndum og eru ókeypis og öllum opnir. Farið verður yfir hagnýt atriði varðandi flutning og atvinnuleit auk þess sem fulltrúi frá Ríkisskattstjóra kynnir skattamál.

- Mánudaginn 18. mars kl. 18:00: Að flytja til Noregs
- Miðvikudaginn 20. mars kl. 18:00: Að flytja Svíþjóðar
- Miðvikudaginn 20. mars kl. 20:30: Að flytja til Danmerkur

Námskeiðin fara fram í húsnæði Vinnumálastofnunar, Kringlunni 1. Skráning á netfanginu hallo@norden.is og í síma 511 1808.

Að bæta Nordjobb umsókn

Fyrirhugað er síðdegisnámskeið þar sem Nordjobb umsækjendum er leiðbeint gegnum umsóknina. Farið verður yfir hvernig gera má ferilskrá svo að hún skili sem bestum árangri og hvernig á að skrifa og fylgja eftir Nordjobb umsókn ásamt því
að bent verður á það sem þarf að hafa í huga þegar flutt er til nýs lands. Auk þess verður litið á lögmál vinnumarkaðarins og afstöðu vinnuveitenda þegar ráða á í störf.

Þátttaka er ókeypis. Mikilvægt er að skrá sig þar sem það er takmarkað húsrúm. Skráning fer fram á valdis@norden.is
Staður: Norræna félagið, Óðinsgötu 7, 101 Reykjavík
Stund: Miðvikudaginn 20. mars, kl. 16.15-17:30.
Skipuleggjendur: Nordjobb á Íslandi og Halló Norðurlönd

Kvikmyndasamkeppni Halló Norðurlanda

Vissir þú að Norðurlöndin eru einn stór vinnumarkaður? Að hægt er að stunda nám og sækja um vinnu í öðru norrænu ríki?

Þú getur gerst norrænn kvikmyndaleikstjóri
Segðu frá hreyfanleika á Norðurlöndum í stuttmynd og þú átt möguleika á því að vinna fyrstu verðlaun sem eru 3.000 evrur. Það er í lagi að taka myndina upp á símann eða með myndbandsvél – gæðin skipta ekki máli, það er hugmyndin sem við ætlum að verðlauna.

Svona á að gera:
Tilbúnum myndum þarf að hlaða upp á http://film.norden.org/ í síðasta lagi kl. 24.00 þann 19. október 2012. Á sömu síðu má lesa sér til um þær kröfur sem gerðar eru til myndanna. Tíu bestu myndirnar verða svo sýndar á kynningarbás Halló Norðurlanda á Norðurlandaráðsþinginu.

Flutningsnámskeið á Akureyri

Upplýsingafundur um flutning til hinna Norðurlandanna

Upplýsingaþjónusta Norrænu ráðherranefndarinnar, Halló Norðurlönd, vekur athygli á upplýsingafundi á Akureyri ætluðum fólki sem hyggur á
flutning til hinna Norðurlandanna. Fundurinn er haldinn í samvinnu við Eures, evrópska vinnumiðlun, og Norrænu upplýsingaskrifstofuna á Akureyri.

Á upplýsingafundinum verður farið yfir helstu atriði sem hafa þarf í huga við flutning til hinna Norðurlandanna. Fulltrúi frá upplýsingaþjónustu Norrænu ráðherranefndarinnar, Halló Norðurlönd, fer yfir hagnýt atriði á borð við húsnæðisleit, útvegun kennitölu og sjúkratryggingar og fulltrúi frá Eures veitir góð ráð varðandi atvinnuleit og atvinnuleysistryggingar. Þátttakendum gefst færi á að bera fram spurningar.

Tímasetning: Fimmtudagurinn 7. júní kl. 17:00-19:00.
Staðsetning: Funda- og veitingasalur á 4. hæð, Skipagötu 14, Akureyri.
Upplýsingafundurinn er ókeypis fyrir þátttakendur, öllum opinn og hentar jafnt þeim sem flytja vegna atvinnu, náms eða annarra erindagjörða.
Hafa ber í huga að nauðsynlegt er að skrá sig á námskeiðið fyrir 6. júní á netfanginu mariajons@akureyri.is eða á Norrænu upplýsingaskrifstofunni í síma 4627000.