Norræna félagið stendur fyrir fjölbreyttum uppákomum næstu daga í tilefni 90 ára afmælis félagsins í ár og höfuðborgamóts nú um helgina. Upplýsingar um dagskrá Höfuðborgamóts má finna undir gráa flipanum hér að ofan merktum Höfuðborgarmót.
Félagið stendur einnig fyrir tónlistar- og fjölskylduskemmtun á Óðinstorgi á Menningarnótt og sýningunni Norðurlöndin í dag í Ráðhúsi Reykjavíkur frá föstudegi til sunnudags.
Dagskrá á Óðinstorgi:
Fram kemur fjöldi flytjenda og er fólk á öllum aldri hvatt til að kíkja við á Óðinstorgi og njóta þess að upplifa þægilega og skemmtilega norræna stemningu. Ásamt tónlistaratriðum verður einnig boðið upp á fjölbreytta skemmtun fyrir börnin t.d. verður bílastæðunum breytt í krítarlistaverk, sápukúlur blásnar og útileikföng verða á staðnum. Útileiksvæðið verður opið frá kl. 14:00 – 17:00. Nágrannar okkar á veitingastaðnum Snaps og á kaffihúsinu C is for cookies verða með opið auk þess sem gestir og gangandi geta notið frábærra breytinga á torginu sem kemur til vegna verkefnisins Torg í biðstöðu.
14:00 Lagaleiðangur Ingibjargar Þorbergs: Magga Stína og Kvennakór
14:30 Hljómsveitin Mirra
15:10 Alan Jones
16:00 Hljómsveitin 1860
16:45 Hljómsveitin Spottarnir
17:30 Hljómsveitin Líparít
18:10 Hljómsveitin Robert the roommate
18:45 Tanya og Zumba Dívurnar frá Hress heilsurækt
19:05 Sindri Eldon og leiðirnar
19:45 Hljómsveitin Nóra
20.20 Hljómsveitin White Signal
21:00 Hljómsveitin Moses Hightower
Dagkránni lýkur um kl. 21:45
Dagskrá í Ráðhúsi Reykjavíkurborgar:
Í tilefni af 90 ára afmæli Norræna félgsins í ár er félagið vinaborg Menningarnætur í ár. Til að fagna þessu stendur félagið fyrir sýningu um Norðurlöndin í Ráðhúsi Reykjavíkur. Á sýningunni er leitast við að kynna Norðurlöndin í dag og stikla á stóru um helstu áfanga norræns samstarfs. Höfundur sýningar er hönnuðurinn Gulli Maggi. Sýningin verður opin föstudag, laugardag og sunnudag á opnunartíma Ráðhússins.
Viðburðir í Ráðhúsi Reykjavíkur:
14.30 Hljómsveitin Spottarnir leikur sænska tónlist.
15.30 Verðlaunaafhending Mannréttindaskrifstofu Reykjavíkur.
16.00 Jon Kjell og Rósa Jóhannesdóttir spila á norska harðangursfiðlu og rafhljóðfæri.
16.30 Hinn norski Jørn Lier Holst, höfundur bókarinnar Salamöndrugátan les upp úr bók sinni.
17:00 Hljómsveitin 1860 tekur lagið.
17:30 Höfundur Vetraropnunar, Norðmaðurinn Jørn Lier Holst, les upp úr bók sinni.
18.00 Sunna Pam (Olafson) Furstenau heldur fyrirlestur um Vestur-Íslendinga.
19.30 Hljómsveitin Líparít spilar.
20.00 Færeyingurinn Hanus G. Johansen spilar þjóðlagaskotna tónlist.
Við vonumst til að sjá sem flesta í Ráðhúsinu og á Óðinstorgi. Gleðilega Menningarnótt!