Archive for the Verkefni Category

Snorri West 2013

Norræna félagið og Þjóðræknisfélag Íslendinga býður upp á einstakt tækifæri fyrir unga Íslendinga á aldrinum 18-28 ára til að ferðast á Íslendingaslóðir í Kanada og Bandaríkjunum í fjórar vikur næsta sumar. Auk Manitoba verður farið til Alberta og Saskatchewan.

Umsóknarfrestur er til 1. mars 2013

Frekari upplýsingar fást hjá Ástu Sól á skrifstofu Norræna félagsins í síma 551 0165. Einnig á www.snorri.is / info@snorri.is

Café Norden verður haldið í Svíþjóð!

Café Norden er árlegur hittingur á vegum ungmennadeilda Norrænu félaganna. Upphaflega var hugmyndin að CN væri endurfundur fyrir Nordjobbara sumarsins. Í ár verður það haldið dagana 1.-4. nóvember í Uppsölum.

Þema ársins er vinnumarkaður og rætt verður um lausnir á atvinnuleysi meðal ungs fólk og möguleika á ungmennaskiptum.
En fyrst og fremst er þetta tækifæri fyrir þig að hitta vini og kynnast nýju fólki.

Þátttökukostnaður er 75 evrur og frekari upplýsingar er að fá hjá Norræna félaginu en einnig hér: CAFÉ NORDEN 2012

Eitt pláss laust í Snorra West

Snorri West verkefnið leitar að ungri manneskju á aldrinum 18-28 til að taka þátt í fjögurra vikna sumardagskrá frá 9. júlí – 9. ágúst þar sem einn þátttakandi var óvænt að detta út.

Snorri West er fjögurra vikna sumarævintýri fyrir unga Íslendinga á slóðum Vestur-Íslendinga í Kanada og Bandaríkjunum. Dagskráin er fjölbreytt og skemmtileg.

Þátttökugjald er 2,200 kanadadalir og hefur þegar verið niðurgreitt af aðilum vestra. Innifalið er flug, fæði og húsnæði, ferðir innanlands, menningardagskrá og ýmislegt fleira.

Áhugasömum er bent á að hafa samband við Ástu Sól Kristjánsdóttur verkefnisstjóra í síma 551-0165 eða 895-5055.

Að flytja til Danmerkur, Noregs eða Svíþjóðar

EURES og Halló Norðurlönd munu á næstu dögum standa fyrir upplýsingafundum um að flytja til hinna Norðurlandanna. Á fundunum gefur fulltrúi EURES góð ráð varðandi atvinnuleit og starfsmaður Halló Norðurlanda veitir hagnýtar upplýsingar um skráningu inn í landið, félagslegar bætur til barnafólks, húsnæðisleit og fleira. Fundirnir verða sem hér segir:

· Fimmtudaginn 29. mars kl. 18:00: Að flytja Danmerkur

· Fimmtudaginn 29. mars kl. 20:30: Að flytja til Noregs

· Fimmtudaginn 12. apríl kl. 18:00: Að flytja til Svíþjóðar

Upplýsingafundirnir, sem haldnir eru í húsnæði Norræna félagsins, Óðinsgötu 7 eru ókeypis og öllum opin og henta jafnt þeim sem hyggja á atvinnuleit eða stefna á nám á Norðurlöndum en einnig þeim sem flytja af öðrum ástæðum. Hafa ber í huga að fjöldi þátttakenda er takmarkaður og því er nauðsynlegt að skrá sig á upplýsingafundina. Skráning fer fram hjá Norræna félaginu í síma 5510165 og á netfanginu hallo@norden.is