Í janúar og febrúar mun Norræna félagið bjóða upp á grunnnámskeið í sænsku og
norsku, og framhaldsnámskeið í sænsku. Á námskeiðunum verður lögð áhersla á
orðaforða og hagnýta kunnáttu.
Sænska:
Kennari er Adolf Hólm Petersen.
Grunnnámskeið: þriðjudagar kl. 17:30-19:00, alls fimm skipti frá 29. janúar -
26. febrúar 2013.
Framhaldsnámskeið: fimmtudagar kl. 17:30-19:00, alls fimm skipti frá 31. janúar
- 28. febrúar 2013
Norska:
Kennari er Hermann Bjarnason.
Grunnámskeið: miðvikudagar kl. 17:30-19:00, alls fimm skipti frá 30. janúar til
27. febrúar 2013.
Framhaldsnámskeið verður auglýst síðar, endilega hafið samband við Valdísi Ösp (valdis@norden.is) til að fá frekari upplýsingar.
Staðsetning: Norræna félagið, Óðinsgötu 7, 101 Reykjavík.
Skráning á námskeiðin fer fram í síma 551-0165 og á netfanginu valdis@norden.is. Námskeiðin eru eingöngu ætluð félagsmönnum í Norræna félaginu sem greiða 6.500 krónur í þátttökugjald. Þátttökugjöld eru greidd gegnum heimabanka. Námskeið falla niður ef lágmarksþátttökufjöldi næst ekki.