Norræna félagið á Íslandi leit dagsins ljós árið 1922 og er því 90 ára á árinu 2012. Haldið verður upp á stórafmælið með veglegum hætti sem sæmir öldnum unglingi.
Haldin verður fyrirlestrarröð í samvinnu við Þjóðminjasafn Íslands sem spannar allt árið og nefnist Hinar ýmsu hliðar norræns samstarfs. Auk þess verður höfuðborgarmót í Reykjavík í ágúst. Hægt er að skrá sig á það hér.
Dagskrá
25. janúar
Fyrirlestur um sögu Norræna félagsins og hlutverk þess.
Ragnheiður Helga Þórarinsdóttir, formaður Norræna félagsins
Staður: Þjóðminjasafn Íslands
Tími: 12-13
22. febrúar
Kynning á norrænu netorðabókinni ÍSLEX.
Halldóra Jónsdóttir verkefnastjóri og Þórdís Úlfarsdóttir ritstjóri
Staður: Þjóðminjasafn Íslands
Tími: 12-13
22. mars
Málþing um Helsinkisáttmálann og norrænt samstarf (á skandinavísku)
Anders Ljunggren sendiherra Svíþjóðar
Tími: 12-13
Staður: Þjóðminjasafn Íslands
23. mars
Móttaka á Degi Norðurlanda í samstarfi við Norræna húsið
Staður: Norræna húsið
Tími: 17.30 – 19
25. apríl
Fyrirlestur um reykvísk götunöfn úr Íslendingasögunum
Guðjón Friðriksson sagnfræðingur
Staður: Þjóðminjasafn Íslands
Tími: 12-13
23. maí
Fyrirlestur um norræn tungumál
Bogi Ágústsson, formaður Norræna félagsins í Reykjavík
Staður: Þjóðminjasafn Íslands
Tími: 12-13
16. – 19. ágúst
Höfuðborgarmót og afmælishátíð Norræna félagsins. Hægt er að skrá sig hér.
17. ágúst
Málþing í Öskju
Tími: 9:30-12:30
26. sept.
Út og suður um Norðurlönd
Haraldur Ólafsson prófessor emeritus, fyrrverandi alþingismaður og formaður Norræna félagsins á Íslandi fjallar vítt og breitt um kynni sín af Norðurlöndunum.
Staður: Þjóðminjasafn Íslands
Tími: 12-13
29. sept.
Stofndagur Norræna félagsins 1922
24. okt.
Hver drap Kamban?
Sveinn Einarsson, fv. leikhússtjóri
Staður: Þjóðminjasafn Íslands
Tími: 12-13
28. nóv.
Safnastarf á Íslandi í Norrænu samhengi
Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður
Staður: Þjóðminjasafn Íslands
Tími: 12-13
16. jan. 2013
Fyrirlestur um norræn áhrif í íslenskri byggingarlist
Hjörleifur Stefánsson arkitekt
Staður: Þjóðminjasafn Íslands
Tími: 12-13