Verkefni

Norræna félagið rækir ýmis verkefni.

Nordjobb miðlar sumarvinnu, húsnæði og tómstundadagskrá á hinum Norðurlöndunum til ungmenna á aldrinum 18-28 ára. www.nordjobb.net

Halló Norðurlönd veitir hagnýtar upplýsingar um flutning milli Norðurlandanna.www.hallonorden.org

Snorraverkefnin gefa Vestur-Íslendingum kost á að grafa upp rætur sínar á Íslandi.www.snorri.is

Norræna bókasafnavikan býður upp á upplestur og aðra bókmenntatengda dagskrá á bókasöfnum og stofnunum. www.bibliotek.org

Norðurlöndin í bíó er útgáfa norrænna stuttmynda á mynddiskum sem ætlaðar eru til kennslu. www.nordenibio.org

Norræna upplýsingaskrifstofan á Akureyri veitir upplýsingar um norrænt samstarf og stuðlar að samvinnu þeirra sem vinna að norrænum verkefnum.