Nordklúbburinn

Nordklúbburinn er ungmennadeild Norræna félagsins á Íslandi. Í Nordklúbbnum eru allir félagsmenn Norræna félagsins á aldrinum 15-30 ára, óháð búsetu og aðild að öðrum félagsdeildum. Starfsemin fer að mestu fram í Reykjavík.

Meðal þess sem gert hefur verið eru bíókvöld, matarkvöld, fjallgöngur, kaffihúsafundir og spilakvöld.

Nordklúbburinn er aðili að Sambandi ungmennadeilda Norrænu félaganna, FNUF.

Nordklúbburinn heldur úti eigin heimasíðu (http://nordklubbur.blogspot.com) og Facebook síðu (https://www.facebook.com/nordklubbur?ref=ts). Formaður klúbbsins er Íris Dröfn Brjánsdóttir.