Peran afhent á degi Norðurlanda

Ertu að flytja til Noregs, Danmerkur eða Svíþjóðar?

Halló Norðurlönd og EURES standa fyrir upplýsingafundum um að flytja til Noregs, Svíþjóðar og Danmerkur. Fundirnir eru ætlaðir öllum þeim sem hyggja á vinnu eða nám í þessum löndum og eru ókeypis og öllum opnir. Farið verður yfir hagnýt atriði varðandi flutning og atvinnuleit auk þess sem fulltrúi frá Ríkisskattstjóra kynnir skattamál.

- Mánudaginn 18. mars kl. 18:00: Að flytja til Noregs
- Miðvikudaginn 20. mars kl. 18:00: Að flytja Svíþjóðar
- Miðvikudaginn 20. mars kl. 20:30: Að flytja til Danmerkur

Námskeiðin fara fram í húsnæði Vinnumálastofnunar, Kringlunni 1. Skráning á netfanginu hallo@norden.is og í síma 511 1808.

Að bæta Nordjobb umsókn

Fyrirhugað er síðdegisnámskeið þar sem Nordjobb umsækjendum er leiðbeint gegnum umsóknina. Farið verður yfir hvernig gera má ferilskrá svo að hún skili sem bestum árangri og hvernig á að skrifa og fylgja eftir Nordjobb umsókn ásamt því
að bent verður á það sem þarf að hafa í huga þegar flutt er til nýs lands. Auk þess verður litið á lögmál vinnumarkaðarins og afstöðu vinnuveitenda þegar ráða á í störf.

Þátttaka er ókeypis. Mikilvægt er að skrá sig þar sem það er takmarkað húsrúm. Skráning fer fram á valdis@norden.is
Staður: Norræna félagið, Óðinsgötu 7, 101 Reykjavík
Stund: Miðvikudaginn 20. mars, kl. 16.15-17:30.
Skipuleggjendur: Nordjobb á Íslandi og Halló Norðurlönd

Með lest um danska sögustaði

Norræni járnbrautaklúbburinn sem starfræktur er í Danmörku stendur í sumar fyrir ferð eftir vesturströnd Jótlands með lest sem áður var í notkun í Noregi. Ferðalagið hefst í Kaupmannahöfn þann 11. ágúst og lýkur 17. ágúst á sama stað. Á þessum dögum verða heimsóttir margir sögufrægir og áhugaverðir staðir, t.d. Jótlandssteinarnir, Vedersø Præstegård og Hanstholmvirkið. Dagskrána má nálgast á heimasíðu klúbbsins, en skráning fer fram á netfanginu mail@nojk.dk til 1. maí nk.

Tungumálanámskeið vorsins

Í janúar og febrúar mun Norræna félagið bjóða upp á grunnnámskeið í sænsku og
norsku, og framhaldsnámskeið í sænsku. Á námskeiðunum verður lögð áhersla á
orðaforða og hagnýta kunnáttu.

Sænska:
Kennari er Adolf Hólm Petersen.
Grunnnámskeið: þriðjudagar kl. 17:30-19:00, alls fimm skipti frá 29. janúar -
26. febrúar 2013.
Framhaldsnámskeið: fimmtudagar kl. 17:30-19:00, alls fimm skipti frá 31. janúar
- 28. febrúar 2013

Norska:
Kennari er Hermann Bjarnason.
Grunnámskeið: miðvikudagar kl. 17:30-19:00, alls fimm skipti frá 30. janúar til
27. febrúar 2013.
Framhaldsnámskeið verður auglýst síðar, endilega hafið samband við Valdísi Ösp (valdis@norden.is) til að fá frekari upplýsingar.

Staðsetning: Norræna félagið, Óðinsgötu 7, 101 Reykjavík.

Skráning á námskeiðin fer fram í síma 551-0165 og á netfanginu valdis@norden.is. Námskeiðin eru eingöngu ætluð félagsmönnum í Norræna félaginu sem greiða 6.500 krónur í þátttökugjald. Þátttökugjöld eru greidd gegnum heimabanka. Námskeið falla niður ef lágmarksþátttökufjöldi næst ekki.

Dönskuklúbbur Norræna félagsins

Dönskuklúbbur Norræna félagsins er ætlaður börnum á aldrinum 6 – 10 ára sem vilja viðhalda kunnáttu sinni í danskri tungu. Boðið verður upp á þjálfun í tungumálinu gegnum leiki, þrautir, lestur og spjall auk þess sem áhersla verður lögð á að kynna danskar barnabækur og aðra barnamenningu. Leiðbeinendur í dönskuklúbbnum verða nemendur í dönsku frá Háskóla Íslands.

Dönskuklúbburinn hittist á laugardögum kl. 11:00-12:30 frá 26. janúar í húsnæði Norræna félagsins að Óðinsgötu 7 í Reykjavík. Einhverja laugardaga í vetur mun dönskuklúbburinn heimsækja bókasafn Norræna hússins og er því mikilvægt að hafa skráð skráð barnið/börnin svo hægt sé að senda út skilaboð um breytta staðsetningu.

Dönskuklúbburinn er ætlaður börnum sem búið hafa í Danmörku eða eiga danska fjölskyldu. Nauðsynlegt er að skrá sig í klúbbinn! Klúbburinn er ætlaður börnum félagsmanna og er þeim að kostnaðarlausu. ATH! Auðvelt er að gerast félagi í Norræna félaginu. Félagsaðild kostar aðeins 2.900 kr. á ári / 1.450 kr. fyrir 18-27 ára og 67 ára og eldri. Skráning fer fram í síma 551-0165 eða á netfanginu valdis@norden.is.

Snorri West 2013

Norræna félagið og Þjóðræknisfélag Íslendinga býður upp á einstakt tækifæri fyrir unga Íslendinga á aldrinum 18-28 ára til að ferðast á Íslendingaslóðir í Kanada og Bandaríkjunum í fjórar vikur næsta sumar. Auk Manitoba verður farið til Alberta og Saskatchewan.

Umsóknarfrestur er til 1. mars 2013

Frekari upplýsingar fást hjá Ástu Sól á skrifstofu Norræna félagsins í síma 551 0165. Einnig á www.snorri.is / info@snorri.is

Norræn áhrif í íslenskri byggingarlist

Hjörleifur Stefánsson arkitekt heldur erindið  ,,Norræn áhrif í íslenskri byggingarlist á fyrri öldum” í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns Íslands miðvikudaginn 16. janúar, kl. 12.05. Hér er eftir miklu að slægjast fyrir áhugafólk um íslenska byggingarlistasögu enda er Hjörleifur þekktur fyrir rannsóknir sínar og skrif á því sviði.

Erindið er hluti af fyrirlestrarröð sem Norræna félagið heldur í samvinnu við Þjóðminjasafn Íslands sem spannar allt árið og nefnist Hinar ýmsu hliðar norræns samstarfs.

Norræna félagið á Íslandi leit dagsins ljós árið 1922 og var því 90 ára á árinu 2012. Fyrirlestarröðin er hluti af afmælisdagskrá félagsins.

Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.

Sænsk-íslenskir styrkir

Umsóknarfrestur um styrki frá Sænsk-íslenska samstarfssjóðnum rennur út 1. febrúar nk. Póstsstimpill gildir. Þeir sem hyggja á sænskt samstarf á komandi mánuðum eru hvattir til að búa sig nú þegar undir umsóknarskil. Frekari upplýsingar um sjóðinn má finna á www.nordiskafonder.se.

Umsóknartímabil Nordjobb hafið

Hægt er að sækja um Nordjobb frá og með deginum í dag.

Nordjobb miðlar sumarvinnu, húsnæði og tómstundadagskrá á Norðurlöndunum til ungmenna á aldrinum 18-28 ára.

Sótt er um á heimasíðunni www.nordjobb.org