Rithöfundurinn Guðmundur Kamban var skotinn til bana af svokölluðum frelsisliðum eftir að Danir voru lausir undan oki Þjóðverja í lok seinni heimstyrjaldarinnar. Hann var talinn hliðhollur Þjóðverjum og hefur það loðað við minningu hans síðan. Verk Guðmundar Kamban hafa fallið í nokkra gleymsku þó hann sé einn af fjórum íslenskum rithöfundum sem orðaðir hafa verið við Nóbelsverðlaunin í bókmenntum í fullri alvöru.
Sveinn Einarsson, rithöfundur og f.v. leikhússtjóri, hefur í nokkur ár verið að safna efni í bók um Guðmund Kamban. Nú nálgast útgáfu og ætlar hann að flytja fyrirlestur um efnið í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns Íslands miðvikudaginn 24. október, kl. 12.05.
Höfundur lýsir í bókinni hversu mikil samsemd er með persónum Kambans og hans eigin örlögum, bæði í leikritunum og skáldsögunum og dregur fram margt sem ekki hefur áður verið þekkt, meðal annars lofsamleg viðbrögð við skáldsögum hans í Bretlandi og Bandaríkjunum. Afstaða hans til Þjóðverja á stríðsárunum reynist einnig önnur og margbrotnari en sú einhliða mynd sem hingað til hefur verið brugðið upp.
Erindið er hluti af fyrirlestrarröð sem Norræna félagið heldur í samvinnu við Þjóðminjasafn Íslands sem spannar allt árið og nefnist Hinar ýmsu hliðar norræns samstarfs.
Norræna félagið á Íslandi leit dagsins ljós árið 1922 og er því 90 ára á árinu 2012. Fyrirlestarröðin er hluti af afmælisdagskrá félagsins.
Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.