Posts tagged bókmenntir

Margbreytileiki á Norrænu bókasafnavikunni

Norræna bókasafnavikan verður haldin dagana 12.-18. nóvember. Ríflega 100 íslensk almennings- og skólabókasöfn auk annarra stofnana og félagasamtaka eru skráð til þátttöku. Allar líkur eru á að þér muni bjóðast góð dagskrá í næstu viku á bókasafni í nánasta umhverfi.

Þema ársins er Margbreytileiki á Norðurlöndunum. Upplestrartextar ársins eru Flóttamaðurinn á hindberjabátnum eftir Miika Nousiainen, sjálfsævisagan Ég er Zlatan Ibrahimovic og Lilli klifurmús og hin dýrin í Hálsaskógi eftir Thorbjørn Egner.

Norræna félagið leggur sérstaka áherslu á ævisögu Zlatan Ibrahimovic í ár því við viljum stuðla að auknum lestri unglingspilta. Við skipuleggjum dagskrá í Norræna húsinu í samstarfi við bókasafnið.

Lesið meira um Norrænu bókasafnavikuna á heimasíðu verkefnisins.

Hver drap Kamban?

Rithöfundurinn Guðmundur Kamban var skotinn til bana af svokölluðum frelsisliðum eftir að Danir voru lausir undan oki Þjóðverja í lok seinni heimstyrjaldarinnar. Hann var talinn hliðhollur Þjóðverjum og hefur það loðað við minningu hans síðan. Verk Guðmundar Kamban hafa fallið í nokkra gleymsku þó hann sé einn af fjórum íslenskum rithöfundum sem orðaðir hafa verið við Nóbelsverðlaunin í bókmenntum í fullri alvöru.

Sveinn Einarsson, rithöfundur og f.v. leikhússtjóri, hefur í nokkur ár verið að safna efni í bók um Guðmund Kamban. Nú nálgast útgáfu og ætlar hann að flytja fyrirlestur um efnið í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns Íslands miðvikudaginn 24. október, kl. 12.05.

Höfundur lýsir í bókinni hversu mikil samsemd er með persónum Kambans og hans eigin örlögum, bæði í leikritunum og skáldsögunum og dregur fram margt sem ekki hefur áður verið þekkt, meðal annars lofsamleg viðbrögð við skáldsögum hans í Bretlandi og Bandaríkjunum. Afstaða hans til Þjóðverja á stríðsárunum reynist einnig önnur og margbrotnari en sú einhliða mynd sem hingað til hefur verið brugðið upp.

Erindið er hluti af fyrirlestrarröð sem Norræna félagið heldur í samvinnu við Þjóðminjasafn Íslands sem spannar allt árið og nefnist Hinar ýmsu hliðar norræns samstarfs.

Norræna félagið á Íslandi leit dagsins ljós árið 1922 og er því 90 ára á árinu 2012. Fyrirlestarröðin er hluti af afmælisdagskrá félagsins.

Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.

Svo heitt varstu elskaður útgáfuhóf