Posts tagged börn

Dönskuklúbbur Norræna félagsins

Dönskuklúbbur Norræna félagsins er ætlaður börnum á aldrinum 6 – 10 ára sem vilja viðhalda kunnáttu sinni í danskri tungu. Boðið verður upp á þjálfun í tungumálinu gegnum leiki, þrautir, lestur og spjall auk þess sem áhersla verður lögð á að kynna danskar barnabækur og aðra barnamenningu. Leiðbeinendur í dönskuklúbbnum verða nemendur í dönsku frá Háskóla Íslands.

Dönskuklúbburinn hittist á laugardögum kl. 11:00-12:30 frá 26. janúar í húsnæði Norræna félagsins að Óðinsgötu 7 í Reykjavík. Einhverja laugardaga í vetur mun dönskuklúbburinn heimsækja bókasafn Norræna hússins og er því mikilvægt að hafa skráð skráð barnið/börnin svo hægt sé að senda út skilaboð um breytta staðsetningu.

Dönskuklúbburinn er ætlaður börnum sem búið hafa í Danmörku eða eiga danska fjölskyldu. Nauðsynlegt er að skrá sig í klúbbinn! Klúbburinn er ætlaður börnum félagsmanna og er þeim að kostnaðarlausu. ATH! Auðvelt er að gerast félagi í Norræna félaginu. Félagsaðild kostar aðeins 2.900 kr. á ári / 1.450 kr. fyrir 18-27 ára og 67 ára og eldri. Skráning fer fram í síma 551-0165 eða á netfanginu valdis@norden.is.

Dönskuklúbbur fer af stað

Dönskuklúbbur Norræna félagsins er aftur að fara af stað.

Laugardaginn 24. nóvember kl. 15-17 ætlum við að bjóða foreldrum og börnum að koma saman á Óðinsgötu 7 og skapa létta, danska stemningu með því að syngja saman og föndra. Leiðbeinendur klúbbsins að þessu sinni eru kennarar og nemendur í dönsku við Háskóla Íslands.

Dönskuklúbburinn er ætlaður börnum sem búið hafa í Danmörku og/eða eiga danskt/a foreldri/a.

Klúbburinn verður einnig í boði 1., 8. og 15. desember (tímasetning verður send út síðar).

Nauðsynlegt er að skrá sig í klúbbinn! Klúbburinn er ætlaður börnum félagsmanna og er þeim að kostnaðarlausu. Skráning í klúbbinn fer fram hjá Norræna félaginu á netfanginu valdis@norden.is. Einnig er hægt að hringja í síma 551-0165 til að skrá sig.

Við skráningu þarf að koma fram: Nafn barns og fæðingadagur, nafn foreldris og kennitala, heimilisfang, símanúmer og netfang.

ATH! Auðvelt er að gerast félagi í Norræna félaginu. Félagsaðild kostar aðeins 2.900 kr. á ári/1.450 kr. fyrir 18-27 ára og 67 ára og eldri.

Margbreytileiki á Norrænu bókasafnavikunni

Norræna bókasafnavikan verður haldin dagana 12.-18. nóvember. Ríflega 100 íslensk almennings- og skólabókasöfn auk annarra stofnana og félagasamtaka eru skráð til þátttöku. Allar líkur eru á að þér muni bjóðast góð dagskrá í næstu viku á bókasafni í nánasta umhverfi.

Þema ársins er Margbreytileiki á Norðurlöndunum. Upplestrartextar ársins eru Flóttamaðurinn á hindberjabátnum eftir Miika Nousiainen, sjálfsævisagan Ég er Zlatan Ibrahimovic og Lilli klifurmús og hin dýrin í Hálsaskógi eftir Thorbjørn Egner.

Norræna félagið leggur sérstaka áherslu á ævisögu Zlatan Ibrahimovic í ár því við viljum stuðla að auknum lestri unglingspilta. Við skipuleggjum dagskrá í Norræna húsinu í samstarfi við bókasafnið.

Lesið meira um Norrænu bókasafnavikuna á heimasíðu verkefnisins.

Dönskuklúbbur fyrir börn

Dönskuklúbbur Norræna félagsins er ætlaður börnum á aldrinum 6 – 10 ára sem vilja viðhalda kunnáttu sinni í danskri tungu. Boðið verður upp á þjálfun í tungumálinu gegnum leiki, þrautir, lestur og spjall auk þess sem áhersla verður lögð á að kynna danskar barnabækur og aðra barnamenningu. Leiðbeinandi í dönskuklúbbnum er Guðbjörg Friðriksdóttir sem er nýflutt til landsins eftir að hafa búið í Danmörku um árabil.

Dönskuklúbburinn hittist á laugardögum kl. 11:00-12:30 frá 21. apríl til 19. maí í Norræna félaginu að Óðinsgötu 7 í Reykjavík.

Dönskuklúbburinn er ætlaður börnum sem búið hafa í Danmörku eða eiga danska fjölskyldu. Nauðsynlegt er að skrá sig í klúbbinn! Klúbburinn er ætlaður börnum félagsmanna og er þeim að kostnaðarlausu. ATH! Auðvelt er að gerast félagi í Norræna félaginu. Félagsaðild kostar aðeins 2.900 kr. á ári / 1.450 kr. fyrir 18-27 ára og 67 ára og eldri.