Posts tagged dagur norðurlanda

Frú Vigdís Finnbogadóttir hlýtur Peruna

Frú Vigdísi Finnbogadóttur var afhent Peran við hátíðlega athöfn í Norræna húsinu á degi Norðurlanda 23. mars sl.  Það er í fjórða skipti sem þessari heiðursviðurkenningu Norræna félagsins á Íslandi er úthlutað. Við sama tækifæri var henni afhent gullmerki Norræna félagsins.

Hér má sjá myndir frá athöfninni.

Myndir: Kristbjörg Erla Hreinsdóttir.

Ragnheiður H. Þórarinsdóttir formaður Norræna félagsins á Íslandi afhendir frú Vigdísi Finnbogadóttur Peruna, heiðursverðlaun Norræna félagsins.

Frú Vigdís með Peruna

 

Frú Vigdís Finnbogadóttir hefur veitt Perunni viðtöku

Allir Peruhafar

 

 

 

 

Peruhafar frá upphafi allir saman. Frá vinstri Unnar Stefánsson, frú Vigdís Finnbogadóttir, Anna Einarsdóttir, Þorvaldur S. Þorvaldsson.

Peran afhent á degi Norðurlanda

Þorvaldur S. handhafi Perunnar 2012

Þorvaldi S. Þorvaldssyni var afhent Peran við hátíðlega athöfn á degi Norðurlanda í Norræna húsinu þann 23. mars sl.

Peran er viðurkenning Norræna félagsins á Íslandi og er afhent þeim sem þykja hafa veitt norrænni samvinnu mikið brautargengi.

Þorvaldur S. Þorvaldsson arkitekt er fv. forstöðumaður borgarskipulags Reykjavíkurborgar. Hann hefur verið stjórnarmaður í Norræna félaginu um margra ára skeið. Hann er fyrrverandi varaformaður Norræna félagsins á Íslandi og var til margra ára formaður Reykjavíkurdeildar. Hann stýrir nú afmælishátíðarnefnd Norræna félagsins.