Posts tagged enska

Fyrirlestur um norræn tungumál

Bogi Ágústsson, fréttamaður og formaður Norræna félagsins í Reykjavík, flytur fyrirlestur í Þjóðminjasafni Íslands miðvikudaginn 23. maí kl. 12:05 og fjallar um stöðu norrænna tungumála í norrænu samstarfi. Fyrirlesturinn er byggður á pistlaröð í fréttaskýringaþættinum Speglinum í Ríkisútvarpinu í síðasta mánuði.

Fyrirlesturinn er hluti af fyrirlestrarröð sem Norræna félagið heldur í samvinnu við Þjóðminjasafn Íslands sem spannar allt árið og nefnist Hinar ýmsu hliðar norræns samstarfs.

Norræna félagið á Íslandi leit dagsins ljós árið 1922 og er því 90 ára á árinu 2012. Fyrirlestarröðin er hluti af afmælisdagskrá félagsins.

Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.

 

Pistlar um norræn tungumál

Bogi Ágústsson fréttamaður fjallaði nýlega um stöðu norrænna tungumála í norrænu samstarfi í fimm pistlum í Speglinum í Ríkisútvarpinu. Mörgum virðist sem þekkingu Norðurlandabúa á tungumálum nágrannaþjóðanna hafi hrakað. Bogi kannaði þetta í pistlaröðinni sem og raunverulega notkun norrænu tungumálanna og hvort enska sæki á í norrænu samstarfi.

Fyrsti pistillinn fjallar að mestu leyti um stöðu sænskunnar í Finnlandi. Líkt og dönskukunnátta virðist á undanhaldi Íslandi er sænskan á undanhaldi í Finnlandi. Og líkt og yfirvöld menntamála á Íslandi ákváðu að enska skyldi vera fyrsta erlenda tungumál í stað dönsku hafa Finnar dregið úr vægi sænskunnar í skólum. Hér má hlusta á pistilinn: Norræn tungumál 1

Annar pistillinn er með nokkur dæmi um ágengni ensku í norrænu samstarfi, en fjallar að mestu um hvort Danir, Norðmenn og Svíar skilji tungumál hinna þjóðanna, en er það svo í raun? Hér má hlusta á pistilinn: Norræn tungumál 2

Í þriðja pistlinum er rætt við Brynju Stefánsdóttur, cand mag í dönsku. Hún gerði samanburðarrannsókn á notkun Íslendinga á skandinavískum tungumálum í norrænu samstarfi. Niðurstaða hennar er að notkunin sé ekki á undanhald þó að enska sé mikið notuð, einkum í viðskiptalífinu. Hér má hlusta á pistilinn: Norræn tungumál 3

Fjórði pistillinn fjallar um forn, útdauð norræn tungumál og þar er aðalviðmælandi Aðalsteinn Davíðsson, fyrrverandi málfarsráðunautur Ríkisútvarpsins. Hér má hlusta á pistilinn: Norræn tungumál 4

Í fimmta pistlinum er rætt við Jørn Lund, sem er er forstöðumaður Det danske sprog og literaturselskab og fyrrverandi kennari og prófessor í dönsku við Hafnarháskóla og Kennaraháskóla Danmerkur. Hann telur að veruleg hætta stafi af ensku og markvissra aðgerða sé þörf til að verjast ásókn ensku. Hér má hlusta á pistilinn: Norræn tungumál 5