Posts tagged færeyjar

Sif til Færeyja

Sif Gunnarsdóttir forstöðumaður Höfuðborgarstofu hefur verið ráðin forstjóri Norðurlandahússins í Færeyjum. Hún hefur þar störf 15. janúar nk. Við óskum henni velfarnaðar í nýju starfi.

Á nýjum slóðum

Norræna félagið tekur þátt í sýningu Norræna hússins Nýjar slóðir um helgina.
Hægt er að heimsækja félagið í gámi í Hljómskálagarðinum milli kl. 12 og 17 á morgun laugardag og á sunnudag.
Verið velkomin!!

Nýja Slóðir í Reykjavík 7.-9. september 2012
Færeyjar, Grænland og Ísland bjóða heim og leiða þátttakendur um dýrðarheima eyjanna í norðri. Nánari upplýsingar um listamenn og viðburði er að finna á Facebook og heimasíðu Norræna hússins