Vegna mikillar aðsóknar á upplýsingafund um flutning til Noregs í mars síðastliðnum standa Halló Norðurlönd og EURES fyrir viðbótarfundi um að flytja til Noregs. Fundirnir henta þeim sem hyggjast flytja vegna vinnu, náms eða annarra erindagjörða og eru ókeypis og öllum opnir. Farið verður yfir hagnýt atriði varðandi flutning og atvinnuleit auk þess sem fulltrúi frá Ríkisskattstjóra kynnir skattamál.
Noregsfundurinn verður haldinn mánudaginn 8. apríl kl. 17:30 og tekur rúmlega tvo tíma.
Upplýsingafundurinn fer fram í húsnæði Vinnumálastofnunar, Kringlunni 1.
Skráning er nauðsynleg á netfanginu hallo@norden.is og í síma 511 1808.

