Posts tagged grænland

Með kærri kveðju til Kulusuk

Laugardaginn 23. mars klukkan 14 verða haldnir stórtónleikar í Eldborg í Hörpu, þar sem margir þekktustu tónlistarmenn og hljómsveitir landsins stíga á svið í þágu íbúa Kulusuk á Grænlandi, en tónlistarhúsið í þorpinu brann til grunna í fárviðri á dögunum.

Ókeypis aðgangur er að tónleikunum, en þar verður safnað fjárframlögum og hljóðfærum, svo aftur megi óma tónlist í Kulusuk.

Meðal þeirra tónlistarmanna og hljómsveita sem koma fram í Eldborg á laugardaginn eru Agent Fresco, Digraneskórinn, DJ Margeir, Fóstbræður, Haffi Haff, Jakob Frímann Magnússon, KK, Morgan Kane, Pálmi Gunnarsson, Ojba Rasta, Sam Sam, Sísy Ey, Sykur, Unnur Eggertsdóttir og Þórunn Antonía. Heiðursgestir á tónleikunum eru grænlensku tónlistarmennirnir Anda Kuitse, Anton Sianiale og Efraim Ignatiessen sem koma hingað til lands frá Kulusuk.

KALAK, vinafélag Íslands og Grænlands, stendur að tónleikunum í Eldborg í samvinnu við fjölmarga velunnara Grænlands á Íslandi. Helstu bakhjarlar eru Flugfélag Íslands, Harpa tónlistarhús, Guide to Iceland, Skákakademían og Tónastöðin.

KALAK hefur opnað söfnunarreikning vegna brunans mikla í Kulusuk, sjá nánar á www.kalak.is

Á nýjum slóðum

Norræna félagið tekur þátt í sýningu Norræna hússins Nýjar slóðir um helgina.
Hægt er að heimsækja félagið í gámi í Hljómskálagarðinum milli kl. 12 og 17 á morgun laugardag og á sunnudag.
Verið velkomin!!

Nýja Slóðir í Reykjavík 7.-9. september 2012
Færeyjar, Grænland og Ísland bjóða heim og leiða þátttakendur um dýrðarheima eyjanna í norðri. Nánari upplýsingar um listamenn og viðburði er að finna á Facebook og heimasíðu Norræna hússins