Norræna bókasafnavikan er stærsta menningardagskrá á Norðurlöndum. Í heila viku er boðið upp á upplestra, sýningar, umræður og aðra menningaratburði á þúsundum bókasafna og annarra samkomustaða. Í ár er hún haldin dagana 14.-20. nóvember.
Þema ársins er ,,Norrænn húmor“ og eru textarnir úr ,,Bjólfskviðu“, ,,Rokkað í Vittula“ eftir Mikael Niemi og ,,Í búðinni hans Mústafa“ eftir Jakob Martin Strid.
Opnunardagskráin fer fram föstudaginn 11. nóvember kl 20 í Norræna húsinu í samvinnu við bókasafnið og Nordklúbbinn. Boðið verður upp á uppistand með þremur norrænum grínistum, en Nordklúbburinn stendur fyrir norrænni húmorhelgi dagana fyrir bókasafnavikuna.