Posts tagged menning

Afsláttur af ferð til Riga

Afsláttur býðst af ferð til Riga í Lettlandi dagana 26.-29. október nk. Flogið er frá Keflavík og Akureyri.

Tilboðið hljóðar upp á 4000 kr. afslátt af skráðu verði og 15% afslátt af skoðunarferðum. Tilboðið gildir fyrir félagsmenn í Norræna félaginu og maka þeirra.

Frekari upplýsingar um ferðina er að finna hér: http://www.transatlantic.is/lettland

Þeir sem vilja nýta sér þessi tilboð geta haft samband við Omar Banine hjá Trans-Atlantic á netfangið omar@transatlantic.is eða í síma 5888900.

Frú Vigdís Finnbogadóttir hlýtur Peruna

Frú Vigdísi Finnbogadóttur var afhent Peran við hátíðlega athöfn í Norræna húsinu á degi Norðurlanda 23. mars sl.  Það er í fjórða skipti sem þessari heiðursviðurkenningu Norræna félagsins á Íslandi er úthlutað. Við sama tækifæri var henni afhent gullmerki Norræna félagsins.

Hér má sjá myndir frá athöfninni.

Myndir: Kristbjörg Erla Hreinsdóttir.

Ragnheiður H. Þórarinsdóttir formaður Norræna félagsins á Íslandi afhendir frú Vigdísi Finnbogadóttur Peruna, heiðursverðlaun Norræna félagsins.

Frú Vigdís með Peruna

 

Frú Vigdís Finnbogadóttir hefur veitt Perunni viðtöku

Allir Peruhafar

 

 

 

 

Peruhafar frá upphafi allir saman. Frá vinstri Unnar Stefánsson, frú Vigdís Finnbogadóttir, Anna Einarsdóttir, Þorvaldur S. Þorvaldsson.

Með kærri kveðju til Kulusuk

Laugardaginn 23. mars klukkan 14 verða haldnir stórtónleikar í Eldborg í Hörpu, þar sem margir þekktustu tónlistarmenn og hljómsveitir landsins stíga á svið í þágu íbúa Kulusuk á Grænlandi, en tónlistarhúsið í þorpinu brann til grunna í fárviðri á dögunum.

Ókeypis aðgangur er að tónleikunum, en þar verður safnað fjárframlögum og hljóðfærum, svo aftur megi óma tónlist í Kulusuk.

Meðal þeirra tónlistarmanna og hljómsveita sem koma fram í Eldborg á laugardaginn eru Agent Fresco, Digraneskórinn, DJ Margeir, Fóstbræður, Haffi Haff, Jakob Frímann Magnússon, KK, Morgan Kane, Pálmi Gunnarsson, Ojba Rasta, Sam Sam, Sísy Ey, Sykur, Unnur Eggertsdóttir og Þórunn Antonía. Heiðursgestir á tónleikunum eru grænlensku tónlistarmennirnir Anda Kuitse, Anton Sianiale og Efraim Ignatiessen sem koma hingað til lands frá Kulusuk.

KALAK, vinafélag Íslands og Grænlands, stendur að tónleikunum í Eldborg í samvinnu við fjölmarga velunnara Grænlands á Íslandi. Helstu bakhjarlar eru Flugfélag Íslands, Harpa tónlistarhús, Guide to Iceland, Skákakademían og Tónastöðin.

KALAK hefur opnað söfnunarreikning vegna brunans mikla í Kulusuk, sjá nánar á www.kalak.is

Peran afhent á degi Norðurlanda

Með lest um danska sögustaði

Norræni járnbrautaklúbburinn sem starfræktur er í Danmörku stendur í sumar fyrir ferð eftir vesturströnd Jótlands með lest sem áður var í notkun í Noregi. Ferðalagið hefst í Kaupmannahöfn þann 11. ágúst og lýkur 17. ágúst á sama stað. Á þessum dögum verða heimsóttir margir sögufrægir og áhugaverðir staðir, t.d. Jótlandssteinarnir, Vedersø Præstegård og Hanstholmvirkið. Dagskrána má nálgast á heimasíðu klúbbsins, en skráning fer fram á netfanginu mail@nojk.dk til 1. maí nk.

Snorri West 2013

Norræna félagið og Þjóðræknisfélag Íslendinga býður upp á einstakt tækifæri fyrir unga Íslendinga á aldrinum 18-28 ára til að ferðast á Íslendingaslóðir í Kanada og Bandaríkjunum í fjórar vikur næsta sumar. Auk Manitoba verður farið til Alberta og Saskatchewan.

Umsóknarfrestur er til 1. mars 2013

Frekari upplýsingar fást hjá Ástu Sól á skrifstofu Norræna félagsins í síma 551 0165. Einnig á www.snorri.is / info@snorri.is

Norræn áhrif í íslenskri byggingarlist

Hjörleifur Stefánsson arkitekt heldur erindið  ,,Norræn áhrif í íslenskri byggingarlist á fyrri öldum” í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns Íslands miðvikudaginn 16. janúar, kl. 12.05. Hér er eftir miklu að slægjast fyrir áhugafólk um íslenska byggingarlistasögu enda er Hjörleifur þekktur fyrir rannsóknir sínar og skrif á því sviði.

Erindið er hluti af fyrirlestrarröð sem Norræna félagið heldur í samvinnu við Þjóðminjasafn Íslands sem spannar allt árið og nefnist Hinar ýmsu hliðar norræns samstarfs.

Norræna félagið á Íslandi leit dagsins ljós árið 1922 og var því 90 ára á árinu 2012. Fyrirlestarröðin er hluti af afmælisdagskrá félagsins.

Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.

Sænsk-íslenskir styrkir

Umsóknarfrestur um styrki frá Sænsk-íslenska samstarfssjóðnum rennur út 1. febrúar nk. Póstsstimpill gildir. Þeir sem hyggja á sænskt samstarf á komandi mánuðum eru hvattir til að búa sig nú þegar undir umsóknarskil. Frekari upplýsingar um sjóðinn má finna á www.nordiskafonder.se.

Safnastarf á Íslandi í norrænu samhengi

Margrét Hallgrímsdóttir, þjóðminjavörður, heldur erindi í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns Íslands miðvikudaginn 28. nóvember, kl. 12.05. Hún segir frá reynslu sinni af norrænu samstarfi og hvers virði það hefur verið í uppbyggingu Þjóðminjasafns Íslands.

Erindið er hluti af fyrirlestrarröð sem Norræna félagið heldur í samvinnu við Þjóðminjasafn Íslands sem spannar allt árið og nefnist Hinar ýmsu hliðar norræns samstarfs.

Norræna félagið á Íslandi leit dagsins ljós árið 1922 og er því 90 ára á árinu 2012. Fyrirlestarröðin er hluti af afmælisdagskrá félagsins.

Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.

Dönskuklúbbur fer af stað

Dönskuklúbbur Norræna félagsins er aftur að fara af stað.

Laugardaginn 24. nóvember kl. 15-17 ætlum við að bjóða foreldrum og börnum að koma saman á Óðinsgötu 7 og skapa létta, danska stemningu með því að syngja saman og föndra. Leiðbeinendur klúbbsins að þessu sinni eru kennarar og nemendur í dönsku við Háskóla Íslands.

Dönskuklúbburinn er ætlaður börnum sem búið hafa í Danmörku og/eða eiga danskt/a foreldri/a.

Klúbburinn verður einnig í boði 1., 8. og 15. desember (tímasetning verður send út síðar).

Nauðsynlegt er að skrá sig í klúbbinn! Klúbburinn er ætlaður börnum félagsmanna og er þeim að kostnaðarlausu. Skráning í klúbbinn fer fram hjá Norræna félaginu á netfanginu valdis@norden.is. Einnig er hægt að hringja í síma 551-0165 til að skrá sig.

Við skráningu þarf að koma fram: Nafn barns og fæðingadagur, nafn foreldris og kennitala, heimilisfang, símanúmer og netfang.

ATH! Auðvelt er að gerast félagi í Norræna félaginu. Félagsaðild kostar aðeins 2.900 kr. á ári/1.450 kr. fyrir 18-27 ára og 67 ára og eldri.