Posts tagged norska

Tungumálanámskeið

Í apríl og maí mun Norræna félagið bjóða upp á grunnnámskeið í sænsku og grunn- og framhaldsnámskeið í norsku. Á námskeiðunum verður lögð áhersla á orðaforða og hagnýta kunnáttu.

Norska:
Kennari er Hermann Bjarnason.
Grunnnámskeið: miðvikudagar kl. 17:30-19:00, alls fimm skipti 10., 17. og 24. apríl og 8. og 15. maí 2013.
Framhaldsnámskeið: fimmtudagar kl. 19:45-21:15, alls fimm skipti 11. og 18. apríl 2., 16. og 23. maí 2013.

Sænska:
Kennari er Adolf Hólm Petersen.
Grunnnámskeið: fimmtudagar kl. 18:00-19:30, alls fimm skipti 11. og 18. apríl 2., 16. og 23. maí 2013.

Staðsetning: Norræna félagið, Óðinsgötu 7, 101 Reykjavík.
Skráning á námskeiðin fer fram í síma 551-0165 og á netfanginu valdis@nordenis. Námskeiðin eru eingöngu ætluð félagsmönnum í Norræna félaginu sem greiða 6.500 krónur í þátttökugjald. Auðvelt er að gerast félagi í Norræna félaginu.

Félagsaðild í Norræna félaginu kostar 2.900 kr. á ári / 1.450 kr. fyrir 18-27 ára og 67 ára og eldri. Greiða þarf þátttökugjald áður en námskeið hefst. Námskeiðið fellur niður ef lágmarksþátttökufjöldi næst ekki.

Tungumálanámskeið vorsins

Í janúar og febrúar mun Norræna félagið bjóða upp á grunnnámskeið í sænsku og
norsku, og framhaldsnámskeið í sænsku. Á námskeiðunum verður lögð áhersla á
orðaforða og hagnýta kunnáttu.

Sænska:
Kennari er Adolf Hólm Petersen.
Grunnnámskeið: þriðjudagar kl. 17:30-19:00, alls fimm skipti frá 29. janúar -
26. febrúar 2013.
Framhaldsnámskeið: fimmtudagar kl. 17:30-19:00, alls fimm skipti frá 31. janúar
- 28. febrúar 2013

Norska:
Kennari er Hermann Bjarnason.
Grunnámskeið: miðvikudagar kl. 17:30-19:00, alls fimm skipti frá 30. janúar til
27. febrúar 2013.
Framhaldsnámskeið verður auglýst síðar, endilega hafið samband við Valdísi Ösp (valdis@norden.is) til að fá frekari upplýsingar.

Staðsetning: Norræna félagið, Óðinsgötu 7, 101 Reykjavík.

Skráning á námskeiðin fer fram í síma 551-0165 og á netfanginu valdis@norden.is. Námskeiðin eru eingöngu ætluð félagsmönnum í Norræna félaginu sem greiða 6.500 krónur í þátttökugjald. Þátttökugjöld eru greidd gegnum heimabanka. Námskeið falla niður ef lágmarksþátttökufjöldi næst ekki.

Námskeið í norsku og sænsku

Í nóvember býður Norræna félagið upp á grunnnámskeið í sænsku og norsku. Á námskeiðunum verður lögð áhersla á orðaforða og hagnýta kunnáttu.

Norska: Kennari er Hermann Bjarnason. Námskeiðið fer fram á miðvikudögum kl. 18:00-19:30, alls fimm skipti frá 7. nóvember til 5. desember 2012. Staður: Húsnæði Norræna félagsins, Óðinsgötu 7, 101 Reykjavík

Sænska: Kennari er Adolf Hólm Petersen. Námskeiðið fer fram á þriðjudögum kl. 19:15-20:45, alls fimm skipti frá 6. nóvember til 4. desember 2012. Staður: Húsnæði Norræna félagsins, Óðinsgötu 7, 101 Reykjavík.

Skráning á námskeiðin fer fram hjá Norræna félaginu í síma 5510165 og á netfanginu valdis@norden.is. Námskeiðin er eingöngu ætlað félagsmönnum í Norræna félaginu sem greiða 6.500 krónur í þátttökugjald. Auðvelt er að gerast félagi í Norræna félaginu.

Félagsaðild í Norræna félaginu kostar 2.900 kr. á ári / 1.450 kr. fyrir 18-27 ára og 67 ára og eldri. Greiða þarf þátttökugjald áður en námskeið hefst. Námskeiðið fellur niður ef lágmarksþátttökufjöldi næst ekki.

Fyrirlestur um norræn tungumál

Bogi Ágústsson, fréttamaður og formaður Norræna félagsins í Reykjavík, flytur fyrirlestur í Þjóðminjasafni Íslands miðvikudaginn 23. maí kl. 12:05 og fjallar um stöðu norrænna tungumála í norrænu samstarfi. Fyrirlesturinn er byggður á pistlaröð í fréttaskýringaþættinum Speglinum í Ríkisútvarpinu í síðasta mánuði.

Fyrirlesturinn er hluti af fyrirlestrarröð sem Norræna félagið heldur í samvinnu við Þjóðminjasafn Íslands sem spannar allt árið og nefnist Hinar ýmsu hliðar norræns samstarfs.

Norræna félagið á Íslandi leit dagsins ljós árið 1922 og er því 90 ára á árinu 2012. Fyrirlestarröðin er hluti af afmælisdagskrá félagsins.

Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.

 

Pistlar um norræn tungumál

Bogi Ágústsson fréttamaður fjallaði nýlega um stöðu norrænna tungumála í norrænu samstarfi í fimm pistlum í Speglinum í Ríkisútvarpinu. Mörgum virðist sem þekkingu Norðurlandabúa á tungumálum nágrannaþjóðanna hafi hrakað. Bogi kannaði þetta í pistlaröðinni sem og raunverulega notkun norrænu tungumálanna og hvort enska sæki á í norrænu samstarfi.

Fyrsti pistillinn fjallar að mestu leyti um stöðu sænskunnar í Finnlandi. Líkt og dönskukunnátta virðist á undanhaldi Íslandi er sænskan á undanhaldi í Finnlandi. Og líkt og yfirvöld menntamála á Íslandi ákváðu að enska skyldi vera fyrsta erlenda tungumál í stað dönsku hafa Finnar dregið úr vægi sænskunnar í skólum. Hér má hlusta á pistilinn: Norræn tungumál 1

Annar pistillinn er með nokkur dæmi um ágengni ensku í norrænu samstarfi, en fjallar að mestu um hvort Danir, Norðmenn og Svíar skilji tungumál hinna þjóðanna, en er það svo í raun? Hér má hlusta á pistilinn: Norræn tungumál 2

Í þriðja pistlinum er rætt við Brynju Stefánsdóttur, cand mag í dönsku. Hún gerði samanburðarrannsókn á notkun Íslendinga á skandinavískum tungumálum í norrænu samstarfi. Niðurstaða hennar er að notkunin sé ekki á undanhald þó að enska sé mikið notuð, einkum í viðskiptalífinu. Hér má hlusta á pistilinn: Norræn tungumál 3

Fjórði pistillinn fjallar um forn, útdauð norræn tungumál og þar er aðalviðmælandi Aðalsteinn Davíðsson, fyrrverandi málfarsráðunautur Ríkisútvarpsins. Hér má hlusta á pistilinn: Norræn tungumál 4

Í fimmta pistlinum er rætt við Jørn Lund, sem er er forstöðumaður Det danske sprog og literaturselskab og fyrrverandi kennari og prófessor í dönsku við Hafnarháskóla og Kennaraháskóla Danmerkur. Hann telur að veruleg hætta stafi af ensku og markvissra aðgerða sé þörf til að verjast ásókn ensku. Hér má hlusta á pistilinn: Norræn tungumál 5

Norskunámskeið í nóvember

Í nóvember býður Norræna félagið upp á grunnnámskeið í norsku. Á námskeiðinu er lögð áhersla á orðaforða og hagnýta þekkingu á norskri tungu. Kennari er Hermann Bjarnason.

Tími: Á miðvikudögum 9. nóvember – 7. desember 2011, kl. 18:00 – 19:30, alls fimm skipti.
Staður: Húsnæði Norræna félagsins, Óðinsgötu 7, 101 Reykjavík.

Námskeiðið er eingöngu ætlað félagsmönnum í Norræna félaginu sem greiða 6.500 krónur í þátttökugjald. Félagsaðild í Norræna félaginu kostar 2.500 kr. á ári / 1.250 kr. fyrir 18-27 ára og 67 ára og eldri. Greiða þarf þátttökugjald áður en námskeið hefst.
Skráning er í síma 5510165 og á alma@norden.is.

Norskunámskeið

Norræna félagið býður upp á framhaldsnámskeið í norsku ætlað þeim sem þegar hafa tekið grunnnámskeið hjá okkur og eins þeim sem hafa fyrir einhvern grunn í tungumálinu.
Tími: Mánudagana 24. október til 21. nóvember kl. 18:00-19:30.
Staður: Húsnæði Norræna félagsins, Óðinsgötu 7, 101 Reykjavík.
Þátttökugjald er 6.500 krónur en námskeiðið er eingöngu ætlað félagsmönnum í Norræna félaginu. Félagsaðild kostar 2.500 krónur (1.250 krónur fyrir 27 ára og yngri og 67 ára og eldri).
Skráning á námskeiðið fer fram í síma 5510165 og á netfanginu alma@norden.is.
Námskeiðið  fellur niður ef lágmarksþátttökufjöldi næst ekki.