Til félaga í deild Norræna félagsins í Kópavogi
Aðalfundur er boðaður í deildinni þriðjudaginn 10. mars næstkomandi kl 17:00 í húsnæði Norræna félagsins á Íslandi að Óðinsgötu 7 í Reykjavík.
Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt eftirfarandi:
- Kosning fundarstjóra og fundarritara.
- Skýrsla stjórnar um störf og fjárhag félagsdeildarinnar.
- Kosning formanns til tveggja ára þegar við á.
- Kosning stjórnar, varastjórnar og skoðunarmanna fyrir næsta starfsár.
- Kosning fulltrúa og varamann á sambandsþing.
- Önnur mál.
Síðast var boðað til aðalfundar árið 2010 en þeim fundi lauk án kosninga stjórnarmanna.
Á fundingum verður lögð fram tillaga um að taka þátt í sameiningu tveggja til fjögurra félagsdeilda Norræna félagsins á höfuðborgarsvæðinu. Verði sú tillaga samþykkt mun félagatal og eignir deildarinnar verða lagðar til hinnar nýju, sameinuðu félagsdeildar.
Rétt til setu og þátttöku á aðalfundinum hafa þeir sem greitt hafa árgjald 2019 til Norræna félagsins.
Í Kópavogi 1. mars 2020,
Birna Bjarnadóttir kjörinn formaður á aðalfundi 2009.