Norrænt sambandsríki - næsta skref!
Hrannar Björn Arnarsson
Formaður Norræna félagsins
Hrannar Björn Arnarsson:
Heimurinn í kringum okkur hefur gjörbreyst. Fjármunir norræns samstarfs hafa rýrnað hlutfallslega og verkefnin sem við stöndum frammi fyrir verða sífellt síður leyst innan landamæra hvers ríkis. Á sama tíma er Helsingforssamningurinn í endurskoðun, stuðningur almennings við norrænt samstarf er mikill og við höfum sjálf sett okkur það markmið að verða samþættasta svæði heims.
Að mínu viti er ákvörðunin um eðlisbreytingu norræns samstarfs frá samráði fullvalda ríkja yfir í mótun sameiginlegs norræns ríkisvalds á tilteknum sviðum orðin knýjandi. Ekki aðeins ef það á að lifa af, heldur vaxa og dafna næstu fimmtíu eða hundrað árin.
Kannski verður niðurstaðan aldrei norrænt sambandsríki í þeirri mynd sem Gunnar Wetterberg teiknaði upp árið 2010.
Og líklega byrjar norrænt sambandsríki heldur ekki með fána, forseta, ríkisstjórn og nýju þinghúsi.
Mögulega verður fyrsta skrefið að norrænu sambandsríki tekið þegar Norðurlöndin ákveða í fyrsta sinn að á tilteknu sviði sé ekki lengur nóg að vinna saman, heldur þurfi þau að fara saman með vald og með þeim hætti tryggja hagsmuni íbúa landanna sem best. Það skref er löngu tímabært.
Þetta er umræða sem við verðum að taka og það er afar ánægjulegt og viðeigandi að fá tækifæri til að hefja það samtal með manninum sem setti hugmyndina um Norræna sambandsríkið rækilega á dagskrá. Velkomin á fund Norræna félagsins með Gunnari Wetterberg föstudaginn 16. október kl. 13 í Norræna húsinu.