Norræna félagið Norræna félagið

Teiknimyndagerð — norræn bekkjarkeppni

Norræna félagið í Danmörku og ANIMOK skipuleggja keppni í teiknimyndagerð fyrir norræna skólakrakka á aldrinum 9–13 ára.

Norræna félagið í Danmörku og ANIMOK skipuleggja keppni í teiknimyndagerð fyrir norræna skólakrakka á aldrinum 9–13 ára. Takið þátt í þessu spennandi verkefni, sem felur í sér tækifæri fyrir bæði nemendur og kennara að fræðast um teiknimyndagerð og Norðurlöndin.

Smelltu hér til að lesa meira.

Read More
Norræna félagið Norræna félagið

Samband Norrænu félaganna leitar að skrifstofustjóra

Ert þú skipulagður og vanur skrifstofustjóri með reynslu af félagsstörfum? Ef svo, er FNF með starf fyrir þig.

Ert þú skipulagður og vanur skrifstofustjóri með reynslu af félagsstörfum? Ef svo, er FNF með starf fyrir þig.

Samtök Norrænu félaganna, FNF; Föreningarna Nordens Förbund, óska eftir öflugum og skipulögðum skrifstofustjóra í fullt starf.

Skrifstofustjóri ber ábyrgð á daglegum rekstri á sameiginlegri skrifstofu Norrænu félaganna í Kaupmannahöfn. Á skrifstofunni starfa að jafnaði um 15 starfsmenn og ber skrifstofustjóri ábyrgð á daglegum rekstri og vinnur að verkefnum frá stjórn sem tengiliður skrifstofu og Norrænu félaganna.

Um er að ræða fjölbreytt og áhugavert starf

Starf skrifstofustjóra er fjölbreytt og felst m.a. í gerð starfsáætlana, fjárhagsáætlana, eftirfylgni með samningum, gæðastjórnun verkefna og mannauðsmál.

Næstu samstarfsaðilar eru framkvæmdastjórar Norrænu félaganna (ledningsgruppen) og næsti yfirmaður sá framkvæmdastjóri sem er í formennsku (formennska fylgir formennsku í Norðurlandaráði).

Óskað er eftir öflugum stjórnanda sem sýnir metnað og frumkvæði í starfi og á gott með að vinna í hóp og með reynslu af því að vinna með margþætt verkefni.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Fylgja eftir ákvörðunum stjórnar.

  • Ábyrgð á rekstri skrifstofu, fjármálum og mannauðsmálum.

  • Stuðningur við verkefni FNF og fjárhagsuppgjör.

  • Gerð umsókna í þar til gerða sjóði.

  • Straumlínulaga og samhæfa verkefni skipulagsheildarinnar.

  • Undirbúa framkvæmdastjórafundi og formannafundi.

  • Undirbúa gögn fyrir stjórnarfundi.

  • Vera tengiliður við helstu samstarfsaðila.

  • Tryggja að farið sé að samningum og gildandi lögum og reglum.

 

Menntunar og hæfniskröfur:

Við leitum að sjálfstæðum og ábyrgum einstaklingi með hæfni til að skipuleggja og forgangsraða á skilvirkan hátt og sem getur unnið mismunandi verkefni með hagaðilum.

Þekking á norrænu samstarfi og einlægur áhugi á Norðurlöndunum er skilyrði.

Háskólamenntun, helst á meistarastigi í hagfræði, lögfræði eða viðskiptafræði en þó verður tekið tillit til persónulegra eiginleika og reynslu. Þekking á opinberri stjórnsýslu kostur. Mjög góð kunnátta í einu af skandinavísku tungumálunum skilyrði sem og mjög góð enskukunnátta.

 

Vinnuumhverfið

Skrifstofustjóri er hluti af skapandi og dýnamísku teymi í fjölbreyttu vinnuumhverfi með sveigjanlegan vinnutíma. Skrifstofustjóri er stjórnandi vinnustaðarins og hefur mikla möguleika á að móta og þróa starfið.

Ferðalög innan Norðurlandanna er hluti af starfinu

 

FNF, Samtök Norrænu félaganna

Samtök Norrænu félaganna (FNF) eru samtök Norrænu félaganna á Íslandi, Danmörku, Svíþjóð, Finnlandi, Noregi, Færeyjum, Álandseyjum og Grænlandi. Markmið samtakanna er að styrkja norrænt samstarf bæði á milli landannna og innanlands. Verkefni FNF er að tryggja og þróa náið samstarf milli Norrænu félaganna ásamt því að sjá um og gæðastýra sameiginlegum verkefnu þeirra.

Vinnustaðurinn er á skrifstofu FNF í miðbæ Kaupmannahafnar.

Nánari upplýsingar veita Espen Stedje, framkvæmdastjóri Norræna félagsins í Noregi og framkvæmdastjóri FNF 2023, espen.stedje@norden.no og Ásdís Eva Hannesdóttir framkvæmdastjóri Norræna félagsins á Íslandi og framkvæmdastjóri FNF 2024, asdis@norden.is.

 

Umsóknir sendist til foreningen@norden.no.

Umsóknarfrestur er til 14 janúar 2024.

Greinargóð ferilskrá fylgi umsókn.

Read More
Norræna félagið Norræna félagið

Sorry, I don't speak Danish — Upptaka

Vel heppnuð ráðstefna Norræna félagsins og Norden i Skolen fór fram í Hörpu 9. nóvember s.l. Smelltu til að sjá upptökuna.

Vel heppnuð ráðstefna Norræna félagsins og Norden i Skolen fór fram í Hörpu 9. nóvember s.l. Á ráðstefnunni, sem var vel sótt, sköpuðust áhugaverðar umræður um stöðu skandinavísku tungumálanna og hlutverk enskrar tungu í norrænu samfélagi.

Upptaka og ljósmyndir frá ráðstefnunni má sjá hér að neðan.

Read More
Norræna félagið Norræna félagið

Enn hægt að svara spurningaksrá um norrænt samstarf

Við minnum á að enn er hægt að svara spurningaskrá Norræna félagsins og Þjóðminjasafns Íslands.

Við minnum á spurningaskrá Norræna félagsins sem unnin var í samstarfi við Þjóðminjasafn Íslands tilefni af 100 ára afmæli Norræna félagsins 2022. Tilgangur spurningaskrárinnar er að safna upplýsingum um viðhorf almennings til Norðurlandanna og norræns samstarfs.

Við hvetjum alla sem hafa reynslu af norrænu samstarfi eða skoðun á norrænum málefnum til að taka þátt og svara spurningaskránni.

Read More
Norræna félagið Norræna félagið

Vestnorræni dagurinn — dagskrá 22. sept

Í tilefni Vestnorræna dagsins verður haldin dagskrá í Veröld – húsi Vigdísar og Norræna húsinu 22. sept.

Í tilefni Vestnorræna dagsins verður haldin dagskrá í Veröld – húsi Vigdísar og Norræna húsinu.

Dagskráin hefst með málþingi í Veröld – húsi Vigdísar kl. 15.30–17.30. Á málþinginu verður fjallað um tengsl íslensku, færeysku, grænlensku og norsku við dönsku og ensku og varpað ljósi á stöðu tungumálanna í samtímanum.

Að málþinginu loknu verður haldið í Norræna húsið. Dagskráin í Norræna húsinu hefst 18.00 með stuttu ávarpi. Boðið verður upp á veitingar og Þorgerður Ása Aðalsteinsdóttir flytur nokkur norræn lög.

Skoðið viðubrðinn á Facebook til að sjá dagskrána í heild sinni.

Read More
Norræna félagið Norræna félagið

Vestnorræna ráðið boðar til opins borgarafundar 29. ágúst

Vestnorræna ráðið heldur borgarafund 29. ágúst kl 17.00. Þemað er „Hvad har vi til fælles i Vestnorden som vi bygger vores samarbejde på?“

Vestnorræna ráðið boðar til opins borgarafundar í Norræna húsinu á þriðjudaginn 29. ágúst kl 17.00. Fjallað verður um þemað „Hvad har vi til fælles i Vestnorden som vi bygger vores samarbejde på?“ í erindum og pallborðsumræðum. Kristina Bærendsen og Böddi Reynis flytja lög að dagskrá lokinni.

—> Smelltu hér til að sjá viðburðinn á Facebook

Read More
Norræna félagið Norræna félagið

Skráning hafin á sænskunámskeið í október

Nú höfum við opnað fyrir skráningu félagsmanna Norræna félagsins á sænskunámskeið sem hefst 11. október 2023.

GRUNNNÁMSKEIÐ Í SÆNSKU OKTÓBER 2023

Sænskunámskeið Norræna félagsins hefst 11. október 2023

Tími: miðvikudagar 17:30 - 19:00, 6 skipti (síðasti tími 15. nóv)

Staðsetning: Skrifstofa Norræna félagsins (Óðinsgata 7, 101 Reykjavík)

Verð: 25.000 kr

ATH. námskeiðið er aðeins fyrir félagsmenn.

→ Skráðu þig í félagið

→ Skráning á námskeið

Read More
Norræna félagið Norræna félagið

Norrænt höfuðborgarmót í Osló 1/9-3/9

Ertu með? Skráning til 15. júní 2023. Norrænt Höfuðborgarmót verður haldið í Osló í ár, dagana 1.9. - 3. 9.

Ertu með? Skráning til 15. júní 2023

Norrænt Höfuðborgarmót verður haldið í Osló í ár, dagana 1.9. - 3. 9.

Að venju munu félagsmenn Norrænu höfuðborgarfélaganna hittast þar til skrafs og ráðagerða um framtíð norræns samstarfs og möguleg samstarfsverkefni.

→ Smelltu hér fyrir nánari upplýsingar

Read More
Norræna félagið Norræna félagið

Aðalfundur Norræna félagsins á Höfuðborgarsvæðinu 10. maí

Hér er með boðað til aðalfundar Norræna félagsins á Höfuðborgarsvæðinu 10. maí n.k. kl. 19.30 í húsnæði Norræna félagsins að Óðinsgötu 7.

Hér er með boðað til aðalfundar Norræna félagsins á Höfuðborgarsvæðinu 10. maí n.k. kl. 19.30.

Fundurinn verður haldinn í húsnæði Norræna félagsins að Óðinsgötu 7.

Að fundi loknum verða óformlegar umræður um norrænt samstarf.
Boðið verður upp á léttar veitingar.

Dagskrá aðalfundar Höfuðborgardeildar 2023

Skýrsla stjórnar 2022 - 2023

Tillaga að breytingum að samþykktum Höfuðborgardeildar

Read More
Norræna félagið Norræna félagið

Félagsfundur í Reykjanesbæ og Suðurnesjabæ

Sameiginlegur félagsfundur Norræna félagsins í Reykjanesbæ og Norræna félagsins í Suðurnesjabæ 11. apríl, kl. 20:00 á Bókasafni Suðurnesjabæjar í Sandgerði

Sameiginlegur félagsfundur Norræna félagsins í Reykjanesbæ og Norræna félagsins í Suðurnesjabæ

Tími: 11. apríl, kl 20:00

Staðsetning: Bókasafn Suðurnesjabæjar í Sandgerði (við hlið íþróttamiðstöðvarinnar í Sandgerði).

Sameiginlegur félagsfundur Norræna félagsins í Reykjanesbæ og Norræna félagsins í Suðurnesjabæ verður haldinn þriðjudaginn 11. apríl 2023 kl. 20.00 á Bókasafni Suðurnesjabæjar við Suðurgötu í Sandgerði í Suðurnesjabæ. Dagskrá fundarins eru umræður um mögulega sameiningu deildanna sem verður ef að sameiningu verður: Norræna félagið á Suðurnesjum. Mikilvægt er að kanna hug félagsmanna og heyra þeirra skoðanir og rök.

Hvetjum félagsmenn beggja deilda til að mæta og kynna sér málin.

Léttar veitingar í boði.

Stjórn Norræna félagsins í Reykjanesbæ og stjórn Norræna félagsins í Suðurnesjabæ.

Read More