Fyrir rúmum 15 árum setti sænski sagnfræðingurinn og rithöfundurinn Gunnar Wetterberg fram þá róttæku hugmynd að Norðurlöndin sameinuðust í Norrænt sambandsríki.
Síðan þá hefur heimurinn breyst mikið. Öryggismál, geopólitík og staða Norðurlanda eru í nýju samhengi – og spurningin um nánara norrænt samstarf hefur sjaldan verið jafn áleitin.
Föstudaginn 28. ágúst kl. 14:00 í Norræna húsinu ræðir Wetterberg hvernig hugmyndir hans hafa þróast frá árinu 2010 og hvernig hann sér framtíð norræns samstarfs í dag.
