Back to All Events

100 ára afmæli Norræna félagsins á Ísland


Þann 29. september 2022 verða liðin 100 ár frá stofnun Norræna félagsins á Íslandi. Í tilefni aldarafmælisins hefur allt árið 2022 verið helgað norrænu samstarfi, norrænni vitund, menningu og samkennd.

Afmælishátíðin hefst með vígslu norræns vinalundar í Fossvogsdalnum fimmtudaginn 29. september kl. 13:00. Búið er að gróðursetja um 100 plöntur í lundinn, þar af átta mismunandi trjáplöntur og runna sem tákna hvert sitt land á Norðurlöndum. Sjá á korti.

Hátíðarkvöldverður verður á Hótel Borg þar sem forseti Íslands ávarpar gesti og boðið verður upp á skemmtidagskrá. Matur, skemmtun, glaumur og gleði! Verð 9.900 kr. Skráning á norden@norden.is.

Föstudaginn 30. september verður efnt til norrænnar ráðstefnu í Þjóðminjasafni Íslands kl. 14:00. Yfirskrift ráðstefnunnar er Ný tækifæri í norrænu samstarfi - Friður, traust og lýðræði. Ráðstefnustjóri er Bogi Ágústsson.


Earlier Event: September 16
Fundur fólksins 2022