Norrænar ungmennabúðir 2026 - Skráning

Viltu þú byggja norrænt tengslanet? 

Nú er opið fyrir skráningu í Norrænar ungmennabúðir! 

Ef þú ert á aldrinum 20 til 25 ára hefur þú nú tækifæri til að verja fimm dögum saman með öðru ungu fólki frá Norðurlöndunum, stækka norræna tengslanetið þitt og fræðast meira um upplýsingaöflun, gervigreind, norræn tungumál og menningu. 

Samband Norrænu félaganna munu, dagana 2.- 7. ágúst, setja af stað nýjar norrænar ungmennabúðir þar sem ungu fólki á aldrinum 20-25 ára á Norðurlöndunum gefst tækifæri til þess að efla þekkingu sína á norrænum málefnum og styrkja tengslanet sitt. Búðirnar, sem fara fram í Helsingborg í Svíþjóð, eru hluti af verkefninu “Nordic Youth Camp” sem fram fer í tveimur áföngum; fyrri hluti fer fram sumarið 2026 með áherslu á menningu og tungumál og síðari hluti, sumarið 2027, mun leggja áherslu á öryggi á Norðurlöndunum.

Norrænu ungmennabúðirnar 2026 eru skipulagðar af Sambandi norrænu félaganna í samvinnu við landsfélögin í Danmörku, Finnlandi, Íslandi, Noregi, Svíþjóð og Álandseyjum. Hvert félag ber ábyrgð á að finna þátttakendur frá sínu landi og ásamt tengilið fyrir verkefnið.

Í búðunum koma saman 33 þátttakendur frá öllum Norðurlöndum og styrkja þekkingu sína á norrænum tungumálum og menningu, í samhengi við stafrænar áskoranir, upplýsingagjöf og gervigreind. Í gegnum vinnustofur, ferðir og verkefni munu þátttakendur þróa hjá sér nýja færni ásamt því að eignast nýja vini frá Norðurlöndunum.

Skráning fyrir íslenska þátttakendur fer fram hér: Norrænar ungmennabúðir (Nordic Youth Camp) – Fill out form - Umsóknarfrestur er til 15. maí 2026

Nánari upplýsingar og dagskrá verða uppfærð reglulega á www.fnfnorden.org