Aðalfundur Höfuðborgardeildar Norræna félagsins verður 21. maí 2026, kl. 19:30. - 21:00
Aðalfundur Norræna félagsins á höfuðborgarsvæðinu verður haldin í húsnæði Norræna félagsins, Óðinsgötu 7, fimmtudaginn 21. maí kl. 19.30.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf skv. samþykkturm Höfuðborgardeildar:
Kosning fundarstjóra og ritara
Skýrsla stjórnar um störf og fjárhag félagsdeildarinnar
Kosning formanns til tveggja ára þegar við á
Kosning stjórnar og skoðunarmanns reikninga til tveggja ára
Kosning varastjórnar til eins árs
Kosning fulltrúa og varamanna á sambandsþing
Önnur mál.
Á fundinum þarf að kjósa formann, þrjá stjórnarmenn og skoðunarmann reikninga, alla til tveggja ára. Að auki þarf að kjósa þrjá varamenn til eins árs.
Að loknum aðalfundarstörfum mun Ragnheiður H. Þórarinsdóttir segja í máli og myndum frá Höfuðborgarmóti Norrænu félaganna sem haldið var í Nuuk, 5. - 9. mars 2026.
