Þriðjudaginn 25. ágúst kl 16.00 - 18.00 verður síðsumarsganga Höfuðborgardeildar Norræna félagsins og í þetta sinn verður gangan í Reykjavík
Gengið verður frá skrifstofu Norræna félagsins við Óðinstorg og farið um nokkrar götur í Goðahverfinu niður í Hljómskálagarð. Þar verður heilsað upp á Jónas Hallgrímsson og Bertel Thorvardsen. Áfram verður haldið suður yfir brúnna um fuglaverndarsvæðið að Norræna húsinu. Við Norræna húsið verður stansað í minningarlundinum í Vatnsmýrinni en félagið stóð að uppbyggingu hans sem minningu um þá 77 einstaklinga sem létust í hryðjuverkaárásunum í Osló og Útey 22. júli 2011.
Gangan endar í gróðurhúsinu við Norræna húsinu og fáum okkur kaffisopa og heyrum um hvað verður helst á seyði í Norræna húsinu þegar haustar og hvað er efst á baugi í norræn samstarfi um þessar mundir.
Við hvetjum alla til að taka þátt í þessari síðsumargöngu um norrænar slóðir í miðbæ Reykjavíkur. Öll velkomin.
Norræna húsið í haustlitum
