Satu Rämö á bókmenntakvöldi á Suðurnesjum

Komið og hlustið á Satu Rämö segja frá ferli sínum sem rithöfundur á Íslandi, bókunum um Hildi og því hvernig hún skapaði sagnaheiminn í kringum lögreglukonuna frá Ísafirði.

Norræna félagið á Suðurnesjum býður til bókmenntakvölds með finnsk-íslenska rithöfundinum Satu Rämö á Bókasafni Suðurnesjabæjar fimmtudaginn 24. september kl. 19:30–21:00. Satu segir frá rithöfundaferli sínum á Íslandi og ræðir um glæpasögurnar um Hildi lögreglukonu á Ísafirði. Satu talar íslensku.

Satu er fædd í Finnlandi árið 1980. Hún kom fyrst til Íslands sem skiptinemi en settist hér að og hefur undanfarin ár búið á Ísafirði. Í Finnlandi var hún lengi þekkt fyrir ferðabækur um Ísland og íslenska prjónabók. Fyrsta glæpasagan um Hildi kom út á finnsku árið 2022 og varð metsölubók í Finnlandi og víðar í Evrópu. Á íslensku kom hún út árið 2024. Síðan hafa fleiri bækur bæst við í bókaflokkinn og nú hafa verið gerðir sjónvarpsþættir eftir honum.

Tveir leshringar á Suðurnesjum hafa lesið bækurnar um Hildi í vetur og sumar: Leshringurinn Imba, sem hittist á Bókasafni Suðurnesjabæjar, og leshringur Norræna félagsins á Suðurnesjum, sem hittist á Bókasafni Reykjanesbæjar.

Viðburðurinn er í samstarfi við Bókasafn Suðurnesjabæjar og Bókasafn Reykjanesbæjar. Öll eru velkomin.

Hvar: Bókasafn Suðurnesjabæjar, Suðurgötu, 245 Sandgerði
Hvenær: Fimmtudaginn 24. september kl. 19:30–21:00

Viðburðurinn á Facebook