Kosningar verða haldnar í Sviþjóð sunnudaginn 13. september n.k. Að venju mun Höfuðborgardeild Norræna félagsins standa fyrir upplýsingafundi um kosningarnar.
Fundurinn verður haldinn fimmtudaginn 10. september og hefst kl. 16.30. Fundinum líkur eigi síðar en kl. 18.
Fundarstaður er Hafnarstræti 5, í húsnæði Reykjavíkurakademíunnar.
Bogi Ágústsson fyrrv. fréttamaður mun stjórna fundinum og leiða umræðurnar. Gestir viðburðarins verða m.a. nýr sendiherra Svíþjóðar á Íslandi, Jan Lundin sem við bjóðum hjartanlega velkominn til starfa og Ástrós Signýjardóttir fréttamaður á RUV sem áður starfaði sem verkefnastjóri Info Norden.
Vonast til að sem flestir sjái sér fært að mæta
