Þjóðhátíðardagur Finnlands
Í dag, 6.desember, er þjóðhátíðardagur Finnlands. 104 ár eru liðin frá því að Finnar hlutu sjálfstæði. Við óskum vinum okkar til hamingju með daginn.
Í dag, 6. desember, er þjóðhátíðardagur Finnlands.
104 ár eru liðin frá því að Finnar hlutu sjálfstæði. Við óskum vinum okkar til hamingju með daginn.
Í tilefni dagsins bendum við áhugasömum á afar áhugaverða umfjöllun Veru Illugadóttur um finnsku borgarastyrjöldina, sem finna má á vefsíðu RÚV.
Norræn bókmenntavika 2021
Í ár býður Norræn bókmenntavika börnum og fullorðnum á upplestrarviðburði þar sem þemað er draumar og þrár. Aukin fjarlægð og lokuð landamæri hafa verið einkennandi undanfarið. Það sem getur sameinað fólk yfir landamæri er einmitt draumar og þrár.Það sem okkur dreymir um og það sem við þráum getur verið óendanlega ólíkt, en tilfinningarnar eru þær sömu.
Velkomin á Norræna bókmenntaviku 2021 þann 15.-21. nóvember.
Draumar og þrár á Norðurlöndunum
Í ár býður Norræn bókmenntavika börnum og fullorðnum á upplestrarviðburði þar sem þemað er draumar og þrár. Aukin fjarlægð og lokuð landamæri hafa verið einkennandi undanfarið. Það sem getur sameinað fólk yfir landamæri er einmitt draumar og þrár. Það sem okkur dreymir um og það sem við þráum getur verið óendanlega ólíkt, en tilfinningarnar eru þær sömu. Bókmenntir hafa alltaf getað hjálpað okkur að láta hugann reika, eitthvað sem hefur kannski verið sérstaklega mikilvægt á tímum heimsfaraldurs. Þess vegna boðar norræn bókmenntavika í ár til samræðna um einmitt drauma og þrár.
Draumar og þrár í upplestrarbókum ársins
Draumar og þrár er mikilvægt þema í upplestrarbókum ársins. Í morgunstundinni fá börnin að hlusta á Pärlfiskaren eftir Karin Erlandsson. Samkvæmt þjóðsögunni þarf sá sem finnur þennan augastein aldrei lengur að þrá eftir neinu. Í rökkurstund fá fullorðnir hlustendur að heyra hina sígildu sögu Katrina eftir Sally Salminen. Við fáum að kynnast hinni ungu Katrinu sem freistast til að giftast ungum fátækum sjómanni þegar hann dregur upp fegraða mynd af framtíð þeirra. Saga Katrinar er kröftug frásögn af örlögum kvenmanns á Álandseyjum, sem margir hafa lesið og unnað gegnum árin.
Álandseyjar 100
Í ár hafa verið valdar upplestrarbækur frá Álandseyjum, til að vekja athygli á hundrað ára afmæli sjálfsstjórnarinnar á Álandseyjum. Afmælishátíðin hefst þann 9. júní 2021 og varir í heilt ár. Í 46. viku verður Norræn bókmenntavika hluti af þessari hátíð, þegar bækur og höfundar sem tengjast Álandseyjum verða lesin á og fyrir utan Norðurlöndin.
Eins og alltaf verður Norræn bókmenntavika haldin í nóvember, á myrkasta tímabili á Norðurlöndum. Grunnhugmyndin er einföld: við tendrum ljós og lesum saman bók.
Við vonum að bókmenntavikan í ár muni hvetja til þátttöku meðal áheyrenda og vekja áhuga meðal þeirra til að skipuleggja fleiri viðburði í kringum upplesturinn.
Aukið samstarf Íslands og Færeyja
Starfshópur á vegum utanríkisráðuneytisins hefur skilað inn skýrslu með 30 tillögum um nánari samskipti Íslands og Færeyja, m.a. á sviði viðskipta, nýsköpunnar, menntunnar og samgangna.
Starfshópur á vegum utanríkisráðuneytisins hefur skilað inn skýrslu með 30 tillögum um nánari samskipti Íslands og Færeyja, m.a. á sviði viðskipta, nýsköpunnar, menntunnar og samgangna.
Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra segir að markmið sé að hrinda þessum tillögum í framkvæmd á næstu árum og renna þannig sterkari stoðum undir samband þjóðanna og á sama tíma skapa forsendur fyrir nýjum og spennandi tækifærum.
Í lokaorðum skýrslunnar leggur starfshópurinn til að stofnað verði til samstarfsráðs milli Íslands og Færeyja, sem m.a. fái það hlutverk að vinna að framgangi tillagnanna. Það er trú hópsins að verði ekki skapaður vettvangur sem fái þá ábyrgð, þá sé til lítils unnið með verki þessu. Of mikil verðmæti eru fólgin í eflingu samskipta þjóðanna til þess að ekki verði unnið ötullega að framgangi þeirra verkefna sem hér eru lögð til.
Björgum norrænu samstarfi
Við búum vel Íslendingar að eiga að nágrönnum öflugustu hagsældar- og velferðarríki heims. Það er nánast orðin klisja að nefna að Norðurlönd raða sér nánast alltaf í efstu sætin í könnunum á velferð og lífsgæðum ríkja heims, en hún er sönn. Lýðræðið og réttarríkið á í vök að verjast í ýmsum af löndum hins vestræna heims en það stendur traustum fótum á Norðurlöndum.
Grein eftir Hrannar Björn Arnarsson, formann Norræna félagsins á Íslandi, sem birtist á Vísi 12.október 2021.
Við búum vel Íslendingar að eiga að nágrönnum öflugustu hagsældar- og velferðarríki heims. Það er nánast orðin klisja að nefna að Norðurlönd raða sér nánast alltaf í efstu sætin í könnunum á velferð og lífsgæðum ríkja heims, en hún er sönn. Lýðræðið og réttarríkið á í vök að verjast í ýmsum af löndum hins vestræna heims en það stendur traustum fótum á Norðurlöndum.
Við höfum lengi notið góðs af þessum nágrönnum okkar. Þeir hafa verið okkur fyrirmynd um uppbyggingu réttláts þjóðfélags og velferðar fyrir alla. Til Norðurlanda höfum við löngum sótt menntun, þekkingu og hugmyndastrauma.
Íslendingar hafa yfirleitt verið þiggjendur í norrænu samstarfi. Við greiðum 1,6% af heildarfjárhagsáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar sem nemur um 20 milljörðum íslenskra króna. Okkar hlutur er því rúmlega 300 milljónir. Norræna húsið fær um það bil sömu upphæð frá Norrænu ráðherranefndinni í árlegan rekstrarstyrk og fyrir umsjón nokkurra verkefna. Önnur starfsemi sem Norræna ráðherranefndin fjármagnar til hagsbóta fyrir alla Norðurlandabúa, til dæmis í gegnum Nordplus-nemendaskiptaáætluninni, upplýsingaþjónustuna Info Norden sem hjálpar þeim sem flytja milli landanna, styrkir Norræna menningarsjóðsins o.s.frv., er því hreinn peningalegur ágóði fyrir Íslendinga.
Samningur Norðurlanda um aðgang að háskólamenntun er ekki síður hagstæður okkur. Hann veitir íslenskum námsmönnum aðgang að æðri menntastofnunum í löndunum en jafnframt eru Íslendingar undanþegnir ákvæði sem gildir um öll hin löndin þess efnis að greiða þurfi mótttökulandi fyrir hvern námsmann. Þessi undanþága sparar okkur hundruð milljóna króna á ári.
Þessi árlegi fjárhagslegi ágóði er þó fjarri því að vera mikilvægasti ávinningurinn af norrænu samstarfi fyrir Ísland. Samstarf við og stuðningur Norðurlanda hefur áratugum saman styrkt stöðu Íslendinga í ýmsum alþjóðastofnunum og í öðrum alþjóðasamskiptum. Þegar semja þarf eða endurskoða löggjöf eða reglugerðir eða takast á við hvers kyns nýjar áskoranir á Íslandi er iðulega leitað til Norðurlanda um fyrirmyndir og ráðgjöf og er þeim beiðnum yfirleitt ákaflega vel tekið. Samstarf og aðstoð af þessu tagi tíðkast ekki bara í efstu lögum stjórnsýslunnar og stjórnmálanna, það fer fram á öllum sviðum samfélagsins, í stofnunum, í samtökum vinnumarkaðarins og félagasamtökum af ýmsu tagi.
Við höfum líka leitað til Norðurlanda eftir stuðningi á erfiðleikatímum. Stundum höfum við verið ánægð með þá aðstoð sem veitt hefur verið, til dæmis eftir Vestmannaeyjagosið 1973, en stundum hefur að minnsta kosti sumum fundist að hann hafi ekki verið nægilegur, til dæmis í tengslum við þorskastríðið og eftir fjármálahrunið 2008.
Ljóst er að við ætlumst til og búumst við að Norðurlönd komi okkur til hjálpar og sýni okkur samstöðu á erfiðleikatímum. Við gerum þá kröfu til norrænu ríkjanna og til Norðurlandabúa umfram allar aðrar þjóðir. Þegar okkur finnst þau hafa brugðist verður gagnrýnin hörð. Þegar stærri norrænu löndin fylgdu ekki fordæmi Færeyinga um skilyrðislausar lánveitingar í kjölfar hrunsins 2008 urðu „svik“ Norðurlanda fyrirferðarmikil í umræðunni. Minna fór fyrir því gríðarlega mikilvæga starfi sem til dæmis norskir stjórnmálamenn unnu til að styrkja stöðu Íslendinga og tala máli þeirra á alþjóðavettvangi. Og lánveitingar norrænu ríkjanna voru mjög þýðingarmiklar þó ekki hafi þær fengist skilyrðislaust. Engin önnur lönd veittu viðlíka stuðning.
Íslenskir stjórnmálamenn nefna oft og iðulega mikilvægi norræns samstarfs. Skoðanakannanir sýna ótvíræðan og eindreginn stuðning almennings við það. En hvernig sýna Ísland og hin norrænu löndin í verki skilning á mikilvægi samstarfsins? Hvernig ræktum við það og treystum þannig að það dugi okkur þegar á reynir?
Í nýrri yfirlýsingu Sambands Norrænu félaganna er bent á það að fjárframlög norrænu landanna til samstarfsins hafi dregist mjög saman á undanförnum árum og áratugum sem hlutfall af þjóðarframleiðslu landanna. Nýjar pólitískar áherslur í starfi Norrænu ráðherranefndarinna frá 2019 hafa einnig leitt til þess að fjárveitingar til menningar- og menntarmála, sem er límið í norræna samstarfinu, hafa dregist verulega saman og munu halda áfram að gera það næstu árin, verði ekkert að gert.
Norrænu félögin fagna því að Norðurlönd beiti sér í umhverfis- og loftslagsmálum og nýti þann kraft sem þau búa yfir þegar þau taka höndum saman. En þessi styrkur verður að engu ef undirstöður samstarfsins eru vanræktar og það er einmitt það sem hefur gerst á undanförnum áratugum og afleiðingarnar eru skýrar. Pólitíska samstarfið brást að miklu leyti þegar takast þurfti á við flóttamannavandann árið 2015. Það brást aftur þegar landamærum milli norrænu landanna var lokað án samráðs vegna Covid-19 faraldursins.
Mikill stuðningur er við norrænt samstarf meðal íslenskra stjórnmálamanna. Mér skilst að margir þeirra vilji auka framlög til samstarfsins en lítið land sem fyrst og fremst er þiggjandi í samstarfinu er vanmáttugt og jafnvel ósannfærandi þegar það hvetur til aukinna fjárútláta sem fyrst og fremst munu koma frá öðrum.
Á síðustu árum og áratugum hefur kennsla í norrænu málum á Íslandi veikst. Dregið var úr kennslu í dönsku í grunnskólum fyrir löngu. Lektorsstöður í finnsku, norsku og sænsku við Háskóla Íslands sem að nokkru leyti voru fjármagnaðar af Finnum, Norðmönnum og Svíum hafa verið lagðar niður. Hætta er á að samsvarandi stöður í dönsku hverfi innan skamms. Kunnáttu Íslendinga í skandinavískum málum, sem er ein forsenda öflugrar þátttöku okkar í samstarfinu og annarra samskipta við Norðurlönd, hefur enda farið mjög aftur. Norræna húsið, sem að fullu er fjármagnað af Norrænu ráðherranefndinni, er fjársvelt og þörf er á viðgerðum á húsinu.
Á næsta ári, fögnum við 100 ára afmæli Norræna félagsins á Íslandi, en norræn samvinna er og hefur verið markmið samtakanna alla tíð.
Væri það ekki verðugt verkefni fyrir nýtt þing og þá ríkisstjórn sem nú tekur við að fagna þessum merku timamótum og snúa vörn í sókn – styrkja norræna samvinnu, efla stöðu og trúverðugleika Íslands í samstarfinu og sýna í verki hversu mikils við metum það með því að takast á við ofangreindan vanda?
Ég hvet ríkisstjórn og þing til að efna sem fyrst til myndarlegrar ráðstefnu fræðimanna, stjórnmálamanna og grasrótarhreyfinga um framtíð og hlutverk Íslands í norrænu samstarfi og í kjölfarið að grípa til nauðsynlegra ráðstafana til að snúa við þeirri óheillaþróun sem orðið hefur. Til þess þurfum við að taka til hendinni heima fyrir og síðan beita okkur á norrænum vettvangi.
Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur. Ef við göngum út frá því sem sjálfsögðum hlut að geta notið þeirra gæða sem felast í samvinnunni við norrænu þjóðirnar án þess að rækta samstarfið og hlúa að því munum við einn daginn þurfa að takast á við sársaukafullar afleiðingarnar af þeim missi.
Norrænu félögin vilja auknar áherslur á norrænt samstarf
Ef sýn norrænu forsætisráðherranna um að Norðurlöndin verði sjálfbærasta og samþættasta svæði heims á að verða að veruleika þarf meira fjármagn til norræns samstarfs.
Ef sýn norrænu forsætisráðherranna um að Norðurlöndin verði sjálfbærasta og samþættasta svæði heims á að verða að veruleika þarf meira fjármagn til norræns samstarfs.
Norrænu félögin fagna auknum áherslum á loftslagsmál og græn gildi í framtíðarsýninni „Vision 2030“ en þær eru í fullu samræmi við vinnu og áherslur Norðurlandanna í umhverfismálum síðustu áratugi. En auknar áherslur á umhverfismál eiga ekki að vera á kostnað menningarsamstarfs og tungumálaskilningi sem er límið í norrænu samstarfi. Auðveldur aðgangur að samnorrænni menningu, svipuð lífsviðhorf og þekking á skandinavísku tungumáli er það sem gerir samstarf þjóðanna árangursríkt og grunnurinn að því að önnur norræn verkefni gangi vel. Það örlar á þeirri ranghugmynd hjá ráðamönnum norræns samstarfs að samhljómur þjóðanna sé sjálfsprottinn sem er víðs fjarri. Það þarf að hlú að norrænu samstarfi og styrkja í töluvert meiri mæli en hefur verið gert síðustu ár af hinu opinbera. Styrking samstarfs Norðurlandanna þarf að eiga sér stað hjá grasrótinni, milli opinberra aðila, þjóðþinga og ríkisstjórna.
Í fjárhagsáætlun Norrænu ráðherranefndarinn hafa samstarfsráðherrarnir sett fram mjög mikla lækkun á fjárframlögum til menningarmála árið 2022. Norrænu ríkisstjórnirnar verða að hlusta á háværa gagnrýni frá öllum Norðurlöndunum á þá ákvörðun og þá hafa allir flokkahópar Norðurlandaráðs mótmælt niðurskurðinum. Menningarlífið varð illa fyrir barðinu á kórónuveirufaraldrinum og það þarf stuðning og stöðugleika til að ná fyrri styrk. Niðurskurður á norrænu framlagi ætti ekki að eiga sér stað næstu ár.
Faraldurinn hamlaði einnig samskiptum þvert á landamæri Norðurlandanna. Til að endurheimta fyrri styrk og traust milli landanna sem veiktist til muna með lokunum landamæra og skorti á samræmingu aðgerða stjórnvalda verður að setja meira fé í þá sem vinna í þágu norræns samstarfs. Allar kannanir sýna mikinn stuðning íbúa landanna við norrænt samstarf. Ráðherrar og aðrir stjórnmálamenn úr öllum flokkum frá öllum Norðurlöndunum hafa við ólík tækifæri bæði fyrir og í heimsfaraldrinum talað um mikilvægi norræna samstarfssins. Brestir og veikleikar samstarfins virðast þó koma í ljós þegar á reynir, t.d. í flóttamannakreppunni 2015 og þegar ríkisstjórnir landanna og yfirvöld fóru hvert sína leið án nokkurs sýnilegs samráðs eða samhæfingu í baráttu við heimsfaraldurinn, með miklum skaða, ekki síst fyrir íbúa sem búa nálægt landamærum og eða vinna þvert á landamæri.
Brestir í opinberu samstarfi Norðurlandanna koma ekki á óvart ef rýnt er í þróun fjárframlags til norræns samstarfs. Ef miðað er við aukningu vergrar landsframleiðslu hefur framlagið minnkað umtalsvert síðustu áratugina. Norrænu félögin lýsa eftir aukningu á framlagi á fjárlögum allra Norðurlandanna til norræns samstarfs. Annarsvegar er krafa um einskiptisframlag til að rétta af hallann sem hefur orðið á síðustu 25 árum og hinsvegar er krafa um að í framhaldinu verði haldið í við verga landsframleiðslu til að koma í veg fyrir framtíðarhalla fjárframlaga.
Aukið framlag er hægt að nota til að fjármagna nýjar áherslur á loftslagsmál og umhverfismál sem yrði til þess að ekki þarf að skera niður framlag til menningar- menntunar- og tungumálasamstarfs.
Þörfin fyrir norrænt samstarf leynist víða og ber helst að nefna samstarf um samfélagslegt öryggi þegar kemur að auknum áskorunum til að mynda innan heilbrigðiskerfisins en ekki bara þar heldur líka gagnvart netárásum, náttúruhamförum og öðrum utanaðkomandi hættum.
Ef við eigum einhvern tímann að endurupplifa norræna samstarfið sem grunnur var lagður að fyrir tæplega 70 árum af framsýnum stjórnmálamönnum, með stofnun Norðurlandaráðs og svo rúmlega 20 árum seinna Norrænu ráðherranefndina, þá verður að koma til meiri áhugi, ný hugsun og meira fé.
Kaupmannahöfn, 22. september 2021
Samtök Norrænu félaganna FNF
sign
Lars Barfoed
Norræna félaginu Danmörku, formaður FNF
Aðrir stjórnarmenn í forsætisnefnd FNF;
Tone Wilhelmsen Trøen, Norræna félagið Noregi, Åsa Torstensson, Norræna félagið Svíþjóð, Hrannar Björn Arnarsson, Norræna félagið á Íslandi, Juhana Vartiainen, Norræna félagið í Finnlandi, Turid Christophersen, Norræna félagið Færeyjum, Maiken Poulsen Englund, Norræna félagið Álandseyjum, Irene Jeppson, Norræna félagið Grænlandi, Jens Kristian Øvstebø, Ungmennadeild Norrænu félaganna.
Vestnorræni dagurinn 23. september
Við í Norræna félaginu vekjum athygli á spennandi dagskrá í Norræna húsinu í tilefni Vestnorræna dagsins fimmtudaginn 23. september. Aðgangur er ókeypis.
Við í Norræna félaginu vekjum athygli á spennandi dagskrá í Norræna húsinu í tilefni Vestnorræna dagsins fimmtudaginn 23. september. Aðgangur er ókeypis.
Á umræðufundi kl. 17.00-18.00 verður varpað ljósi á samstarf vestnorrænu landanna út frá sjónarhóli Færeyja og Grænlands. Hvar liggja helstu áskoranir, tækifæri og væntingar til samstarfs landanna þriggja? Fundurinn fer fram á ensku og verður einnig í streymi. Nánari upplýsingar hér.
Hin nýja, færeyska heimildarmynd SKÁL (2021) verður sýnd kl. 18.30 að viðstöddum aðalpersónum hennar sem svara spurningum í lokin. Nánari upplýsingar hér.
Móttaka verður haldin á milli dagskrárliða kl. 18.00-18.30 í anddyri Norræna hússins með m.a. færeyskum og grænlenskum veitingum.
Smelltu á hlekkinn hér að neðan til að sjá dagskrána í heild sinni:
Fundur fólksins 2021
Tilgangur fundarins er að skapa vandaðan vettvang þar sem boðið er til samtals milli almennings, stjórnmálamanna og frjálsra félagasamtaka, þar sem lýðræði og opin skoðanaskipti eru leiðarstefið.
Fundur fólksins verður haldinn 3.-4. september 2021 í Norræna húsinu.
Tilgangur fundarins er að skapa vandaðan vettvang þar sem boðið er til samtals milli almennings, stjórnmálamanna og frjálsra félagasamtaka, þar sem lýðræði og opin skoðanaskipti eru leiðarstefið.
Markmið fundarins er að skapa meira traust og skilning á milli ólíkra aðila samfélagsins án þess að vera föst í venjubundnum umræðufarvegi stjórnmála og fjölmiðla.
Fundur fólksins er sjálfstæð hátíð og ekki tengd neinum hagsmunaöflum á Íslandi eða annnars staðar.
Lýðræðishátíðin Fundur fólksins var fyrst haldinn í Norræna húsinu í júní 2015 að fyrirmynd annarra Norðurlanda, sem hafa haldið sambærilega fundi; á Borgundarhólmi (Danmörk), í Arendal (Noregur) og í Almedalen (Svíþjóð). Gestir þessara funda í nágrannalöndunum telja að öllum jafnaði tugi þúsunda og þar er að finna afar umfangsmikla þátttöku frjálsra félagasamtaka, stofnana, stjórnmálamanna og fjölmiðlafólks, fyrirtækja auk almennra borgara.
Nokkur félagasamtök komu strax í upphafi að undirbúningi fundarins, þ.á.m. Almannaheill. Ári síðar tók Almannaheill hátíðina að sér með fjárhagsstyrk frá félagsmálaráðuneytinu og Reykjavíkurborg ásamt stuðningi frá Norræna húsinu.
Árið 2017 var hátíðin flutt til Akureyrar með samningi Almannaheilla við Menningarfélag Akureyrar, sem hefur síðastliðin þrjú ár haldið Fund Fólksins undir nafninu LÝSA – Rokkhátíð samtalsins í Menningarhúsinu Hofi.
Stefnt er að því að Fundur fólksins verði haldinn í Reykjavík næstu ár, með stuðningi Reykjavíkurborgar, félagsmálaráðuneytisins og annarra samstarfsaðila.
Ný stjórn Ungmennadeildar Norræna félagsins
Ungmennadeild Norræna félagsins, Ung norræn hélt aðalfund í gærkvöldi. Ný stjórn var kjörin og skipa hana þau Viktor Lorange, forseti, Eva Brá Önnudóttir, varaforseti, Geir Finnsson, gjaldkeri, Geir Zoëga, viðburðastjóri, Benedikt Bjarnason, alþjóðafulltrúi.
Ungmennadeild Norræna félagsins, Ung norræn hélt aðalfund í gærkvöldi. Ný stjórn var kjörin og skipa hana þau Viktor Lorange, forseti, Eva Brá Önnudóttir, varaforseti, Geir Finnsson, gjaldkeri, Geir Zoëga, viðburðastjóri, Benedikt Bjarnason, alþjóðafulltrúi.
Ung norræn er fyrir ungt fólk 18-30 ára og opin öllum þeim sem áhuga hafa á alþjóðlegu samstarfi með áherslu á norrænt samstarf og norræn gildi. Aðild að félaginu er gjaldfrjáls. Hægt er að skrá sig með því að smella hér.
Viljum við meiri norræna samvinnu eða minni?
Það er ánægjulegt að geta fagnað Degi Norðurlanda hér samankomin í sal Norræna hússins, hjarta norrænnar menningar og norræns samstarfs á Íslandi. 23. mars er dagur Norðurlandanna – dagur norræns samstarfs og vinarhugs, en til slíks dags var fyrst stofnað af norrænu félögunum fyrir 85 árum síðan.
Kæru norrænu vinir.
Kära nordiska vänner (svenska här nedan)
Það er ánægjulegt að geta fagnað Degi Norðurlanda hér samankomin í sal Norræna hússins, hjarta norrænnar menningar og norræns samstarfs á Íslandi. 23. mars er dagur Norðurlandanna – dagur norræns samstarfs ogvinarhugs, en til slíks dags var fyrst stofnað af norrænu félögunum fyrir 85 árum síðan. Þá var ekkert Norðurlandaráð starfandi, ekkert norrænt ráðherraráð, enginn sameiginilegur vinnumarkaður, sameiginlegir menningar og rannsóknarsjóðir, engin norræn menningarhús eða sameiginleg sendiráð starfandi. Fyrir 85 árum síðan var norrænt samstarf í raun, lítið annað en hugmynd og hugsjón, ört vaxandi hreyfingar fólks í öllum þessum löndum… og um þá hugsjón var deilt.
Í dag, þegar við fögnum 50 ára afmæli Norræna ráðherraráðsins, efast enginn um mikilvægi norræns samstarf og fáar pólitískar hugmyndir, njóta eins viðtæks stuðnings á Norðurlöndum og hugsjónin um náið og traust samstarf þeirra átta landa sem við köllum Norðurlöndin. Við tökum því samstarfi í raun, nánast sem gefnu – sjálfsögðum hlut en deilum nánast um allt annað.
En nú er komið að vatnaskilum. Við þurfum að taka umræðuna um stöðu norræns samstarfs og gera það upp við okkur, hvað við raunverulega viljum. Í gleðinni og ánægjunni með allt það mikilvæga og árangursríka samstarf sem hefur átt sér stað, hefur okkur nefnilega borið af leið og undanfarna áratugi hefur skipulega verið dregið úr mikilvægi samstarfsins með hlutfallslega lægri framlögum til samstarfsverkefna og sameiginlegra stofnanna.
Nú er svo komið, að umfang þeirra fjölbreyttu samstarfsverkefna sem heyra undir Norræna ráðherraráðið – flaggskip norrænnar samvinnu í 50 ár, er aðeins um helmingur þess sem þau voru fyrir 25 árum síðan. Ætlum við að halda áfram á þeirri braut? Viljum við meiri norræna samvinnu eða minni?
Í kórónuveirufaraldrinum og mismunandi viðbrögðum Norðurlandanna við flóttamannastraumi liðinna ára hafa einnig komið fram alvarlegri brestir í samstarfi landanna, sem enn sér ekki fyrir endann á. Þrátt fyrir skýr fyirheit Helsinkisáttmálans – stjórnarskrá norræns samstarfs, og nýsamþykkta stefnumörkun um að Norðurlöndin eigi að verða samþættasta svæði heimsins, heyrir frjáls för á milli landanna nú sögunni til og verulega skortir á samstöðu, samráð og samvinnu milli norðurlandanna í þessum mikilvægu málum. Ætlum við að halda áfram á þeirri braut? Viljum við meiri norræna samvinnu eða minni?
Þungamiðja norræns samstarf á liðnum árum hefur ekki síst verið á sviði fræðastarfs og menningarmála. Sú samvinna hefur borið ríkulegan ávöxt, eins og við ræðum m.a. hér í dag. Til að fjármagna hina nýju metnaðarfullu og mikilvægu framtíðarsýn Norræna ráðherraráðsins um að Norðurlöndin verði sjálfbærasta og samþættasta svæði heimsins, hefur nú verið boðaður stórfelldur niðurskurður á framlögum til þessara mikilvægu málaflokka. Norrænu húsin, rannsóknarsjóðirnir, menningarsjóðirnir, þýðingarsjóðirnir, Norddjobb, Norræna bókmenntavikan, Norden i skolan, norrænu kvikmyndirnar… öll þessi verkefni eru í hættu og niðurskurðurinn er þegar hafin. Ætlum við virkilega að halda áfram á þeirri braut? Viljum við meiri norræna samvinnu eða minni?
Kæru norrænu vinir.
Við þurfum að ræða norræna samvinnu og svara því á heiðarlegan hátt hvað við raunverulega viljum. Viljum við meira norrænt samstarf eða minna?
Ef við viljum efla og styrkja Norrænt samstarf krefjast aðstæður í samtímanum róttækra breytinga og aukins fjármagns.
Norrænt samstarf þarf nýja stjórnarskrá, nýjan samstarfssáttmála sem tryggir skilvirkari samvinnu, bætt lífsgæði og aukinn slagkraft Norðurlandanna til að takast á við þau stóru verkefni sem bíða okkar, ekki bara á Norðurlöndunum heldur á heimsvísu.
Sameiginlegar bindandi ákvarðanir, samnorrænar lykilstofnanir, sameiginlegt regluverk á mikilvægum sviðum og norrænn ríkisborgararéttur eru allt úrræði sem gætu stóraukið möguleika okkar til að takast á við verkefni framtíðarinnar, en rúmast illa innan þess ramma sem núverandi samstarf byggist á.
Og norrænt samstarf þarf aukið fjármagn til að fylgja eftir þeim mikilvægu verkefnum sem framundan eru og raungera þá metnaðarfullu framtíðarsýn Norræna ráðherraráðsins, að Norðurlöndin verði sjálfbærasta og samþættasta svæði heimsins árið 2030. Þeim markmiðum verður aldrei náð með stórfelldum niðurskurði á norrænum samstarfverkefnum í menningarmálum og fræðastarfi. Þau mikilvægu verkefni þurfum við að verja en samhliða, sækja fram á nýjum sviðum.
Þannig og aðeins þannig, getum við aukið norrænt samstarf á komandi árum og snúið af braut hnignunnar. Slík stefnubreyting um meira norrænt samstarf yrði okkur öllum til heilla. Um það er ég sannfærður. Til hamingju með daginn!
Hrannar Björn Arnarsson, formaður Norræna félagsins á Degi Norðurlanda 2021
Kära nordiska vänner.
Det är ett nöja att få fira Nordens Dag tillsammans med er i denna sal i Nordens Hus, hjärtat i nordisk kultur och nordiskt samarbete på Island.
Den 23 mars är Nordens Dag – det nordiska samarbetets och vänskapens dag, som firades för första gången av de nordiska föreningarna för 85 år sedan.
Då fanns inget Nordiskt råd, inget nordiskt ministerråd, ingen gemensam arbetsmarknad, gemensamma kultur- och forskningsfonder, inga nordiska kulturhus eller ambassader.
För 85 år sedan var det nordiska samarbetet faktiskt inte mycket mer än en idé och en vision, en snabbt växande mobilitet i alla dessa länder… och den visionen var kontroversiell.
I dag, när vi firar nordiska ministerrådets 50-års jubileum, är det ingen som ifrågasätter vikten av det nordiska samarbetet och det finns inte många politiska idéer som har lika brett stöd i Norden som visionen om ett nära och stabilt samarbete mellan de åtta länder som vi kallar för Norden.
Egentligen tar vi det samarbetet nästan för givet – en självklarhet men vi argumenterar om nästan allt annat.
Men nu har vi nått en vändpunkt. Vi behöver ta diskussionen om det nordiska samarbetets situation och ta ställning till vad vi verkligen vill.
I glädjen och nöjet av allt det viktiga och framgångsrika samarbetet som har ägt rum, har vi nämligen tappat fokus och de senaste årtiondena har viket av samarbetet systematiskt förminskats genom proportionerligt lägre anslag till samarbetsprojekt och gemensamma institut.
Nu har det blivit så att omfattningen av de diversifierade samarbetsprojekt som tillhör nordiska ministerrådet – det nordiska samarbetets flaggskepp under 50 år, blott är ungefär hälften av vad det var för 25 år sedan.
Ska vi fortsätta på det här viset? Vill vi se mer nordiskt samarbete eller mindre?
I coronapandemin och de nordiska ländernas olika respons till de senaste årens flyktingström kan vi även se stora brister i ländernas samarbete, som inte ser ut att närma sig sitt slut.
Trots de tydliga löftena i Helsingforsavtalet – en konstitution för nordiskt samarbete, och den nyligen godkända strategiplanen om att Norden ska bli den mest integrerade regionen i världen, är nu fri mobilitet mellan länderna ett minne blott och det finns en stor avsaknad av solidaritet, samråd och samarbete mellan de nordiska länderna i dessa viktiga frågor.
Ska vi fortsätta på det här viset? Vill vi se mer nordiskt samarbete eller mindre?
Kärnan i det nordiska samarbetet de senaste åren har inte minst varit inom det akademiska och kulturella. Detta samarbete har gett stora resultat, vilket vi bl.a. kommer att diskutera här idag.
För att finansiera Nordiska ministerrådets nya ambitiösa och viktiga vision om att Norden ska bli den mest hållbara och integrerade regionen i världen har nu stora nedskärningar av dessa viktiga frågor utlysts.
De nordiska husen, forskningsfonderna, kulturfonderna, översättningsfonderna, Nordjobb, Nordiska litteraturveckan, Norden i skolan, de nordiska filmerna… alla dessa projekt står inför en risk och nedskärningarna har redan börjat.
Ska vi verkligen fortsätta på det här viset? Vill vi se mer nordiskt samarbete eller mindre?
Kära nordiska vänner.
Vi behöver diskutera nordiskt samarbete och på ett ärligt sätt ge ett svar på vad det är som vi faktiskt vill. Vill vi se mer nordiskt samarbete eller mindre?
Under dagens förhållanden krävs det radikala förändringar och ökad finansiering om vi vill främja og stärka nordiskt samarbete.
Det nordiska samarbetet behöver en ny konstitution, ett nytt samarbetsavtal som garanterar ett effektivare samarbete, ökad livskvalitet och större slagkraft för Norden att ta itu med de stora utmaningarna som vi nu står inför, inte bara i Norden utan globalt.
Gemensamma bindande beslut, samnordiska nyckelinstitutioner, ett gemensamt regelverk inom viktiga områden och ett nordiskt medborgarskap är lösningar som kraftigt kan öka vår förmåga att ta itu med framtidens utmaningar, men som inte riktigt faller inom ramarna som satts upp för det nuvarande samarbetet.
Och det nordiska samarbetet behöver mer finansiering för att vidareutveckla de viktiga projekt som närmar sig och för att uppfylla Nordiska ministerrådets ambitiösa vision, att Norden ska bli den mest hållbara och integrerade regionen i världen år 2030.
Vi kommer aldrig att nå de målen med stora nedskärningar av nordiska samarbetsprojekt inom kultursektorn och det akademiska. Vi behöver värna om dessa projekt men samtidigt avancera inom andra områden.
Enbart på så vis kan vi utöka det nordiska samarbetet de kommande åren och bryta den negativa trenden.
En sådan ändring av riktning, mot ett ökat nordiskt samarbete skulle gynna oss alla. Det är jag övertygad om. Grattis på Nordens dag!
Hrannar Björn Arnarsson, ordförande Föreningen Norden på Nordens Dag 2021
Dagur Norðurlandanna 23. mars
Dagur Norðurlanda verður að vanda haldinn hátíðlegur þann 23. mars nk. Að þessu sinni fagnar Norræna ráðherranefndin fimmtíu ára afmæli.
Dagur Norðurlanda verður að vanda haldinn hátíðlegur þann 23. mars nk. og að þessu sinni fagnar Norræna ráðherranefndin fimmtíu ára afmæli.
Af því tilefni verður efnt til fimm umræðufunda þar sem rætt er hverju Norðurlöndin hafa áorkað í sameiningu. Tekin verða fyrir fimm málefni sem formennskuland ársins, Finnland, leggur áherslu á en það eru norrænar lausnar á sviði jafnréttis, stjórnsýsluhindrana, hringrásarhagkerfis, tjáningarfrelsis og menningar.
Undirliggjandi í öllum þessum málefnum er spurningin: Hvernig viljum við að Norðurlöndin verði í framtíðinni og hvernig gerum við þau að samþættasta og sjálfbærasta svæði í heimi?
Málefni menningar verður í brennidepli hér á Íslandi og býður Norræna húsið og Norræna félagið til pallborðsumræðu þar sem gildi menningar á Norðurlöndum á erfiðleikatímum og í framtíðinni – norrænt menningarsamstarf fyrrum, nú og framvegis verður til umfjöllunar.
Streymt verður frá viðburðurinum sem verður í Norræna húsinu frá kl 17.00 til 18.15.
Dagskrá
Norrænar menningarstofnanir – Sabina Westerholm, forstjóri Norræna hússins í Reykjavík
Pólitískt samstarf – Sigurður Ingi Jóhannsson, samstarfsráðherra Norðurlanda á Íslandi
Borgaralegt samfélag á Norðurlöndum – Hrannar Arnarsson, formaður Norræna félagsins á Íslandi
Formennska Finnlands í Norrænu ráðherranefndinni – Ann-Sofie Stude, sendiherra Finnlands á Íslandi
Umræður
Pallborðið mun:
Gefa sögulegt sjónarhorn á virði norræns menningarsamstarfs.
Varpa ljósi á hvernig heimsfaraldur kórónuveiru hefur haft áhrif á menningarlíf á Norðurlöndum.
Ræða hvaða þemu og hvaða hlutverki menning mun gegna í norrænu samstarfi í framtíðinni.
Þátttakendur í pallborðsumræðum:
Gísli Örn Garðarsson, leikari og leikstjóri
Tue West, tónlistarmaður
Björn Rafnar Ólafsson, menntaskólanemi í Norður-Atlantshafsbekknum (Nord-Atlantisk gymnasiumklasse)
Steinunn Þóra Árnadóttir, þingmaður í forsætisnefnd Norðurlandaráðs og stjórnarmeðlimur Norræna menningarsjóðsins
Sabina Westerholm, forstjóri Norræna hússins í Reykjavík
Hugleiðingar í lok umræðnanna: Aldís Mjöll Geirsdóttir, forseti Norðurlandaráðs æskunnar.
Fundarstjóri: Sif Gunnarsdóttir, varaformaður Norræna félagsins á Íslandi.
Að lokum mun Söngsveitin Fílharmónía flytja tvö norræn lög.
Viðburðurinn fer fram á skandinavískum tungumálum.
Smelltu hér til að sjá dagskrána í heild sinni.
Norrænt matarboð
Á Degi Norðurlanda 23. mars er hefð fyrir því að blása til norræns matarboðs. Norrænu félögin söfnuðu saman uppskriftum að forréttum, aðalréttum og eftirréttum, einn rétt frá hverju landi frá sem hægt er að nota til að setja saman hið fínasta matarboð.
Matseðill Norræna gestaboðsins.
Forréttir
Salat með hörpuskel, rækjum og krabbakjöti (Grænland)
Rækjukokteill (Ísland)
Reiktur lax með sinnepssósu (Noregur)
Aðalréttir
Laxasúpa (Finnland)
Ofnbakaður þorskur með kryddjurtum (Færeyjar)
Kartöflubuff (Raggmunkar) með sveppum (Svíþjóð)
Eftirréttir
Eplakaka/Bondepige med slör (Danmörk)
Álenskar pönnukökur sveskjumauki (Álandseyjar)
Hægt er að hlaða uppskriftunum niður með því að smella á hlekkinn hér og á myndbandi sem hægt er að nálgast á YouTube fer einn af betri kokkum Danmerkur yfir réttina og sýnir hvernig á að útbúa ekta norræna veislu.
Dagskrá Norrænu ráðherranefndarinnar
Norræna ráðherranefndin fagnar fimmtíu ára afmæli á þessu ári. Af því tilefni verður efnt til fimm umræðufunda á Degi Norðurlanda 23. mars þar sem við ræðum hverju Norðurlöndin hafa áorkað í sameiningu og það sem lykilfólkið leggur áherslu um þessar mundir. Smelltu hér til að sjá dagskrá Norrænu ráðherranefndarinnar.
Saga dags Norðurlanda/Norræna dagsins 1936-2021
Helgi Þorsteinsson, nefndarritari Íslandsdeildar Norðurlandaráðs, hefur skrifað afar skemmtilega samantekt um sögu dags Norðurlanda sem áhugasamir geta lesið hér að neðan.
Dagur Norðurlanda á sér allanga sögu en hefur færst til og tekið miklum breytingum í áranna rás. Árið 1936 var “Norræni dagurinn” haldinn hátíðlegur 27. október í öllum norrænu ríkjunum að frumkvæði Norrænu félaganna. Í skólum á Íslandi hófst dagurinn á því að börnin voru látin hlusta á klukknahringingar frá dómkirkjunum í Niðarósi, Uppsölum og Helsinki. Berggrav biskup í Noregi flutti síðan ræðu í útvarpið. Þetta hefur eflaust verið skólabörnunum til mikillar gleði og þroskaauka. Síðar um daginn voru fluttar í útvarpi ræður konunga Norðurlanda og forseta Finnlands. Norðurlandafánar voru dregnir á stöng um allan bæinn og ýmislegt fleira var gert til hátíðarbrigða og skemmtunar. Einna markverðast var það að svo að segja öll blöð sem þá voru gefin út – og þau voru mörg – fjölluðu ítarlega um norræna daginn og norræna samvinnu.
Ráðgert var að halda Norræna daginn á fimm ára fresti eftir þetta. Vegna heimsstyrjaldarinnar tókst ekki að standa við þá áætlun og næst var haldið upp á daginn árið 1951. Þá var hann að vísu færður til og ákveðið að hafa hann framvegis alltaf síðasta laugardag í september. Megináherslan var á útvarpsdagskrá í öllum löndunum. Kóngarnir fengu nú ekki að halda ræðu heldur forsætisráðherrarnir og flutt var norræn tónlist og fleira skemmtilegt barst landsmönnum á öldum ljósvakans. Biskupar og kirkjuklukkur komust þó ekki að í þetta sinn. Einnig var norræn dagskrá í skólum. Háðstímaritið Spegillinn birti ræðu sem það sagði að fulltrúi tímaritsins hefði flutt í tilefni dagsins. Ræðumaður hóf mál sitt með ávarpinu “Góðir Norræningjar” og sagði síðan meðal annars:
Sumir eru að halda því fram, að norræn samvinna sé mest átveizlur með tilheyrandi ræðum, meira og minna fölskum og fláráðum. Þetta má ef til vill til sanns vegar færa, en geta menn kannske hugsað sér samvinnu með tveim eða fleirum svöngum aðilum. Nei, og aftur nei! Forráðamenn þessarar ágætu hreyfingar hafa verið svo glúrnir að hafa jafnan nógan mat og nóg brennivín á samkomum sínum, og árangurinn hefur heldur ekki látið á sér standa. Hversu margir forgöngumenn norrænnar samvinnu ætli væru orðnir krossaðir riddarar, ef hennar hefði ekki notið við ? Og hver vill svo lá mönnum það, þó að þeir gerist dálítið „hástemmdir“, þegar líða tekur á veizlurnar og búið að samþykkja, hvar halda skuli næstu veizlu? Ef slíkt getur ekki komið manni í lyftingu, hvað getur það þá?
Norræni dagurinn var haldinn í þriðja sinn árið 1956 og var hann þá af einhverjum ástæðum fluttur til 30. október. Í fjórða skiptið árið 1961 var hann haldinn 13. apríl og í fimmta skiptið 6. október 1966. Í öll skiptin voru það norrænu félögin sem höfðu veg og vanda af hátíðarhöldunum í góðu samstarfi við ríkisútvarpsstöðvarnar og skólakerfið. Árið 1956 og hugsanlega oftar voru jafnframt gefin út sérstök frímerki í öllum norrænu löndunum við þetta tækifæri.
Lítið fór fyrir Norræna deginum árið 1971, að minnsta kosti var umfjöllun um hann í íslenskum dagblöðum ekki fyrirferðarmikil.
Þessi hátíð norrænnar samvinnu var lengst af nefnd “Norrænu dagurinn” er stundum var einnig talað um “Dag Norðurlanda”. Síðarnefnda heitið varð ofan á þegar viðburðurinn var endurskoðaður og settur í nýtt samhengi árið 1977. Það ár átti Norðurlandaráð 25 ára afmæli og ákveðið var að framvegis yrði haldið upp á það árlega 23. mars, en þann dag árið 1962 var Helsinki-sáttmáli Norðurlandanna undirritaður við hátíðlega athöfn í finnska þinginu.
Þetta sögulega yfirlit byggir fyrst og fremst á leit í dagblöðum. Frá 1977 er lítið sagt frá Degi Norðurlanda í íslenskum fjölmiðlum. Umfjöllunin verður svolítið meiri eftir því sem nær dregur nútímanum en er þó sáralítil í samanburði við það sem gerðist á fyrstu áratugunum meðan dagurinn var haldinn hátíðlegur á fimm ára fresti.
Fyrir þá sem höfðu gaman af háði Spegilsins um norrænt samstarf skal bent á enn mergjaðri umfjöllun í bundnu máli frá 1970. Hún hefst svo:
Einn norrœnn krati með norrœnt bros
á norrænu þingi
fékk sœti við norrœnt borðhald og nefndakos
og norrœna hundakœti
Framhaldið er ekki fyrir viðkvæmar sálir.