Alþingiskosningar og norrænt samstarf
Hvers virði er Norrænt samstarf þeim flokkum sem bjóða sig fram til Alþingis á morgun 30. nóv.
Veistu ekki hvað þú átt að kjósa? Þá getur verið fróðlegt að kynna sér afstöðu þeirra til Norræns samstarfs.
T.d. Hversu mikilvægt er norrænt samstarf að mati flokkanna? Vilja þeir aukið og nánar norrænt samstarf?
Norræna félagið sendi 3 spurningar á þá flokka sem bjóða sig fram. Svör þeirra flokka sem bárust fylgja með að neðan.
Hvers virði er norrænt samstarf þeim flokkum sem bjóða sig fram til Alþingis á morgun 30. nóv.
Veistu ekki hvað þú átt að kjósa? Þá getur verið fróðlegt að kynna sér afstöðu þeirra til Norræns samstarfs.
Norræna félagið sendi 3 spurningar á þá flokka sem bjóða sig fram. Svör þeirra flokka sem bárust fylgja með að neðan.
Spurningar Norræna félagsins
Á undanförnum tveimur áratugum hafa framlög Norrænu landanna til norræns samstarfs á vettvangi Norrænu ráðherranefndarinnar og Norðurlandaráðs dregist saman um nær helming ef miðað er við hlutfall af landsframleiðslu landanna. Endurspeglar þessi dvínandi áhersla á norrænt samstarf áherslur flokksins eða mun hann beita sér fyrir breytingum og þá hverjum?
Hver er afstaða flokksins til eftirfarandi tillögu Norrænu félaganna um aukið og nánara norrænt samstarf með því að tengja fjárframlög til norræns samstarfs við landsframleiðslu ríkjanna
Hversu mikilvægt er norrænt samstarf að mati flokksins?
Svör Framsóknarflokksins X-B
1. Framsókn vill halda áfram að byggja upp öflugt samstarf á milli Norðurlandanna. Samstarfið hefur reynst farsælt við að gæta sameiginlegra hagsmuna þessara nágrannaþjóða hvað varðar auðlindir, arfleið, menningu og öryggismál.
2. Í stefnu flokksins er ekki tekin afstaða til þess að tengja fjárframlög til norræns samstarfs við landsframleiðslu ríkjanna. Slíkar ákvarðanir þyrftu að vera teknar í nánu samstarfi og samtali við hin Norðurlöndin.
3. Norrænt samstarf er mjög mikilvægt að mati Framsóknar og mun áfram skipta mikilvægan sess m.a. Í utanríkisstefnunni, ekki síst nú þegar Finnland og Svíþjóð hafa gerst aðilar að NATO.
Svör Viðreisnar X-C
1. Viðreisn hefur verið níu mánuði í ríkisstjórn frá því að flokkurinn var stofnaður árið 2016. Hann hefur því ekki getað beitt sér innan ríkisstjórnar í þessum málaflokki. Norðurlöndin eru nú öll aðilar að NATO og EES og þrjú þeirra eiga aðild að ESB. Mikilvægt er að Norðurlöndin nýti sér sameiginlegan styrk sinn á þessum vettvangi og ræði hvaða áhrif það hafi á hefðbundið norrænt samstarf bæði að formi, efni og fjármögnun. Viðreisn er til í það samtal
2. Viðreisn telur að fjármögnun nánara norræns samstarfs verði að byggja á samstöðu um hvaða verkefnum eigi að sinna og mati á kostnaði og ávinningi af þeim. Skipting kostnaðar milli ríkjanna verður svo að fara eftir samkomulagi þeirra. Viðreisn vill fara varlega í að festa útgjöld til ákveðinna málaflokka við einhvert fast hlutfall af umsvifum í viðkomandi landi.
3. Viðreisn telur að norrænt samstarf sé afar mikilvægt, ekki síst á tímum óróa og óvissu í alþjóðamálum enda hefur áhersla á öryggis- og varnarmál fengið stærri sess í norrænni samvinnu undanfarið. Samstarf á sviði menningar og lista byggir á margan hátt á sameiginlegum arfi og þarf að sinna sérstaklega. Sterk norræn rödd er líka mikilvæg þegar kemur að umhverfismálum og mannréttindamálum og yfir höfuð alls staðar þar sem reynir á hið sterka sameiginlega norræna gildismat.
Svör Sósíalistaflokks Íslands X-J
1. Alls ekki. Sósíalistaflokkurinn er alþjóðlega sinnaður flokkur og leggur mikla áherslu á norrænt samstarf. Við teljum gott samstarf norðurlandanna sé mun betri áhersla en á hernaðarsamstarf eins og NATO. Norrænu þjóðirnar eru systraþjóðir sem leggja mikla áherslu á velferð og frið, eða ættu allavega að gera það og Sósíalistar líta svo á að samvinna á þessum vettvangi sé mikilvæg.
2. Það er ágæt hugmynd. Mætti vel taka það aukna fjármagn frá framlögum til NATO.
3. Mjög mikilvægt. Þó Sósíalistaflokkurinn sér frekar nýr stjórnmálaflokkur þá hefur flokkurinn verið að rækta samstarf við systurflokka á Norðurlöndum. Þegar við komum inn á þing þá munum við rækta norrænt samstarf. Nú þegar stríð er um allan heim, meira að segja í Evrópu, þá hefur aldrei verið mikilvægara að vinna saman með hinum norðurlöndunum.
Svör Miðflokksins X-M
1. Miðflokkurinn leggur áherslu á að viðhalda og styrkja norrænt samstarf enda sterkar sögulegar og menningarlegar forsendur til þess. Miðflokkurinn lítur á norrænu löndin sem nánar vinaþjóðir og allt samstarf við þær ætti að taka mið af því.
2. Miðflokkurinn leggur áherslu á ráðdeild í ríkisbúskap og sér ekki þörf fyrir að ráðstafa ótilteknum upphæðum fyrirfram í óskilgreinda stofnanaumgjörð um samstarf sem þegar gengur vel fyrir sig.
3. Miðflokkurinn telur að norrænu þjóðirnar eigi mikið sameiginlegt og mikilvægt sé að viðhalda og vernda það mikla samstarf sem er á milli þjóðanna.
Svör Pírata X-P
1. Norrænt samstarf á sér langa og góða sögu og hafa Íslendingar lengi notið góðs af því samstarfi. Píratar telja mikilvægt að rækta og efla samstarf Norðurlanda á þeim sviðum sem þegar er samstarf um. Við sem búum á Norðurslóðum stöndum frammi fyrir mörgum áskorunum, meðal annars í tengslum við loftslagsbreytingar og er mikilvægt að Norðurlönd standi þétt saman og efli samstarf til þess að takast á við þessar áskoranir.
2. Það eru dæmi um það í stefnu Pírata að tengja framlög til ákveðinna málefna við hlutfall af landsframleiðslu, t.d. hafa Píratar verið fylgjandi því að Ísland nái viðmiðum OECD um að 0,7% af landsframleiðslu fari til þróunaraðstoðar. Píratar eru því opnir fyrir því að skoða tillögur Norrænu félagana um að tengja framlag til norræns samstarfs við landsframleiðslu.
3. Píratar telja að alþjóðlegt samstarf sé mikilvægt og það á sérstaklega við um samstarf við önnur Norðurlönd.
Svör Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs X-V
1. Vinstrihreyfingin grænt framboð hefur ætíð lagt áherslu á norrænt og vestnorrænt samstarf og mun áfram gera, enda er þar um samstarf við okkar nánustu nágranna að ræða. Við viljum því frekar styrkja það samstarf en ekki draga úr því. Norrænt samstarf á sviði menningar er okkur sem þjóð mikilvægt og eflir okkur. Sama gildir um samnorrænar lausnir til þess að takast á við loftslagsmál. Þessi dvínandi áhersla endurspeglar því ekki áherslur VG. Við höfum beitt okkur fyrir auknum fjárveitingum inn í norrænt samstarf nú síðast þegar Guðmundur Ingi Guðbrandsson gegndi starfi samstarfsráðherra Norðurlandanna og á vettvangi Norðurlandaráðs, en því miður eru fá hinna norrænu ríkjanna til í þá vegferð með okkur.
2. VG hefur ekki rætt hvort tengja eigi fjárframlög til norræns samstarfs við landsframleiðslu ríkjanna. Það væri norrænu samstarfi vitanlega í hag þegar vel gengur en væri það ekki þegar og ef landsframleiðsla dregst saman. Hugmyndina er vert að skoða nánar og þá kannski að horfa líka til þess varnagla að fjárframlög haldist hið minnsta alltaf í hendur við verðlag og verðbólgu.
3. Við teljum norrænt samstarf mjög mikilvægt og höfum ávallt forgangsraða norrænu og vest norrænu samstarfi í okkar alþjóðastarfi. Norrænt samstarf er Íslandi afar hagfellt og við fáum mjög mikið út úr samstarfinu á ótal mörgum sviðum. Norrænt samstarf snýst líka um að rækta vináttu og frændsemi með helstu nágrönnum og samstarfsríkjum, og það er líka afar þýðingarmikið. Jafnframt erum við fylgjandi fullri aðild Grænlands og Færeyja að Norðurlandaráði.
Norræna félagið auglýsir eftir verkefnastjóra
Norræna félagið auglýsir starf verkefnastjóra hjá félaginu laust til umsóknar. Aðalstarfið felst í umsjón með Nordjobb á Íslandi. Við bjóðum uppá frábær tækifæri til að þróast í starfi. Regluleg ferðalög innan Norðurlandanna tengd verkefnum. Um er að ræða fullt framtíðarstarf. Umsóknarfrestur til 5. desember. Umsóknir sendist á norden@norden.is
Norræna félagið leitar að metnaðarfullum verkefnastjóra til að stjórna Nordjobb á Íslandi, lýðháskólastyrkjum Norræna félagsins og öðrum verkefnum sem tengjast atvinnu og menntun ungmenna á Norðurlöndunum.
Helstu verkefni:
Samskipti við vinnuveitendur og umsækjendur innan Nordjobb verkefnisins
Skipulagning og framkvæmd kynningarstarfsemi Nordjobb til að efla þátttöku íslenskra ungmenna
Móttaka og úrvinnsla umsókna um lýðháskólastyrk
Skrif á umsóknum og skýrslum til Nordplus vegna lýðháskólastyrks Norræna félagsins
Umsóknir um fjármagn til verkefna og eftirfylgni með fjármögnunarskýrslum
Ábyrgð á þróun og framkvæmd verkefna tengdum atvinnu og menntun ungmenna á Norðurlöndunum
Önnur tengd verkefni innan félagsins
Hæfnikröfur:
Framúrskarandi samskiptahæfni
Skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð
Sterkur áhugi á málefnum ungmenna á Norðurlöndunum
Mjög góð kunnátta í einu skandinavísku tungumáli (danska, norska eða sænska) í rituðu og töluðu máli
Góð íslenskukunnátta í rituðu og töluðu máli
Þekking á vinnumarkaðsmálum er kostur
Við bjóðum upp á:
Frábær tækifæri til að þróast í starfi
Regluleg ferðalög innan Norðurlandanna tengd verkefnum
Starfsupplýsingar:
Um er að ræða fullt framtíðarstarf
Starfsmaðurinn þarf að hafa mikla hæfni í að vinna á fjölmenningarlegum vettvangi þar sem samstarfsfólk er staðsett í ýmsum norrænum löndum.
Ef þú hefur áhuga á að taka þátt í spennandi verkefnum á sviði atvinnu og menntunar ungmenna á Norðurlöndunum, þá hvetjum við þig til að senda inn umsókn á norden@norden.is
Umsóknarfrestur til 5. desember.
Frelsi á Norðurlöndunum, þema norrænu bókmenntavikunnar 2024
Þema Norrænu bókmenntavikunnar er Frelsi á Norðurlöndunum og varpar ljósi á 80 ára lýðveldishátíð Íslands með vali á bókunum, Eldgos eftir Rán Flygenring og Skugga-Baldur eftir Sjón.
Enn er möguleiki á að skrá sig til leiks á https://www.nordisklitteratur.org/is
Verkefnið er samstarfsverkefni Norrænu félaganna á öllum Norðurlöndunum
Norræna bókmenntavikan er upplestrarviðburður þar sem sömu bækur eru lesnar samtímis á öllum Norðurlöndunum og Eystrasaltslöndum og jafnvel víðar þar sem áhugi er. Verkefnið, sem er á vegum Norrænu félaganna hefur það að markmiði að kynna norrænar bókmenntir og viðhalda þeirri hefð að fólk komi saman og hlusti á upplestur, hefð sem á sér djúpar rætur í norrænu samfélagi. Norræna bókmenntavikan er einu sinni á ári, í viku 46 þ.e. 11.-17. nóvember og þá standa staðir eins og bókasöfn, skólar og aðrar menningarstofnanir fyrir upplestri fyrir börn og ungmenni á morgnana og fullorðna á kvöldin.
Í ár er Norræna bókmenntavikan helguð 80 ára lýðveldishátíð Íslands með bókunum Eldgos eftir Rán Flygenring og Skugga-Baldur eftir Sjón.
Opnir fundir Norræna félagsins í Mosfellsbæ 5 nóv, Hafnarfirði 6. nóv og Kópavogi 7 nóv
Norræna félagið á höfuðborgarsvæðinu heldur opna fundi um norrænt samstarf dagana 5. 6. og 7. nóvember 2024. Þar verður fjallað um norrænt samstarf á breiðum grundvelli og sjónunum beint að þeim miklu samskiptum við eigum á norrænum vettvangi. Lögð verður áhersla á kynna þá miklu möguleika sem ungt fólk hefur í gegnum þessi tengsl.
Dagskrá fundanna má sjá í fréttinni.
Öll velkomin.
5. nóvember kl 16.30 Fiskabúrið , Bókasafni Mosfellsbæajar
Dagskrá Mosfellsbær:
Setning og örlítið um norrænt samstarf - Ragnheiður Helga Þórarinsdóttir formaður Norræna félagsins á höfuðborgarsvæðinu
Nýafstaðið Norðurlandaráðsþing - Bryndís Haraldsdóttir, alþingismaður
Norrænt vinabæjarsamstarf og norrænt samstarf sveitarfélaga - Auður Halldórsdóttir, fulltrúi Mosfellsbæjar í norrænu samstarfi
Norrænt samstarf og ungt fólk - Svava Þóra Árnadóttir
Almennar umræður
Fundarstjóri: Halldór Þórarinsson
6. nóvember kl 16.30 Bookless Bungalow, Byggðasafni Hafnarfjarðar, Vestugötu 32, Hafnarfj.
Nokkur orð um mikilvægi norræns samstarfs - Ragnheiður Helga Þórarinsdóttir, formaður höfuðborgardeildar Norræna félagsins
Hvað er helst í fréttum af Norðurlandaráðsþingi – Oddný G. Harðarson, alþingismaður
Samstarf og samvinna í æskulýðs- og menningarmálum – Sunna Magnúsdóttir verkefnastjóri menningar og ferðamála og Björn Pétursson bæjarminjavörður Hafnarfjarðar
Norræn tækifæri fyrir unga fólkið - Svava Þóra Árnadóttir, starfsmaður Norræna félagsins
Almennar umræður
Fundarstjóri: Hildur Helga Gísladóttir
7. nóvember kl. 16.30 – 18:00 í Bókasafn Kópavogs
Nokkur orð um mikilvægi norræns samstarfs - Ragnheiður Helga Þórarinsdóttir, formaður höfuðborgardeildar Norræna félagsins
Hvað er helst í fréttum af Norðurlandaráðsþingi - Hanna Katrín Friðriksson, alþingismaður
Úr norrænum vísnasjóði - Kormák Bragason tónlistarmaður og vísnasöngvari túlkar Cornelis Vreeswijk
Vinir í raun – okkar vinabæir - Elísabet Sveinsdóttir, forseti bæjarstjórnar Kópavogs
Norræn tækifæri fyrir unga fólkið - Svava Þóra Árnadóttir, starfsmaður Norræna félagsins
Almennar umræður
Fundarstjóri: Tryggvi Felixson
Norræna félagið á Höfuðborgarsvæðinu verður með opna fundi um “Norrænt samstarf - hafsjór tækifæra” þann 5. nóvember í Fiskabúrinu í bókasafni Mosfellsbæjar, 6. nóvember í Byggðasafni Hafnarfjarðar, Vesturgötu 32 og 7. nóvember í Bókasafni Kópavogs. Fundirnir byrja allir kl 16.30 og standa til 18.00
Öll velkomin
Tónleikar Stockholms Manskör á Íslandi dagana 11. - 13. október
Dagana 11.-13. október nk. mun Stockholms Manskör halda þrenna tónleika hér á landi í samstarfi við Karlakórinn Fóstbræður, Karlakór Keflavíkur og Karlakór Selfoss.
Á efnisskrá tónleika Stockholms Manskör kennir ýmissa grasa þar sem skandinavísk kórtónlist skipar stóran sess með verkum eftir m.a. Edvard Grieg, Hugo Alfven og Jean Sibelius svo dæmi séu tekin. Auk þess eru á efnisskránni verk eftir franska höfunda eins og Camille Saint-Saëns, Darius Milhaud og Francis Poulenc. Eins má geta einstakra laga eins og „Bridge over troubled water“ eftir þá félaga Simon og Garfunkel auk ABBA lagsins „Mamma Mia“ og fleiri laga.
Dagana 11.-13. október nk. mun Stockholms Manskör halda þrenna tónleika hér á landi í samstarfi við Karlakórinn Fóstbræður, Karlakór Keflavíkur og Karlakór Selfoss.
Það mikill fengur fyrir íslensk tónlistarlíf og þá sérstaklega unnendur karlakóratónlistar að fá Stockholms Manskör (https://stockholmsmanskor.se/) undir stjórn hins þekkta stjórnanda Håkan Sund í heimsókn til Íslands.
Kórinn sem stofnaður var laust eftir síðustu aldamót hefur á að skipa úrvals söngvurum sem margir hverjir sungu áður með hinum heimsþekkta kór Orphei Drängar.
Á efnisskrá tónleika Stockholms Manskör kennir ýmissa grasa þar sem skandinavísk kórtónlist skipar stóran sess með verkum eftir m.a. Edvard Grieg, Hugo Alfven og Jean Sibelius svo dæmi séu tekin. Auk þess eru á efnisskránni verk eftir franska höfunda eins og Camille Saint-Saëns, Darius Milhaud og Francis Poulenc. Eins má geta einstakra laga eins og „Bridge over troubled water“ eftir þá félaga Simon og Garfunkel auk ABBA lagsins „Mamma Mia“ og fleiri laga.
Síðast nefndu lögin eru útsett af stjórnanda kórsins, Håkan Sund, en hann þykir einn fjölhæfasti tónlistamaður Svíþjóðar á sínu sviði.
Það er ljóst að tónleikar Stockholms Manskör er viðburður sem unnendur karlakóratónlistar ættu ekki að láta framhjá sér fara.
Tónleikarnir kóranna eru eftirfarandi:
Föstudaginn 11. október kl. 20 syngur kórinn ásamt Karlakór Keflavíkur í Ytri-Njarðvíkurkirkju.
Laugardaginn 12. október kl. 17 syngur kórinn ásamt Karlakórnum Fóstbræður í Langholtskirkju
Sunnudaginn 13. október kl. 16 syngur kórinn ásamt Karlakór Selfoss í Skálholtskirkju.
Miðar á https://tix.is/event/18431
Útgáfuhóf bókarinnar The Performance of Viking Identity in Museums, í Norræna húsinu þriðjudaginn 20. ágúst kl 15:30-17:00
Það er með ánægju sem Safnafræði við Háskóla Íslands, í samstarfi við Höfuðborgardeild Norræna félagsins býður til útgáfuhófs í tilefni að útgáfu bókarinnar The Performance of Viking Identity in Museums: Useful Heritage in the British Isles, Iceland, and Norway, eftir Dr. Guðrúnu D. Whitehead, lektor í safnafræði.
Útgáfuhófið verður í Norræna húsinu þriðjudaginn 20. ágúst, kl. 15:30-17:00.
Höfundur les úr bók sinni auk þess sem Glímudeild KR tekur nokkur glímutök. Tónlist verður í umsjón Ragnars Ólafssonar,
Það er með ánægju sem Safnafræði við Háskóla Íslands, í samstarfi við Höfuðborgardeild Norræna félagsins býður til útgáfuhófs í tilefni að útgáfu bókarinnar The Performance of Viking Identity in Museums: Useful Heritage in the British Isles, Iceland, and Norway, eftir Dr. Guðrúnu D. Whitehead, lektor í safnafræði. Bókin fjallar um birtingarmynd víkinga á söfnum í Bretlandseyjum, Íslandi og Noregi og mikilvægi þeirra og nýtingu í samtímanum.
Útgáfuhófið verður í Norræna húsinu þriðjudaginn 20. ágúst, kl. 15:30-17:00. Boðið verður upp á spennandi dagskrá; Höfundur les úr bók sinni auk þess sem Glímudeild KR tekur nokkur glímutök. Tónlist verður í umsjón Ragnars Ólafssonar, þúsundþjalasmiðs í tónlist og höfundur bókarinnar Definitely Maybe, sem fjallar um tónlist í Færeyjum.
Boðið verður upp á kaffi og léttar veitingar. Viðburðurinn er opinn öllum.
Bókin er til sölu í Bóksölu stúdenta. Boðið er upp á 10% afslátt dagana 19.-26. ágúst þegar hún er bók vikunnar. Auk þess verður upplestur á Bóksölunni 22. ágúst, kl. 12.00-12.30 og verður bókin á 20% afslætti í tilefni af því.
Nánar um dagskrá:
15.30-15.40: Ragnheiður Helga Þórarinsdóttir, formaður Höfuðborgardeildar Norræna félagsins opnar viðburðinn.
15.40-15.50. Ragnar Ólafsson, tónlistarmaður flytur lag.
15.50-16.10: Guðrún D. Whitehead, höfundur bókarinnar les upp úr nýútkominni bók sinni, The Performance of Viking Identity in Museums: Useful Heritage in the British Isles, Iceland and Norway.
16.10-16.30 Glímudeild K.R. kynnir glímu og sýnir gestum nokkur góð glímutök.
16.30-16.50 Ragnheiður Helga Þórarinsdóttir tekur stutt viðtal við Guðrúnu D. Whitehead um bókina. Spurningum úr sal svarað.
16.50-17.00 Ragnar Ólafsson, tónlistarmaður lýkur dagskrá með því að taka nokkur lög.
Nánar um þátttakendur:
Guðrún D. Whitehead, heimasíða: https://gudrunwhitehead.wordpress.com
Nánar um bókina, The Performance of Viking Identity in Museums: https://www.routledge.com/.../Whitehead/p/book/9781138490062
Höfuðborgardeild Norræna félagsins, heimasíða: https://www.facebook.com/norraenaiReykjavik
Ragnar Ólafsson, heimasíða: https://www.facebook.com/ragnarolafssonmusic/
Ljósmyndir: Ljósmyndir teknar af höfundi á viðburðinum Past in Flames, haldinn af Hurstwic á Eiríksstöðum sumarið 2024.
Norrænu félögin á sumarfundi forsætisnefndar Norðurlandaráðs
Það var gott að finna þann góða stuðning og velvild sem Norrænu félögin njóta í Norðurlandaráði, enda fáir ef nokkrir öflugari bandamenn norræns samstarfs en einmitt Norrænu félögin sem nú hafa flest, barist fyrir auknu norrænu samstarfi í meira en eina öld.
Formaður og framkvæmdastjóri Sambands Norrænu félaganna (FNF), Hrannar Björn Arnarsson og Ásdís Eva Hannesdóttir voru sérstakir gestir forsætisnefndar Norðurlandaráðs, sem hélt sinn árlegan sumarfund í Vestmannaeyjum 24.-25. júní sl. Þátttaka FNF í fundinum er líður í liður í auknu samstarfi Norrænu félaganna og Norðurlandaráðs, í samræmi við óskir FNF þar um, en aukið samstarf milli aðila er einnig liður í formennskuáætlun Íslands í Norðurlandaráði á yfirstandandi ári.
Á fundinum í Vestmannaeyjum kom fram mikil ánægja með gott samstarf FNF og NR á yfirstandi ári, en undir forystu Bryndísar Haraldsdóttur, forseta Norðurlandaráðs og Oddnýjar G. Harðardóttur, varaforseta Norðurlandaráðs hefur samstarf við FNF og Norræna félagið á Íslandi verið stóraukið.
Á fundinum var lagt fram yfirlit í sex liðum um samstarfið á liðnu ári – samstarfsgrundvöllur sem hægt verður að byggja á, á komandi árum.
Fulltrúar FNF lýstu einnig yfir mikilli ánægju með það frumkvæði og þá góðu vinnu sem Norðurlandráð hefur staðið fyrir við endurskoðun Helsingfors samningsins – stjórnarskrá norrænnar samvinnu. Það er löngu tímabært að færa samstarfsgrundvöllinn til samræmis við kröfur nútímans og framtíðarinnar og eru fyrirliggjandi tillögur mikið framfaraskref að mati FNF.
Aukið fjármagn verður hinsvegar að koma til, eigi norræn samvinna að styrkjast á komandi árum, ekki síst ef fjölga á beinum aðildarlöndum og málefnasviðum sem fjalla skal um.
Á fundinum fengu fulltrúar FNF gott tækifæri til að ræða áhyggjur sínar af fjármögnun starfsemi FNF og norrænu félaganna, en ýmsar blikur eru á lofti um áframhaldandi stuðning Norrænu ráðherranefndarinnar við Norrænu félögin og verkefna sem þar eru rekin.
Það var gott að finna þann góða stuðning og velvild sem Norrænu félögin njóta í Norðurlandaráði, enda fáir ef nokkrir öflugari bandamenn norræns samstarfs en einmitt Norrænu félögin sem nú hafa flest, barist fyrir auknu norrænu samstarfi í meira en eina öld.
Midsommarhátíð, sunnudaginn 23. júní við Norræna húsið. Öll velkomin
Við bjóðum ykkur hjartanlega velkomin á Midsommarhátíð sunnudaginn 23. júní við Norræna húsið milli 13 - 18
Dagurinn er uppfullur af skemmtilegum verkefnum, blómum, tónlist og list fyrir börn og fullorðna.
Við bjóðum ykkur hjartanlega velkomin á Midsommarhátíð sunnudaginn 23. júní við Norræna húsið milli 13 - 18
Dagurinn er uppfullur af skemmtilegum verkefnum, blómum, tónlist og list fyrir börn og fullorðna.
Í tilefni af einni stærstu hátíð í Svíþjóð bjóða, Sænska sendiráðið, Sænsk-íslenski samstarfssjóðurinn, Norræna félagið á Íslandi og Lindex í samstarfi við Norræna húsið til fagnaðar sem markar upphaf Sænska viðburðarársins á Íslandi.
Allt árið fögnum við árþúsunda vináttu ásamt ýmsum stórafmælum s.s. 400 ára verslunarsambandi, 250 ára vísindasamstarfi og 85 ára diplómatískum samskiptum Íslands og Svíþjóðar, og síðast en ekki síst þá fagnar Sænsk-íslenski samstarfssjóðurinn 30 ára starfsafmæli.
Dagskrá:
• 13-15 - Búðu til og notaðu þína eigin blómakórónu
• 14:00 - Dansað í kringum miðsumarstöngina (með Lindex, Norræna félaginu och Sænska sendiráðinu á Íslandi) - Nocco gefur okkur drykki.
• 15-16 - PIKKNIKK tónleikar með POSSIMISTE
• 16-17.30 - Finnsk gjörningalist
• 17.30-18.00 - Finnsk gjörningsljósmyndun kynning & ókeypis drykkir!
10-5 -POST sýning er opin í sýningarsal Hvelfinga.
Nánari dagskrá má finna hér og upplýsingar um Midsommar má finna hér (er á ensku)
Stjórn Höfuðborgardeildar Norræna félagsins 2024
Aðalfundur Norræna félagsins á Höfuðborgarsvæðinu var haldinn 5. júni. Meðal þess sem var á dagskrá var að ný stjórn og varastjórn var kosin og samþykktir deildarinnar uppfærðar.
Höfuðborgardeild Norræna félagsins hélt aðalfund sinn 5. júní sl. Á fundinum var m.a. fjallað um skýrslu fráfarandi stjórnar, samþykktir deildarinnar voru uppfærðar og kosin var ný stjórn og varastjórn. Í stjórnarkjöri var leitast við að fá fulltrúa frá öllum sveitarfélögunum fimm sem starfssvæði Höfuðborgardeildar nær yfir og varð sú raunin. Ný stjórn er þannig skipuð:
Ragnheiður Helga Þórarinsdóttir formaður
Tryggvi Felixsson varaformaður
Hildur Helga Gísladóttir gjaldkeri
Andrés Pétursson meðstjórnandi
Ásdís Eva Hannesdóttir meðstjórnandi
Halldór Þórarinsson meðstjórnandi
Helga Lára Guðmundsdóttir meðstjórnandi
Varamenn:
Iris Dager
Atli Geir Halldórsson
Helga Vollertsen
Höfuðborgardeildin varð til við sameiningu félagsdeilda Norræna félagsins í Hafnarfirði, Kópavogi, Mosfellsbæ, Reykjavík og á Seltjarnarnesi 18. júní 2020.
Aðalfundur höfuðborgardeildar Norræna félagsins
Aðalfundur höfuðborgardeildar Norræna félagsins verður haldinn á Óðinsgötu 7, 101 Reykjavík, miðvikudaginn 5. júní 2024, kl. 17:00.
Aðalfundur höfuðborgardeildar Norræna félagsins verður haldinn miðvikudaginn 5. júní 2024, kl. 17:00. Fundurinn verður haldinn í húsnæði félagsins við Óðinstorg.
Höfuðborgadeildin varð til við sameiningu félagsdeilda Norræna félagsins í Hafnarfirði, Kópavogi, Reykjavík og Mosfellsbæ 18. júní 2020.