Norræna félagið Norræna félagið

Norrænt samstarf í uppnámi og endurnýjun

Opinn fundur Norræna félagsins í Norræna húsinu, 29. maí kl. 16:30-18:00. Norrænt samstarf í uppnámi og endurnýjun.

Opinn fundur Norræna félagsins

Norræna húsið, 29. maí kl. 16:30-18:00

Grænlendingar hafa sagt sig frá samstarfi norrænu forsætisráðherrana í mótmælaskyni við það sem forsætisráðherra þeirra kallar mismunun. Ástæðan: Grænlendingar voru ekki boðnir til að sitja við borðið á árlegum sumarfundi forsætisráðherra Norðurlandanna í Stokkhólmi þar sem utanríkis- og varnarmál voru í brennidepli. Á fundinn voru af Svíum, sem eru í forsæti Norrænu ráðherranefndarinnar 2024, boðnir leiðtogar Danmerkur, Finnlands, Íslands, Noregs og Svíþjóðar, auk Þýskalands. Mörg undanfarin ár hafa forsætisráðherrar Álands, Færeyja og Grænlands iðulega tekið þátt í fundum forsætisráðherrana, en þó ekki alltaf og þá með takmörkunum.

Helsinki-samningurinn frá 1962 er „undirstaða“ norræns samstarfs. Samningurinn hefu r ekki tekið  breytingum í um 30 ár. Heimsmyndin er breytt. Samningurinn gerir ekki ráð fyrir því að ríkin eigi samstarf um utanríkis- og varnarmál, sem þó eru orðin þungamiðja samstarfsins. Þá er staða Álandseyja, Færeyja og Grænlands óljós og umdeild. Norðurlandaráð hefur beitt sér fyrir breytingum á sáttmálanum, m.a. til að gera umfjöllun um framangreind málefni formfastari. Ríkisstjórnir Norðurlanda eru hikandi.  

Á sama tíma og forsætisráðherrar Norðurlanda tala um vaxandi mikilvægi norræns samstarfs fer sífellt minna fyrir því fjármagni sem veitt er til samstarfsins. Eru stóru orðin bara innantómt hjal eða er mögulegt að láta samstarfið blómstra án þess að leggja því til meira fjármagn?

Á fundinum verður leitast við að varpa ljósi á eftirfarandi spurningar

  • Hvað liggur að baki ákvörðun Grænlendinga.

  • Er samstarfið við Grænland, Færeyjar og Álandseyjar í uppnámi er eða er þetta stormur í vatnsglasi.

  • Hvaða breytingar vill Norðurlandaráð gera á Helsinki-samningnum.

  • Hverjar eru áherslur Íslands í forsæti Norðurlandaráðs 2024

  • Er Norðurlandssamstarfið meira í orði en á borði.

  • Ef stóru orðin um að efla samstarfið eiga að rætast, hvað þarf að gera.

Fundarstjóri og spyrjandi: Bogi Ágústsson

Eru Grænlendingar að stimpla sig út úr Norrænu samstarfi? (talar á dönsku)

Tove Søvndahl Gant, yfirmaður sendiskrifstofu Grænlendinga á Íslandi

Pallborðsumræður fara fram á íslensku. Þátttakendur verða kynntir síðar.

Read More
Norræna félagið Norræna félagið

Ályktun sambandsþings Norræna félagsins á Íslandi

Ályktun sambandsþings Norræna félagsins á Íslandi. Samþykkt á Sambandsþingi Norræna félagsins á Akranesi 20.04.2024

Norræna félagið á Íslandi fagnar því að Norðurlandaráð vinni nú að tillögum um breytingar á Helsingforssamningnum, stjórnarskrá norræns samstarfs. Samningurinn er barn síns tíma og það er löngu orðið tímabært að endurskoða hann. Norrænt samstarf þarf að vera í stöðugri endurnýjun og aðlaga sig að þeim breytingum sem verða innan Norðurlanda og utan, annars hnignar því smám saman og það veikist.

 

Þá blasir það við að eigi sameiginleg framtíðarsýn ríkisstjórna Norðurlandanna um að Norðurlönd verði sjálfbærasta og samþættasta svæði veraldar árið 2030, að verða að veruleika, verður að gera róttækar breytingar á Helsingforssamningnum hið fyrsta og samhliða tryggja umtalvert aukin fjárframlög til sameiginlegra norrænna verkefna.

 

Að mati Norræna félagsins er mikilvægt að í nýrri stjórnarskrá norræns samstarfs verði eftirfarandi tryggt:

 

  1. Full aðild Grænlands, Færeyja og Álandseyja þegar þau svo kjósa.

  2. Að samstarfið taki til allra málasviða hins opinbera á hverjum tíma, einnig utanríkismála, samgöngumála, öryggis- og varnarmála og annarra málaflokka sem ekki falla þar undir í dag.

  3. Sameiginlegur norrænn ríkisborgararéttur.

  4. Örugg fjármögnun sameiginlegra verkefna, t.d. sem fast hlutfall landsframleiðslu.

 

Norræna félagið á Íslandi, þakkar íslenskum stjórnvöldum og íslenskum þingmönnum í Norðurlandaráði fyrir einarða afstöðu þeirra til mikilvægis norræns samstarfs og hvetur þau til dáða í baráttu þeirra fyrir endurskoðun Helsingforssamingsins og auknu fjármagni til norræns samstarfs.

 

Samþykkt á Sambandsþingi Norræna félagsins á Akranesi 20.04.2024

Read More
Norræna félagið Norræna félagið

Opinn fundur um norrænt samstarf 20. apríl

Norræna félagið í samstarfi við Íslandsdeild Norðurlandaráðs stendur fyrir opnum fundi á Akranesi, laugardaginn 20. apríl kl 13.00 - 14.30.

Norræna félagið í samstarfi við Íslandsdeild Norðurlandaráðs stendur fyrir opnum fundi á Akranesi, laugardaginn 20. apríl kl 13.00 - 14.30.

Fundurinn verður á Bæjarskrifstofunum/FEBAN salnum Dalbraut 4.

Efni fundarins verður m.a.: 

Framtíðarsýn Norræna félagsins, Formennskuáætlun Íslands í Norðurlandaráði og endurskoðun Helsinki sáttmálans.

Meðal þátttakanda í umræðunni verða: 

Bryndís Haraldsdóttir þingmaður, forseti Norðurlandaráðs

Hrannar B. Arnarssson, formaður Norræna félagsins

Ragnheiður H. Þórarinsdóttir, varaformaður Norræna félagsins og fyrrverandi formaður.

Páll Snævar Brynjarsson, framkvæmdastjóri SSV, fyrrum framkvæmdastjóri Vestnorræna ráðsins.

 

Á fundinum gefst fundargestum tækifæri á að kynna sér starfsemi Norræna félagsins og verkefni þess.

Fundurinn er öllum opinn, öll velkomin. 

Read More
Norræna félagið Norræna félagið

Sambandsþing Norræna félagsins 2024

Sambandsþing Norræna félagsins verður haldið 20. apríl 2024 í FEBAN salnum á bæjarskrifstofu Akranesbæjar Dalbraut 4.

Sambandsþing Norræna félagsins verður haldið 20. apríl 2024 á Akranesi.

Dagskrá:

09:30 Skráning og afhending þinggagna

10:00 Formaður Norræna félagsins, Hrannar B. Arnarsson setur þingið

10:05 Ávarp frá Akranesi; Haraldur Benediktsson bæjarstjóri

10:20 Kosningar forseta, varaforseta og ritara þingsins

10:25 Skýrsla sambandsstjórnar 2022 og 2023 lögð fram.

10:40 Ársreikningar síðustu tveggja ára lagðir fram

11:00 Starfsáætlun og fjárhagsáætlun (næstu tveggja ára) lagðar fram

11:40 Tillögur um lagabreytingar lagðar fram

11:50 Tillögur þingfulltrúa lagðar fram

12:00 Hádegisverður

13:00 Opinn fundur í samstarfi við Norræna félagið á Akranesi með formanni Norræna félagsins og fulltrúum Íslandsdeildar Norðurlandaráðs um formennskuáætlun Íslands í Norðurlandaráði, endurskoðun Helsinki sáttmálans og framtíðarsýn Norrænu félaganna

14:30 Umræður og atkvæðagreiðsla um skýrslu stjórnar, reikninga félagsins, fjárhagsáætlun, starfsáætlun, félagsgjöld, lagabreytingar og tillögur þingfulltrúa

15:30 Kosningar:

a) Kosning formanns.

b) Kosning 5 aðalmanna og 4 til vara í sambandsstjórn.

c) Kosning skoðunarmanna reikninga og varamanna þeirra

15:40 Tillaga um næsta þingstað og annan til vara.

15:50 Önnur mál

16:00 Þingslit

Kaffihlé

16:15 Skoðunarferð um Akranes

18:00 Fordrykkur

18:15 Hátíðarkvöldverður

Skemmtiatriði frá heimamönnum

Sambandsþingið er haldið í FEBAN salnum á bæjarskrifstofu Akranesbæjar Dalbraut 4 og er í umsjón Norræna félagsins á Akranesi.

Dagskráin hefst kl 09:30 laugardaginn 20. apríl  og lýkur með hátíðarkvöldverð um kvöldið, mökum er boðið að taka þátt í kvöldverðinum.

Áætluð þinglok eru 22:30.

Read More
Norræna félagið Norræna félagið

Dagur Norður­landanna – fögnum mergjuðum árangri!

Norrænt samstarf er alveg magnað fyrirbæri. Við tökum því flest sem sjálfsögðu og gefnu og tölum nánast aldrei um það.

Hrannar Björn Arnarsson, formaður Norræna félagsins og Ragnheiður Helga Þórarinsdóttir varaformaður Norræna félagsins rita:

Norrænt samstarf er alveg magnað fyrirbæri. Við tökum því flest sem sjálfsögðu og gefnu og tölum nánast aldrei um það. Það bara er þarna og það er gott. Soldið eins og amma eða afi. Og sannarlega er það gott og gengur að mörgu leyti vel, svo engann þarf að undra að stuðningur almennings sé nær órofa, í öllum þeim átta löndum sem að því koma. Ekkert alþjóðlegt samstarf nýtur í raun meiri stuðning i veröldinni og víða um heim horfa þjóðir öfundaraugum til Norðurlandanna að þessu leyti.

Norræna fjölskyldan

Það er heldur ekkert smá afrek að hafa á nokkrum mannsöldrum, náð að færa þessar átta þjóðir saman í eina fjölskyldu, þjóðir sem áður bárust á banaspjótum, rændu og ruppluðu, kúguðu og misnotuðu og háðu stríð hver við aðra, oftar en nokkrar aðrar grannþjóðir í veröldinni. Það eru vissulega meira en tvö hundruð ár síðan vopnum var síðast beitt í erjum þessarar þjóða, en alla síðustu öld hafa þær staðið í margskonar átökum hver við aðra, ekki síst tengdum sjálfstæðiskröfum og sjálfsstjórn – og standa þau átök í raun enn innan norrænu fjölskyldunnar. Vegna norræns samstarfs og hugsjónarinnar um vinarþel og samstöðu þessara átta þjóða, hefur okkur auðnast að vinna úr okkar málum, betur en flestar aðrar þjóðir í svipaðri stöðu. Hörmungarnar sem við fylgjumst nú með í Palestínu og Úkraínu eru m.a. til vitnis um það.

Samfélög í forystu

Ávinningurinn af norrænu samstarfi verður seint ofmetinn. Eftir að samstarf Norðurlandanna hófst fyrir alvöru hafa þau verið nánast samstíga í allri samfélagsþróun. Hvort sem er horft er til efnahaglegs vaxtar, uppbyggingu innviða, mannréttinda, félagsleg réttlætis, öryggis borgaranna eða trausts eru norrænu samfélögin í forystu á heimsvísu. Árangurinn er í raun lyginni líkastur.

Meira norrænt samstarf

Á degi Norðurlandanna er okkur öllum hollt að hugsa hlýtt til norræns samstarfs. Auðvitað ættum við að gera það á hverjum degi og leggja okkar af mörkum til að hlúa að því og efla. Norrænt samstarf og allur þess ávinningur er enda hvorki gefið né sjálfsagt og nú er það í okkar höndum að ákveða framhaldið. Viljum við byggja á ótrúlegum árangri liðinna áratuga og stíga enn frekari skref með okkar norrænu fjölskyldu eða sjá menn aðrar heillavænlegri leiðir? Í mínum huga og Norræna félagsins er svarið skýrt. Við þurfum mun meira norrænt samstarf og róttæk skref í samþættingu norrænu landanna. Eigi markmið norrænu ríkjanna um að Norðurlöndin verða samþættasta svæði veraldar árið 2030, að verða að veruleika, er sannarlega ekki eftir neinu að bíða.

Read More
Norræna félagið Norræna félagið

Páskahátíð Sænska félagsins á Íslandi og Norræna félagsins

Sænska félagið á Íslandi og Norræna félagið á höfuðborgarsvæðinu boða til sænskrar páskahátíðar á Óðinsgötu 7.

→ Smellið hér til að sjá viðburðinn á Facebook.

Viðburður Sænska Félagsins á Íslandi &
Norræna félagið á höfuðborgarsvæðinu

Miðar, sjá hlekk í viðburð

Þetta er upphafið að Merkisárinu Svíþjóð-Ísland 2024. Við byrjum á því að vekja athygli á hefðum kringum sænsku páskahátíðina þar sem við mætum í páskabúningum og föndrum páskadót og leitum að páskaeggjum.

Þessi viðburður hentar bæði börnum og fullorðnum. Allir koma með eitthvað með sér fyrir kaffiboð (Pálínuboð) og þegar við erum búin að föndra, leita að páskaeggjum og drekka kaffi þá endum við á að horfa á kvikmynd Astrid Lindgren um Lottu í Ólátagötu um Lottu og systkini hennar í páskabúningum.

Dagskrá:
Allir í páskabúningum bæði börn og fullorðnir eru velkomin í páskaföndur hjá Norræna Félaginu á Óðinsgötu 7. Sænska Félagið verður með efnið í föndrið en takið endilega með ef þið eigið eggjabakka, eggjaskurn og tómar klósettrúllur.

Pálínuboð
Allir taka með sér eitthvað á kaffiboðrið en Sænska Félagið býður upp á kaffi og djús.

Við vonumst til að allir vilji koma í páskabúning, sjá mynd efst í viðburð eða googla "Påskkärring".

Eftir föndrið þá leitum við að páskaeggjum og ef veður leyfir þá gerum við það úti.

Viðburðurinn er ókeypis fyrir alla félagsmenn en kostar 1000 kr á barnið fyrir þá sem eru ekki félagsmenn. Foreldrar borga ekkert. Það kostar aðeins 4500 á fjölskyldu á ári að vera félagsmaður í Sænska Félaginu á Íslandi.

Innifalið í verðinu á viðburðinum er efni í föndur, páskaegg með sælgæti, djús og kaffi.

Skráðu þið gegnum eyðublaðið/slóðina hér uppi svo við vitum hvað er von á mörgum. Mikilvægt að við vitum hversu mörg börn sem mæta.

Vinsamlegast borgið viðburðinn gegnum heimabankann. Það er ekki hægt að borga með korti á staðnum

Bankareikningur Sænska Félagsins
Íslandsbanki
Kennitala 411200-2990
Reikningsnúmer 0515-26-005641
Merkið greiðsluna með ¨påsk¨

Read More
Norræna félagið Norræna félagið

Góugleði Norrænu félaganna á höfuðborgarsvæðinu

Norrænu félögin á höfuðborgarsvæðinu boða til sameiginlegrar góugleði föstudaginn 15. mars nk. í Fjósinu á Hlíðarenda, félagsheimili Valsmanna.

→ Smellið hér til að sjá viðburðinn á Facebook.

Norrænu félögin á höfuðborgarsvæðinu boða til sameiginlegrar góugleði föstudaginn 15. mars nk. í Fjósinu á Hlíðarenda, félagsheimili Valsmanna.

Fjósið opnar kl. 18.00 og gleðin byrjar með hamingjustund og þar gefst gott tækifæri til að spjalla saman áður en formleg dagskrá hefst kl. 19.30.

Í boði er vel úti látinn smáréttamatseðill og síðan verður fjölbreytt dagskrá með gamanmálum með norrænu ívafi, fræðslu á léttu nótunum og menningardagskrá, samsöngur og hljóðfæraleikur fram eftir kvöldi. Barinn verður opinn allt kvöldið.
Verð á mann er 5500 kr. fyrir félagsmenn í Norræna félaginu og maka en 6000 kr. fyrir aðra.

Hvetjum fólk til að mæta og næra félagsandann í Norræna félaginu með nýrri hefð sem vonast er til að geti orðið árlegur viðburður í félagsstarfinu.

Vinsamlega skráið ykkur á hjálagt rafrænt eyðublað, https://forms.office.com/r/Te7Fgb6nFw

Sjáumst á góugleðinni,

Höfuðborgar- og Garðabæjardeild Norræna félagsins.

Read More
Norræna félagið Norræna félagið

Dagur Norðurlanda 2024: Dagskrá 21. mars

Í tilefni dags Norðurlanda blásum við til málþings 21. mars um framtíð norræns samstarfs í breyttu geópólitísku landslagi.

→ Smellið hér til að sjá viðburðinn á Facebook.

21. mars 16:30–18:00 í Norræna húsinu

Í tilefni dags Norðurlanda, sem markar undirritun Helsinki-sáttmálans árið 1962, blásum við til málþings um framtíð norræns samstarfs í breyttu geópólitísku landslagi.

Í heimi sem einkennist af auknum átökum, skautun og fordómum í garð minnihlutahópa, standa Norðurlöndin nú á mikilvægum krossgötum. Þar sem norrænt samstarf stendur frammi fyrir nýjum áskorunum, en einnig tækifærum, hefur Norðurlandaráð ákveðið að hefja endurskoðun á Helsinki-sáttmálanum - sem oft er kallaður norræna stjórnarskráin. Meðal þess sem verið er að meta er hvort norrænt samstarf eigi einnig að taka til öryggis og viðbúnaðar.

Hvaða áhrif gæti þetta víðtæka endurmat á norrænu samstarfi haft för með sér? Hvernig geta Norðurlöndin saman staðið vörð um frið, mannréttindi og öryggi? Hvaða hlutverki gegnir aukin samvinna við að tryggja stöðugleika á umbrotatímum?

Viðburðurinn fer fram á ensku. Léttar veitingar verða í boði þegar dagskrá lýkur kl. 18.00.

Erindi:
Veslemøy Hedvig Østrem, ritstjóri Altinget.no
Hanna Katrín Friðriksson, þingmaður og meðlimur í Norðurlandaráði

Pallborð:
Baldur Þórhallsson, prófessor í stjórnmálafræði
Veslemøy Hedvig Østrem, ritstjóri Altinget.no
Orri Páll Jóhannsson, , þingmaður og meðlimur í Norðurlandaráði
Pär Ahlberger, sendiherra Svíþjóðar
Hrannar Björn Arnarsson, formaður Norræna félagsins

Fundarstjóri:
Pia Hansson, Forstöðumaður Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands

Skipuleggjendur: Norrænt samstarf og Norræna félagið

Read More
Norræna félagið Norræna félagið

Sænsk-íslenski samstarfssjóðurinn — umsóknarfrestur 29. feb

Umsóknarfrestur Sænsk-íslenska samstarfssjóðsins er. Í forgangi á þessu ári eru umsóknir sem tengjast Sænsk-íslenska árinu 2024–2025.

Umsóknarfrestur Sænsk-íslenska samstarfssjóðsins er 29. febrúar kl 23.59 að sænskum tíma.

Hægt er að sækja um ferðastyrki til að styðja íslenska þátttakendur í sænsk-íslenskum samstarfsverkefnum.

Í forgangi á þessu ári eru umsóknir sem tengjast Sænsk-íslenska árinu 2024–2025.

Markmið Sænsk-íslenska samstarfssjóðsins er að stuðla að auknu samstarfi Svíþjóðar og Íslands á sviði menningar, menntunar og vísinda. Sjóðurinn var stofnaður í kjölfar gjafar Svía til Íslendinga á 50 ára afmæli íslenska lýðveldisins 1994.

Um styrki þessa skal sótt á sérstökum eyðublöðum sem er að finna á https://svenskislandskafonden.se/ansok-om-resebidrag

Read More
Norræna félagið Norræna félagið

Lýðháskólastyrkur — umsóknarfrestur framlengdur

Varst þú í lýðháskóla í öðru norrænu landi á skólaárinu 2023–2024? Þá getur þú enn sótt um lýðháskólastyrk Nordplus og Norræna félagsins

UMSÓKNARFRESTUR FRAMLENGDUR TIL 15. FEBRÚAR 2024

Varst þú í lýðháskóla í öðru norrænu landi haustönn 2023 eða nú á vorönn 2024? Þá getur þú enn sótt um lýðháskólastyrk Nordplus og Norræna félagsins. Umsóknarfrestur fyrir nemendur á öllu skólaárinu hefur verið framlengdur til 15. febrúar 2024.

Smelltu hér til að lesa meira og sækja um: www.norden.is/styrkur

Read More