Ragnheiður Inga

Ragnheiður Inga er 23 ára og hefur nýlega lokið störfum á skíðasvæði nálægt bænum Nesbyen í Noregi en hún dvaldi þar vorið 2025. Hún vann á kaffihúsinu og barnum á svæðinu ásamt því að sinna öðrum verkefnum. Hún hvetur ungt fólk til þess að prófa Nordjobb, skella sér af stað og prófa að búa í öðru landi, vegna þess að það getur styrkt mann mikið.

Hvernig er venjulegur vinnudagur hjá þér?

Vinnan er fjölbreytt, það er hægt að vera í alls konar fjölbreyttum störfum á þessum vinnustað. Þú getur unnið til dæmis í lyftunum, eða í skíðabúðinni, að leigja út skíði fyrir fólk. Ég vinn á kaffihúsinu, sem er kallað „skistue“, þar er ég er að útbúa mat og er á kassanum. Ég vinn líka sem barþjónn í því sem kallast „after skii“. Það er opið í fjallinu á milli tíu og fjögur, eftir það getur fólk komið í „after ski“ sem er bar, sem er opinn frá fjögur til átta, og þá er maður barþjónn. Síðan vinn ég líka stundum við að þrífa Airbnb, því það er verið að leigja mikið af bústöðum út á veturna, þannig það þarf nokkra til þess að þrífa þá af og til. 

Í sumar er ég svo komin með aðra vinnu á kaffihúsi í bænum, ég ætlaði bara að vera hérna yfir vetrartímann en síðan hitti ég kærastann minn hérna, sem er norskur, þannig ég held ég sé ekki að fara neitt á næstunni.

Hvar heyrðiru af Nordjobb?

Ég heyrði um Nordjobb alveg fyrir tilviljun. Ég var á bar og hitti tvær stelpur, þær voru báðar frá Svíþjóð. Ég fór eitthvað að spyrja um það hvernig þær hefðu komið til Íslands, og ein þeirra sagðist hafa sótt um í gegnum Nordjobb. Og ég fór svo eitthvað að segja henni að mig langaði svo að fara til Spánar eða eitthvað, að mig langaði að prófa að flytja eitthvert annað. Hún sagði bara „nei farðu miklu frekar til Norðurlandanna, það er miklu betra, það er betur borgað og auðveldara að læra tungumálið“. 

Það er mjög kúl að mynda svona tengsl á milli landanna. Mér finnst eins og Noregur, Svíþjóð, Danmörk og Finnland, séu mjög náin og svo er Ísland einhvern veginn úti í horni, ekki að tala við neinn, við erum alveg partur af hópnum en við erum samt svo einangruð. Mér finnst geggjað að geta blandast í hópinn, af því að ef þú til dæmis talar norsku, þá skiluru mest megnis sænsku og dönsku. Allavega, þá heyrði ég af Nordjobb frá þessari stelpu og ákvað bara að prófa þetta. Ég hafði ekkert að gera um veturinn þannig og ég sótti um nokkur störf hjá Nordjobb og fékk þessa vinnu.

Hvernig var upplifunin að fara ein út?

Ég hafði aldrei búið ein í útlöndum áður, en ég hafði ferðast ein frekar oft. Ég hef farið til Spánar og Frakklands ein, þannig ég er frekar vön því að vera ein úti í útlöndum og að geta reddað mér sjálf og svona. Ég myndi alveg mæla með því fyrst að ferðast einn ef maður er að fara að flytja einn, bara svona upp á sjálfsöryggið og slíkt. Það er samt alls ekki nauðsynlegt. 

Ég var ekki eins hrædd og ég hélt ég yrði, ég var eiginlega bara spennt. Ég var líka bara orðin þreytt á að búa þar sem að ég bjó og ég var til í breytingu, mig langaði bara í eitthvað nýtt. Þannig ég var bara ótrúlega spennt. Ég bý núna í ótrúlega krúttlegum bæ, hann minnir mig einhvern veginn á bæinn í „Gilmore girls“, ótrúlega sætur. 

Ragnheiður ásamt vinkonum, það er gaman að geta rennt sér í brekkunni á frídögum.

Hvað geriru utan vinnutíma?

Ég er oftast með kærastanum mínum. Stundum fer ég yfir í Gol, sem er bær í nágrenninu og kíki í verslunarmiðstöðina þar. Ég fer líka stundum í fjallgöngu með vinkonum mínum eða meðleigjendum mínum. Við kærastinn minn erum til dæmis að fara til Osló í næstu viku. En eins og staðan er núna þá fæ ég ekkert mjög mikið af frídögum. 

Hvernig gengur að læra tungumálið?

Ég er ekki eins dugleg að læra tungumálið og ég ætti að vera, ég þarf að vera duglegri í því en ég skil alveg mikið af því sem fólk segir við mig. Ég skil eiginlega allt sem fólk segir við mig í vinnunni, en ég svara yfirleitt á ensku. 

Ég finn mun á tungumálinu, frá því að ég byrjaði og svo núna. Ég er ekki búin að vera að leggja mjög mikla vinnu í það að læra norsku, samt nær maður hægt og rólega að pikka þetta upp. Þetta er líka svo svipað íslenskunni að það „makear sense“ þegar að þú hugsar um það. Dönskugrunnurinn hjálpar líka smá við að læra norsku.

Ragnheiður bjó í bænum Nesbyen

Hvað var krefjandi í byrjun dvalarinnar?

Í Noregi eru frekar strangar reglur með allt, t.d. í tengslum við meðhöndlun matvæla og hreinhlæti, áfengislög, og þetta er allt frekar flókið þegar maður kemur hingað fyrst. En það sem var erfiðast, var ábyggilega það að þegar að þú kemur til Noregs og ætlar að vinna, þá þarftu að sækja um skattkort, þú þarft að sækja um kennitölu, og þú þarft að panta tíma hjá skattaskrifstofunni, og þetta getur allt verið pínu flókið, ef þú ert að díla við svona hluti í fyrsta skipti, og sérstaklega ef þú ætlar að dvelja lengur en sex mánuði. 

Nú er ég að upplifa nýjar áskoranir, því ég ætla að vera hér lengur. Eins og núna þá er ég að fá mér norskt símanúmer, en til þess að gera það þá þarf ég BankID (rafrænt skilríki í gegnum banka) en til þess að ég fái það þá þarf ég að opna bankabók í Noregi, en til að gera það þarf maður að vera með atvinnusamning eða leigusamning sem er a.m.k. 6 mánuði fram í tímann, og bankareikningurinn þarf síðan að vera í notkun í 3 mánuði áður en þeir geta gefið þér BankID. Það er mjög mikið nýtt hérna, það eru ný lög um allt. Það er nánast allt á norsku og mikið af síðum sem eru bara til á norsku, mér fannst það mjög erfitt. 

Nordjobb leiðbeindi mikið með það samt, ég hefði verið í algjöru rugli ef ég hefði ekki fengið þetta upplýsingaskjali í byrjun, þar fékk maður mikið af góðum ráðum. 

Mér var t.d. ráðlagt að það væri best að lenda í Noregi á virkum degi, til þess að sækja um D númer, sem er svona kennitala, því það er best að fá tíma hjá skattaskrifstofunni þá, svo voru líka upplýsingar um allt sem þurfti að taka með sér og það var mjög hjálplegt. Nordjobb hjálpaði rosalega mikið, ég gat meira að segja hjálpað dönsku vinkonum mínum, sem voru ekki að sækja um í gegnum Nordjobb, með þessu skjali. 

Hvað hefuru lært um sjálfa þig á þessari dvöl?

Ég er orðin miklu meira sjálfbjarga, ég hef alltaf verið frekar smeyk, eða svona ekki haft mikla trú á mér í tengslum við skattinn og alla svona pappírsvinnu. Ég hef aldrei skilið neitt af þessu, ég hef alltaf bara einhvern veginn klórað mig í gegnum þetta en núna skil ég miklu meira og hef miklu meiri trú á sjálfri mér. Maður er líka miklu færari en maður heldur og hlutir reddast alltaf. 

Hvað finnst þér skemmtilegt í vinnunni?

Uppáhalds hluti vinnunnar minnar er í þessu „after skii“ og að vera barþjónn þar. Þar eru allir í geggjað góðu stuði, mjög mikið af Norðmönnum sem koma og Norðmenn eru miklu meira til í að spjalla við ókunnuga þegar að þeir eru í glasi. Mér finnst alltaf mjög gaman að spjalla við þá. Það er líka alltaf eitthvað skemmtilegt að gerast þarna.

Skíðasvæðið, þar sem Ragnheiður vann.

Hvaða þýðingu heldur þú að þessi dvöl geti haft fyrir þig í framtíðinni?

Ég held að þetta muni hafa mjög mikil áhrif á lífi mitt. Ég er einhvern veginn ekki með neitt plan um það að fara aftur til Íslands á næstunni. Ég held ég muni alveg vera hérna í smá tíma. Kærastinn minn er algjört æði og ég sé mikla framtíð hérna. Ég þarf bara að vera duglegri að læra tungumálið. Ef ég fer í háskóla þá held ég að ég muni gera það hérna úti ef það er hægt, ef það er í boði á ensku, ég þarf að kanna það betur.

Ég held að þessi dvöl hafi mikil áhrif á líf mitt, ég er mjög ánægð hérna. Mér finnst bærinn sem ég bý í alveg frábær. Ég myndi segja að það væri svona 20% ódýrara hérna en á Íslandi. Samt eru allir hérna bara „ómægad það er allt svo dýrt hérna“ og ég er bara „hvað meinaru, þetta er æði“. 

Hvað viltu segja við einhvern sem er að íhuga að gerast Nordjobbari?

Ég myndi mæla með þessu fyrir hvern sem er. Ég myndi segja að þú ættir hundrað prósent að gera þetta, hundraðbilljón prósent. Þetta er bara ótrúlega góð reynsla, og þú ert aldrei að fara að sjá eftir því að hafa flutt eitthvert og prófað eitthvað nýtt. Og þó að þú fýlir það ekki, þá hefuru samt þessa reynslu og þá veistu líka að þú getur höndlað eitthvað svona. Þú munt alltaf einhvern veginn getað sagt „já ég bjó ein úti í Noregi“. Mér finnst það geggjað kúl. 

Þú ert að búa til nýjann kafla í lífi þínu. Ég myndi mæla með að allir myndu gera þetta og sérstaklega í gegnum Nordjobb af því að þau hjálpa manni mjög mikið. Þau geta hjálpað manni að finna húsnæði ef að vinnuveitandinn gerir það ekki, þau hjálpa líka með upplýsingaskjal í byrjun og bjóða þér í Facebook hóp með öðrum Nordjöbburum, sem vinna í sama landi og þú. 

Ég myndi 100% mæla með þessu. Mér finnst þetta ótrúlega góð upplifun. Ég vildi að þetta væri miklu vinsælla, það hefur einhvern veginn enginn heyrt um þetta þegar að ég tala um Nordjobb. Þetta opnar líka svo mikið á alls konar, eins og til dæmis bara sjónvarpsefni, þetta er svona hluti af menningu sem þú getur allt í einu orðið partur af, með því að skilja tungumálið. Ef ég hefði ekki komið hingað til Noregs, hefði ég til dæmis aldrei vita að það væri grín á milli Norðurlandanna, að íslenska sé bara eins og norska nema að við endum öll orð á „ur“. 

Ertu með einhver ráð til þeirra sem langar að sækja um?

Ég myndi segja að það eru alveg að fara að koma dagar þar sem að maður er bara „f**k hvað er ég búin að gera“. Haltu samt bara áfram, þetta er allt að fara að reddast, þetta verður allt í góðu, þetta er bara pínu stressandi akkurat núna en það verður í lagi. Þú átt eftir að sjá smá eftir þessu á sumum dögum, þú átt eftir að eiga smá ömurlega daga þar sem þig langar aftur heim. En þetta reddast, haltu áfram, þetta á eftir að vera mjög ógnvekjandi og þú átt eftir að fá heimþrá ef þú ert úti ein. Þú átt samt að lokum ekki eftir að sjá eftir þessu og þú átt eftir að læra svo mikið um sjálfa þig og hafa miklu meiri trú á sjálfri þér eftir þessa upplifun. Góðu dagarnir eru MIKLU fleiri en þeir slæmu, þú munt kynnast geggjuðu nýju fólki, eignast nýja vini, sjá nýja staði, smakka nýjann mat, upplifa nýja menningu og sjá að lífið er stutt þannig þú ættir að prófa að búa í öðru landi.