Aðalfundur Norræna félagsins á Akureyri í Hofi 22. júní 2025 kl 16.00

Aðalfundur Norrænafélagsins á Akureyri verður haldinn sunnudaginn 22. júní næstkomandi, í menningarhúsinu Hofi, Mói bistro. Aðalfundurinn hefst kl. 16:00
Helsta verkefni fundarins er að afgreiða tillögu um sameingu félagsins við aðrar félagsdeildir Norræna félagsins á Norðurlandi (á Siglufirði og Ólafsfirði) undir merkjum Norræna félagsins á Norðurlandi.

Í samræmi við lög félagsins er því boðað til aðalfundarins með svofelldri dagskrá:

1. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
2. Skýrsla stjórnar um störf og fjárhag félagsdeildarinnar.
3. Tillaga um sameiningu félagsins við aðrar félagsdeildir Norræna félagsins á Norðurlandi:
" Aðalfundur NF á Akureyri samþykkir að taka þátt í fyrirhugaðri sameiningu félagsdeilda Norræna félagsins á Norðurlandi og leggja félagatal og eignir félagsdeildarinnar til hinnar nýju, sameinuðu félagsdeildar."
4. Tillaga um frestun kosninga til embætta félagsins og boðun aukaaðalfundar:
"Aðalfundur samþykkir að boða til aukaaðalfundar síðar á árinu þar sem tekin verði endanleg afstaða til sameiningar félagsdeildarinnar við aðrar félagsdeildir Norræna félagsin á Norðurlandi og felur formanni NF að undirbúa tillögur að nýrri stjórn og nýju nafni hins sameinaða félags, í samráði við formenn annarra félagsdeilda sem taka munu þátt í sameiningunni. Kjöri formanns, stjórnar og skoðunarmanna félagsdeildarinnar er vísað til komandi aukaaðalfundar, eða hinnar nýju sameinuðu félagsdeildar."
5. Önnur mál.

Allt félagsfólk NF á Akureyri er velkomið til fundarins og hægt er að skrá sig í félagið á heimasíðu Norræna félagsins www.norden.is