Norræn nálgun í námi barna og ungmenna
Norden i skolen og Norræna félagið standa fyrir norrænni málstofu um tungumál, tengsl og tækifæri í skólastarfi í Norræna húsinu miðvikudaginn 21. maí 2025, kl. 14:00-16:30.. Viðburðurinn er haldinn með stuðningu frá A.P. Møller sjóðnum.
Viðburðurinn er ætlaður öllum þeim sem hafa áhuga á norrænum málum og málefnum, bæði innan og utan skólakerfisins. Málstofan er ókeypis og opin öllum, en hún er sérstaklega ætluð þeim sem kenna á unglingastigi og í framhaldsskólum.
Skráning fer fram hér: https://forms.office.com/e/1THYTkkNhL
Viðburðurinn fer fram á norrænu tungumálunum íslensku, dönsku og norsku. Þátttakendur nota það tungumál sem þeim finnst eðlilegast að tala.
Dagskrá:
14.00-14.15 - Opnun og umfjöllun um Norræna félagið
Ásdís Eva Hannesdóttir framkvæmdastjóri Norræna félagsins á Íslandi (IS)
Fjallað verður um mikilvægi norræns samstarfs og þátttöku barna og ungmenna í því samhengi, farið verður yfir vinnu og þátttöku Norræna félagsins í þeim verkefnum sem félagið hefur tekið þátt í á sviði tungumála og tengsla ungmenna á Norðurlöndunum.
14.15-14.30 - Starfsemi Samtaka Norrænu félaganna
Morten Fabricius skrifstofustjóri Samtaka Norrænu félagana (DK)
Hann fer yfir vinnu samtakanna undanfarið og pólitískar áherslur í tengslum við ungt fólk.
14.30-15.00 - Norden i skolen og möguleikar í kennslu
Elva Dögg Sigurðardóttir (IS) og Ingrid Lorange (NO)
Fjallað verður um það hvernig hægt er að nýta heimasíðu Norden í skolen til að auka skilning nemenda á norrænum tungumálum og þekkingu þeirra á nágrannalöndunum. Farið verður yfir ókeypis kennsluefni sem auðveldar vinnuna með norrænt sjónarhorn fyrir augum, ekki einungis í tungumálakennslu heldur einnig í sögu og samfélagsgreinum. Farið verður yfir möguleika þess að sækja um sem “vinabekkur” með bekk frá öðru norrænu landi og greint verður frá norræna skólaspjallinu.
15.00-15.15 Kaffihlé
15.15-16.00 - Virkjun tungumáls og reynsluheims barna og ungmenna
Kristín R. Vilhjálmsdóttir (IS)
Kristín R. Vilhjálmsdóttir er sjálfstætt starfandi ráðgjafi á Norðurlöndunum og hugmyndasmiður verkefnisins Menningarmót. Um þessar mundir leiðir hún m.a. Nordplusverkefnið SPIN (Sprogvenner i Norden - kunsten at forstå hinanden). Kristín mun fjalla um það hvernig við getum opnað gluggann að samfélaginu, og um leið að heiminum sem umkringir okkur, með því að virkja reynsluheim og tungumál barna og ungmenna. Erindið fjallar meðal annars um skapandi leiðir til að virkja fjölbreytta menningu og tungumál í skólastarfi, stuðla að þátttöku og efla inngildingu og vinna með sjálfsmynd. Sem dæmi kynnir hún norræna verkefnið SPIN og kennsluaðferðina Menningarmót.
16.00-16.15 - Kostir þess að vinna með norræn tungumál í skólastarfinu
Rasmus Steenberg Christiansen (DK)
Rasmus ræðir kosti þess að vinna með norræn tungumál frá sjónarhorni kennara og fjallar um þær leiðir sem hann hefur farið í því að virkja sína nemendur.
16:15-16:30 - Tækifæri til að spjalla og spyrja spurninga
Skráning fer fram hér: https://forms.office.com/e/1THYTkkNhL
Viðburðinum verður einnig streymt. https://vimeo.com/event/5145361