Dagur Norðurlanda; Framtíð lýðræðisins
Við höldum uppá Dag Norðurlanda með ráðstefnu í Norræna húsinu þriðjudaginn 24. mars kl 09.00. Dagskráin verður tileinkuð stöðu lýðræðisins með tilliti til ástandsins í heiminum. Danski sjónvarpsmaðurinn Clement Kjersgaard verður með erindi um hvort lýðræði sé á undanhaldi. Viðburðurinn verður streymt. Ath. erindi og pallborð verða á ensku
Þann 24. mars verður viðburður i tilefni Dags Norðurlanda. Viðburðurinn verður í Norræna húsinu og hefst kl 09.00. Sjá nánar hér
Lýðræðið stendur á krossgötum. Um allan heim er það undir vaxandi þrýstingi, þar sem rangfærslur, minnkandi traust á stofnanir, vaxandi skautun, erlend afskipti og vaxandi öfgahyggja grafa undan undirstöðum lýðræðislegra samfélaga.
Norðurlönd hafa lengi verið þekkt fyrir opin, traustbyggð lýðræði og sterkar opinberar stofnanir. En með hraðri vexti stórtæknifyrirtækja er upplýsingalandslagið að breytast. Alþjóðlegir stafrænir vettvangar, knúnir áfram af viðskiptahvötum og ógegnsæjum reikniritum, gegna nú lykilhlutverki í að móta opinbera umræðu, stjórnmálahegðun og upplýsingaflæði.
Þessi breyting setur fordæmalausar áskoranir fyrir norræn lýðræði og vekur upp áleitna spurningu: Hvernig hefur hún áhrif á yngri kynslóðina?
Ungmenni nútímans eru að þroskast í stafrænu umhverfi sem er gegnsýrt af rangfærslum, skautun og reikniritum. Hvernig munu þau halda lýðræðinu áfram ef traust þeirra á samborgurum, opinberum stofnunumm og jafnvel á grunngildum lýðræðisins er laskað?
Þegar við komum saman á Degi Norðurlanda 2026 munum við skoða hvernig hægt er að styrkja lýðræðið, hvetja til þátttöku í samfélaginu og búa næstu kynslóð undir að halda uppi þeim gildum sem eru kjarninn í norræna líkaninu.
Húsið opnar kl 08.30 þar sem kaffi og morgunhressing verður í boði.
Nauðsynlegt að skrá sig hér. Fundurinn verður í beinu streymi
Dagskrá:
Ávarp: Dagbjört Hákonardóttir forseti Íslandsdeildar Norðurlandaráðs
Erindi: Clement Kjersgaard, Anchor/editor with the Danish Broadcasting Corporation (DR) – Is Democracy on the Way Out?
Panel discussion:
- Ragnheiður Geirsdóttir, President of the Youth Council of Iceland – LUF.
- Dagbjört Hákonardóttir, Chair of the Icelandic Delegation to the Nordic Council.
- Maximilian Conrad, Professor of Political Science at the University of Iceland.
- Skúli Bragi Geirdal, Head of the Icelandic Safer Internet Centre.
- Ingunn Lára Kristjánsdóttir, Social media journalist at RÚV.
Moderator: Eyrún Magnúsdóttir, journalist.
The event will be held in English and is organized by the Nordic Council of Ministers and the Nordic Association.
Færeysku kosningarnar – um hvað er kosið?
Opinn fundur Höfuðborgardeildar Norræna félagsins um kosningarnar í Færeyjum verður í húsakynnum félagsins, Óðinsgötu 7. Fundurinn verður á Degi Norðurlanda 23. mars og hefst kl 17.00.
Allt áhugafólk um færeysk málefni velkomin.
Kosið verður í Færeyjum 26. mars 2026. Af því tilefni stendur Norræna félagið á höfuðborgarsvæðinu fyrir opnum fundi um kosningarnar mánudaginn 23. mars frá 17.00-18.30. Þar munu þau Hjálmar Waag Árnason frv. þingmaður og áhugamaður um færeysk málefni, Dr. Hanna í Horni sendikvinna Færeyja á Íslandi og Steinunn Þóra Árnadóttir, frv. þingmaður og formaður Vestnorræna ráðsins segja okkur frá helstu málefnum sem brenna á Færeyingum í aðdraganda kosninganna.
Ragnheiður Helga Þórarinsdóttir, formaður Norræna félagsins á höfuðborgarsvæðinu mun stýra umræðum.
Allt áhugafólk um færeysk málefni velkomið!
Nánar hér.
Dönsku kosningarnar
Opinn fundur Norræna félagsins á Höfuðborgarsvæðinu þann 19. mars vegna þingkosninganna í Danmörku sem fara fram 24. mars. Fundurinn verður í húsakynnum Norræna félagsins, Óðinsgötu 7 og hefst kl 17.00. Fundarstjóri Bogi Ágústsson
Þann 19. mars n.k. stendur Norræna félagið, Höfuðborgardeild fyrir opnum fundi um þingkosningarnar í Danmörku sem verða 24. mars.
Viðburðurinn verður í húsakynnum Norræna félagsins, Óðinsgötu 7 og hefst kl 17.00 og stendur til 18.30.
Sérstakir gestir á fundinum verða Adam Grønholm frá danska sendiráðinu með reynslu frá Christiansborg og ráðuneytum í Danmörku og Borgþór Arngrímsson blaðamaður og mikill kunnáttumaður um dönsk málefni.
Hinn eini sanni Bogi Ágústson verður fundarstjóri og stýrir umræðum.
Allt áhugafólk um dönsk stjórnmál velkomið.
Nánar hér.
Hvernig er samstarfi norrænna þingmanna háttað og hvað brennur á þeim nú um stundir?
Formaður Íslandsdeildar Noðurlandaráðs Dagbjört Hákonardóttir og annar varaformaður Íslandsdeildar Vestnorrænaráðsins Ása Berglind Hjálmarsdóttir segja frá starfi ráðanna, áherslum og áskorunum og svara fyrirspurnum, fimmtudaginn 19. mars kl. 19:30 í Bókasafni Suðurnesjabæjar.
Dagbjört Hákonardóttir og Ása Berglind Hjálmarsdóttir
Formaður Íslandsdeildar Noðurlandaráðs Dagbjört Hákonardóttir og annar varaformaður Íslandsdeildar Vestnorrænaráðsins Ása Berglind Hjálmarsdóttir segja frá starfi ráðanna, áherslum og áskorunum og svara fyrirspurnum, fimmtudaginn 19. mars kl. 19:30 í Bókasafni Suðurnesjabæjar.
Norrænt samstarf hefur sjaldan verið mikilvægara og samstarf norrænna þingmanna leikur þar eitt af lykilhlutverkunum. Þær Dagbjört og Ása segja frá hvernig ráðin starfa og um hvað sé helst rætt nú um stundir þegar óvissa og ófriður ríkir svo víða. Einnig hvers virði samstarfið er fyrir okkur Íslendinga. Staða Grænlands í norrænu samstarfi og hvernig stuðningi við Grænlendinga er háttað nú þegar allra augu beinast að þeim og ásælni Bandaríkjamanna í yfirráð yfir Grænlandi, ber einnig á góma og margt fleira sem varðar norrænt samstarf þjóðþinganna.
Missið ekki af þessum áhugaverða viðburði Norræna félagsins á Suðurnesjum. Viðburðurinn er öllum opinn.
Nánar hér
Við auglýsum eftir verkefnastjóri - Afleysing vegna fæðingarorlofs
Verkefnastjóri hjá Norræna félaginu - Afleysing vegna fæðingarorlofs
Norræna félagið leitar að metnaðarfullum verkefnastjóra til að stýra Nordjobb á Íslandi, lýðháskólastyrkjum Norræna félagsins og öðrum tilfallandi verkefnum félagsins. Um er að ræða 100% starf verkefnastjóra til 12 mánaða frá 1. júní 2026. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf á vormánuðum og unnið nokkrar klukkustundir á viku í samvinnu við núverandi verkefnastjóra.
Helstu verkefni:
Umsjón með Nordjobb á Íslandi
Samskipti við vinnuveitendur og umsækjendur innan Nordjobb verkefnisins.
Samvinna við starfsfólk og verkefnastjóra Nordjobb á hinum Norðurlöndunum.
Skipulagning og framkvæmd kynningarstarfsemi Nordjobb til að efla þátttöku íslenskra ungmenna.
Skrif á umsóknum og skýrslum.
Ábyrgð á þróun og framkvæmd verkefna tengdum atvinnu og menntun ungmenna á Norðurlöndunum.
Önnur tilfallandi verkefni félagsins.
Hæfnikröfur:
Framúrskarandi samskiptahæfni
Skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð
Sterkur áhugi á málefnum ungmenna á Norðurlöndunum
Mjög góð kunnátta í einu skandinavísku tungumáli (danska, norska eða sænska) í rituðu og töluðu máli
Góð íslenskukunnátta í rituðu og töluðu máli
Þekking á vinnumarkaðsmálum er kostur.
Góð þekking á notkun samfélagsmiðla er einnig kostur.
Við bjóðum upp á:
Frábær tækifæri til að þróast í starfi
Regluleg ferðalög innan Norðurlandanna tengd verkefnum
Skrifstofuaðstöðu í miðbæ Reykjavíkur
Frekari upplýsingar:
Um er að ræða 100% starfshlutfall frá júní 2026 til 12 mánaða. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf nokkrum mánuðum fyrr, í hlutastarfi og unnið samhliða núverandi verkefnastjóra.
Viðkomandi þarf að hafa mikla hæfni í að vinna á fjölmenningarlegum vettvangi þar sem samstarfsfólk er staðsett á öllum Norðurlöndunum.
Ef þú hefur áhuga á að taka þátt í spennandi verkefnum á sviði atvinnu og menntunar ungmenna á Norðurlöndunum, þá hvetjum við þig til að senda inn umsókn með því að smella hér.
Umsóknarfrestur er til og með 22. febrúar 2026. Allar nánari upplýsingar eru veittar á norden@norden.is
Framhaldsaðalfundir Norrænu félaganna á Akureyri, Siglufirði og Ólafsfirði 31. janúar n.k.
Framhaldsaðalfundir og stofnfundur hins nýja sameinaða félags, Norræna félagið á Norðurlandi, verður haldinn laugardaginn 31. janúar nk kl. 11:00 í Zontahúsinu á Akureyri.
Við hvetjum alla til að mæta og taka þátt í starfi félagsins. Hægt er að skrá sig í félagið hér
Boðað er til framhaldsaðalfundar í Norræna félaginu á Akureyri, Siglufirði og Ólafsfirði laugardaginn 31. janúar kl. 11:00 í Zontahúsinu, Aðalstræti 54 á Akureyri. Fundurinn er jafnframt stofnfundur nýrrar sameinaðrar félagsdeildar - Norræna félagsins á norðurlandi.
Dagskrá
1. Kjör fundarstjóra og fundarritara.
2. Tillaga um sameiningu Norræna félagsins í Ólafsfirði, Siglufirði og á Akrueyri.
3. Tillaga um lög og nafn hins sameinaða félags.
4. Kjör formanns.
5. Kjör stjórnar, varamanna og félagslegs skoðunarmanns.
6. Áskoranir og tækifæri Norrænu félaganna á Íslandi. Hrannar B. Arnarsson formaður Norræna félagsins á Íslandi.
7. Almennar umræður.
8. Önnur mál.
Boðið er upp á kaffi og meðlæti.
Nýtt félagsfólk velkomið - skráning á www.norden.is
Sjáumst sem flest!
Norðurlöndin – kaffiklúbbur eða stórveldi
Grímulaust vald hinna sterku grefur nú undan alþjóðareglum og siðuðum samskiptum þjóða. Meðal annars þess vegna verða Norðurlöndin í mun ríkari mæli að koma fram sameiginlega á alþjóðavettvangi í stað þess að birtast sem átta smáríki. Þannig skrifa Hrannar Arnasson, Lars Barfoed, Maiken Poulsen Englund, Pyry Niemi og Torbjörn Nyström, formenn Norrænu félaganna á Íslandi, Danmörku, Álandseyjum, Svíþjóð og Færeyjum.
Formenn Norrænu félaganna á Færeyjum, Danmörk, Íslandi, Svíþjóð og Álandseyjum
Grímulaust vald hinna sterku grefur nú undan alþjóðareglum og siðuðum samskiptum þjóða. Meðal annars þess vegna verða Norðurlöndin í mun ríkari mæli að koma fram sameiginlega á alþjóðavettvangi í stað þess að birtast sem átta smáríki. Þannig skrifa Hrannar Arnasson, Lars Barfoed, Maiken Poulsen Englund, Pyry Niemi og Torbjörn Nyström, formenn Norrænu félaganna á Íslandi, Danmörku, Álandseyjum, Svíþjóð og Færeyjum.
Síðustu 100 árin hafa sýnt að þegar veröldin verður ótryggari fær hugsjónin um norrænt samstarf aukin hljómgrunn og mikilvægi samstarfsins eykst. En sannleikurinn er líka sá að norrænu samstarfi hefur um all langt skeið verið ýtt til hliðar af stjórnvöldum og það meðhöndlað sem annars flokks.
Óvissan í heiminum hefur nú sett norrænt samstarf á dagskrá. Þær aðstæður verðum við að taka alvarlega og tryggja að fyrri tíma glötuð tækifæri til skuldbindandi norræns samstarfs endurtaki sig ekki. Ástæðan er einföld: Framtíðaráskoranir á okkar svæði – utanríkismál, öryggis- og varnarmál, loftslag, orka, samgöngur og þróunin á Norðurslóðum – geta engin landanna leyst ein síns liðs. Þess vegna verðum við í mun ríkari mæli að starfa sem norræn sambandsríki.
Frá aldalöngum fjandskap til sameiginlegra gilda
Norrænu félögin voru flest stofnuð fljótlega eftir fyrri heimsstyrjöldina, til að efla frið og samstöðu Norðurlandanna. Fyrir 100 árum var langt frá því tryggt að norrænt samstarf myndi festa rætur. Löndin höfðu ítrekað háð stríð og lagt undir sig hvert annað; sum voru ný sjálfstæð, önnur börðust fyrir sjálfstæði. Samt óx hugmyndinni fiskur um hrygg. Árangurinn í dag er öllum ljós; samfélag átta landa sem deila gildum og hafa skapað eitt stöðugasta, friðsælasta og mest velmegandi svæði sögunnar. Heimurinn í dag hefur sannarlega þörf fyrir samstíga Norðurlönd sem geta gengið á undan og verið fyrirmynd alþjóðlega á fjölmörgum sviðum.
Þrátt fyrir að stjórnmálamenn tali oft hlýlega um mikilvægi norræns samstarfs hafa raunverulegar áherslur þeirra og aðgerðir síðustu ár verið aðrar. Undanfarna áratugi hefur samstarfið færst aftar í forgangsröðinni og veikst umtalsvert. Í dag vegur það mun minna en um síðustu aldamót, bæði fjárhagslega og pólitískt. Til dæmis starfa einungis um 120 manns fyrir sameiginlegar norrænar stofnanir, á meðan Evrópusambandið hefur 32.000 starfsmenn til stefnumótunar og framkvæmdar.
Kórónuveirukreppan var skýrasta dæmið um afleiðingar margra ára vanrækslu, hún sýndi berlega að norrænt samstarf stóðst ekki prófið þegar á reyndi.
Ónýtt tækifæri norræns samstarfs
En þróuninni er hægt að snúa við. Líkt og fyrir 100 árum, þegar fjandskapur breyttist í samstöðu, getum við í dag skipað sameinuðum Norðurlöndum í fremstu röð á alþjóðavettvangi. Sameinuð eru Norðurlöndin eitt af tíu stærstu hagkerfum heims og löndin eru í forystu þegar kemur að loftslagsmálum, mannréttindum, velferð og innviðum. Möguleikarnir eru gríðarlegir – ef við þorum að nýta þá.
Ný norræn stjórnarskrá!
Þegar Norrænu félögin tala fyrir sterkara og meira skuldbindandi norrænu samstarfi snýst það um að laga samstarfið að þeirri veröld sem við lifum í nú þegar.
Vilji Norðurlöndin takast á við heimsfaraldra, loftslagsvá, orkuöryggi, öryggis- og varnarmál og framtíðar flóttamannastrauma með kröftugri hætti – og vera samkeppnishæf við Bandaríkin og Kína – þarf að endurskoða Helsingforssamninginn, „stjórnarskrá“ norræns samstarfs. Hann verður að aðlaga að nútímanum.
Ný norræn stjórnarskrá á m.a. að tryggja að Grænland, Færeyjar og Álandseyjar fái sjálfstæða stöðu í samstarfinu og að mikilvæg málefnasvið sem í dag eru utan norræns samstarfs verði hluti af því.
Það þarf að efla norræna samkennd meðal almennra borgara. Sameiginlegt norrænt ríkisfang, sameiginlegt auðkenni og vegabréf myndu t.d. styrkja norræna sjálfsmynd okkar allra. Að auki ætti að koma á nýrri þingdeild innan Norðurlandaráðs sem kosið væri til í beinni kosningu á fjögurra ára fresti. Norrænt þing, kjörið með beinni kosningu myndi tengja Norðurlöndin þéttar saman og styrkja lýðræðislegan grundvöll samstarfsins til muna.
Þá teljum við brýna þörf á að endurskoða samstöðuregluna sem allt starf Norræna ráðherraráðsins byggir á. Of lengi hefur ein ríkisstjórn getað stöðvað framfarir, sem í raun þýðir að sá sem vill minnst ræður mestu. Kannski ættu þau lönd sem vilja ganga hraðar fram að fá tækifæri til þess – án þess að hin geti stöðvað ferlið.
Sameinuð Norðurlönd
Norðurlöndin þurfa að geta tekist á við farsóttir, loftslagsvá, orkuöryggi, öryggis- og varnarmál og framtíðar flóttamannastrauma með kröftugri hætti en hingað til. Sameinuð Norðurlönd eru ekki keppinautar Evrópusambandsins eða NATO, heldur aukin styrkur fyrir Evrópu í heild.
Allt þetta leiðir að lykilspurningunni: Hvað viljum við með samstarf Norðurlanda?
Heimurinn er í uppnámi. Núverandi heimsmynd og skipan alþjóðamála er ógnað og hættan er að vald hins sterka muni ráða för. Ef við viljum verja og styrkja þau gildi sem einkenna Norðurlöndin – lýðræði, jafnræði, traust og réttarríki – verðum við að standa miklu þéttar saman.
Vilji Norðurlöndin að samstarf þeirra verði meira en huggulegur kaffiklúbbur kallar það á pólitískt þor, framtíðarsýn og uppgjör við þá smáríkjahugsun sem hér hefur ráðið för.Við verðum í mun ríkari mæli að skuldbinda okkur til að koma fram og beita okkur sem það stórveldi sem Norðurlöndin geta verið – sameinuð sem eitt.
Hrannar Björn Arnarsson, formaður Norræna félagsins á Íslandi
Lars Barfoed, formaður Norræna félagsins í Danmörku
Maiken Poulsen Englund, formaður Norræna félagsins á Álandseyjum
Pyry Niemi, formaður Norræna félagsins í Svíþjóð
Torbjörn Nyström, formaður Norræna félagsins í Færeyjum
Nordjobb fagnar 40 ára afmæli ........og þér er boðið
Í fjóra áratugi hefur Norræna félagið í gegnum samnorrænt verkefni þess, NORDJOBB, aðstoðað ungt fólk á Norðurlöndunum við að finna starf, sækja sér nýja reynslu og upplifa það að búa í öðru norrænu landi.
Að því tilefni ætlum við að fagna saman og líta yfir farinn veg. Gestum gefst tækifæri til þess að hlusta á reynslusögur fyrrum Nordjobbara og vinnuveitenda. Við fáum einnig fleiri gesti til liðs við okkur sem hafa tengingu við verkefnið og aðra aðila úr heimi stjórnmálanna sem vinna að norrænum málefnum.
40 ára afmælisveisla Nordjobb verður haldin í Norræna húsinu, miðvikudaginn 22. október 2025 kl 15:00 - 17:00
Í fjóra áratugi hefur Norræna félagið í gegnum samnorrænt verkefni þess, NORDJOBB, aðstoðað ungt fólk á Norðurlöndunum við að finna starf, sækja sér nýja reynslu og upplifa það að búa í öðru norrænu landi.
Að því tilefni ætlum við að fagna saman og líta yfir farinn veg. Gestum gefst tækifæri til þess að hlusta á reynslusögur fyrrum Nordjobbara og vinnuveitenda. Við fáum einnig fleiri gesti til liðs við okkur sem hafa tengingu við verkefnið og aðra aðila úr heimi stjórnmálanna sem vinna að norrænum málefnum.
Dagskrá:
Húsið opnar 15:00 og dagskrá hefst 15:15
• Opnun - Ásdís Eva Hannesdóttir framkvæmdastjóri Norræna félagsins
• Stefán Vilbergsson fyrrum verkefnastjóri Nordjobb
• Dagbjört Hákonardóttir - Þingmaður og formaður Íslandsdeildar Norðurlandaráðs
• Jóhann Gísli Jónsson Nordjobbari
16:00 HLÉ / Veitingar og spurningakeppni
• Jóhanna Bryndís Bjarnadóttir deildarstjóri deildar svæðisbundins samstarfs, skrifstofu alþjóðapólitískra málefna og stefnumótunar í Utanríkisráðuneytinu
• Jóhann Kristjánsson fjármála- og mannauðsstjóri hjá Norræna húsinu
• Kristín Taiwo Reynisdóttir Nordjobbari
• Lokun – Elva Dögg Sigurðardóttir verkefnastjóri Nordjobb á Íslandi
Hægt verður að gæða sér á veitingum, taka þátt í spurningakeppni og skoða tímalínu Nordjobb sem býður uppá alls kyns skemmtilegan og óvæntan fróðleik.
Vinsamlegast skráðu þig hér að neðan svo við getum áætlað magn veitinga: https://forms.office.com/e/ECyHdiJjzX
Viðburðurinn er opinn öllum og vonumst við til þess að sjá sem flesta með okkur á þessum skemmtilegu tímamótum!
Framhaldsaðalfundur deilda Norræna félagsins á Ísafirði og Patreksfirði
Boðað er til framhaldsaðalfundar í Norræna félaginu á Ísafirði og Patreksfirði laugardaginn 18. október nk. kl. 13:15 í Safnahúsinu á Ísafirði, við Eyrartún.
Boðið er uppá kaffiveitingar.
Sjáumst sem flest og tökum þátt í starfi hins sameinaða Norræna félags Vestfjarða frá fyrsta degi. Hægt er að skrá sig í Norræna félagið hér:
Boðað er til framhaldsaðalfundar í Norræna félaginu á Ísafirði og Patreksfirði laugardaginn 18. október nk. kl. 13:15 í Safnahúsinu á Ísafirði, við Eyrartún.
Dagskrá
1. Kjör fundarstjóra og fundarritara.
2. Tillaga um sameiningu Norræna félagsins á Ísafirði og Norrænafélagsins á Patreksfirði.
3. Tillaga um lög og nafn hins sameinaða félags.
4. Kjör formanns.
5. Kjör stjórnar, varamanna og félagslegs skoðunarmanns.
6. Áskoranir og tækifæri Norrænu félaganna á Íslandi. Hrannar B. Arnarsson formaður Norræna félagsins á Íslandi.
7. Almennar umræður.
8. Önnur mál.
Boðið er uppá kaffiveitingar.
Sjáumst sem flest og tökum þátt í starfi hins sameinaða Norræna félags Vestfjarða frá fyrsta degi. Hægt er að skrá sig í Norræna félagið hér:
Norræna félagið á Suðurnesjum stofnað!
Þann 20. september samþykkti aðalfundur Norrænu félaganna í Vogum, Reykjanesbæ og Suðurnesjabæ að sameina félögin frá og með þeim degi í eitt félag. Félagið heitir Norræna félagið á Suðurnesjum.
Lög voru einnig samþykkt fyrir félagið og stjórn kosin ásamt skoðunarmönnum.
Stjórn Norræna félagsins á Suðurnesjum skipa Oddný G. Harðardóttir formaður, Jónína Holm, Eydís Hentze Pétursdóttir, Ivan Frandsen, Johan D. Jonsson og Margrét Ásgeirsdóttir.
Tilgangur félagsins er að efla norrænt samstarf á öllum sviðum samfélagsins, efla frið og skilning Norðurlandaþjóðanna þeirra á milli og annarra þjóða út á við.
Þann 20. september samþykkti aðalfundur Norrænu félaganna í Vogum, Reykjanesbæ og Suðurnesjabæ að sameina félögin frá og með þeim degi í eitt félag. Félagið heitir Norræna félagið á Suðurnesjum.
Lög voru einnig samþykkt fyrir félagið og stjórn kosin ásamt skoðunarmönnum.
Tilgangur félagsins er að efla norrænt samstarf á öllum sviðum samfélagsins, efla frið og skilning Norðurlandaþjóðanna þeirra á milli og annarra þjóða út á við.
Tilgangi sínum hyggst félagið ná með að stuðla að samskiptum milli einstaklinga, félagsdeilda og byggðarlaga og við systurfélög sín á Norðurlöndum innan vébanda Sambands Norrænu félaganna í samstarfi við Norræna félagið á Íslandi.
Hugur var í fundarmönnum og spenningur fyrir að takast á við áskoranir og tækifæri Norrænu félaganna líkt og formaður Norræna félagsins á Íslandi, Hrannar B. Anrarsson ræddi á fundinum.
Stjórn Norræna félagsins á Suðurnesjum skipa Oddný G. Harðardóttir formaður, Jónína Holm, Eydís Hentze Pétursdóttir, Ivan Frandsen, Johan D. Jonsson og Margrét Ásgeirsdóttir.
Varamenn í stjórn eru Þorvaldur Örn Árnason og Ragnheiður Gunnarsdóttir.
Skoðunarmenn reikninga félagsins eru Guðrún Stefánsdóttir og Halla Þórhallsdóttir.
Íbúar Suðurnesja eru hvattir til að skrá sig í félagið og taka þá í uppbyggingu og verkefnavali sem leggur grunn að farsælu starfi Norræna félagsins á Suðurnesjum.
Með því að smella á þennan þráð er hægt að skrá sig í félagið: https://www.norden.is/skraning