Ásdís Hannesdóttir Ásdís Hannesdóttir

Aðalfundur deildar Norræna félagsins á Ísafirði

Aðalfundur deildar Norræna félagsins á Ísafirði verður haldinn miðvikudaginn 10. september nk. í veitingastaðnum Dokkunni, Sindragötu 17, Ísafirði og hefst hann kl. 17:00.

Helsta verkefni fundarins er að afgreiða tillögu um sameingu deildar félagsins við deild Norræna félagsins í Vestur-Barðastrandarsýslu (Vesturbyggð) undir merkjum nýrrar sameinaðar félagsdeildar Norræna félagsins á Vestfjörðum.

Aðalfundur deildar Norræna félagsins á Ísafirði verður haldinn miðvikudaginn 10. september nk. í veitingastaðnum Dokkunni, Sindragötu 17, Ísafirði og hefst hann kl. 17:00.

Helsta verkefni fundarins er að afgreiða tillögu um sameingu deildar félagsins við deild Norræna félagsins í Vestur-Barðastrandarsýslu (Vesturbyggð) undir merkjum nýrrar sameinaðar félagsdeildar Norræna félagsins á Vestfjörðum.

 

Í samræmi við ákvæði laga sem gilda fyrir deildir Norræna félagsins er því boðað til aðalfundarins með svofelldri dagskrá:

1. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
2. Skýrsla stjórnar um störf og fjárhag félagsdeildarinnar.
3. Svohljóðandi tillaga um sameiningu félagsdeildar Norræna félagsins á Ísafirði við félagsdeild Norræna félagsins í Vestur-Barðastrandarsýslu verði borin upp:  
" Aðalfundur deildar Norræna félagsins á Ísafiðri samþykkir að taka þátt í fyrirhugaðri sameiningu félagsdeilda Norræna félagsins á Vestfjörðum og leggja félagatal og eignir félagsdeildarinnar til hinnar nýju, sameinuðu félagsdeildar."
4. Tillaga um frestun kosninga til embætta félagsins og boðun aukaaðalfundar:
"Aðalfundur samþykkir að boða til aukaaðalfundar síðar á árinu þar sem tekin verði endanleg afstaða til sameiningar félagsdeildarinnar við félagsdeild Norræna félagsin á Vestfjörðum og felur formanni Norræna félagsins að undirbúa tillögur að nýrri stjórn og nýju nafni hins sameinaða félags, í samráði við stjórn beggja félagsdeilda.  Kjöri formanns, stjórnar og skoðunarmanna félagsdeildarinnar er vísað til komandi aukaaðalfundar, eða hinnar nýju sameinuðu félagsdeildar."
5. Önnur mál.

 

Read More
Ásdís Hannesdóttir Ásdís Hannesdóttir

Aðalfundur Norræna félagsins á Akureyri í Hofi 22. júní 2025 kl 16.00

Aðalfundur Norræna félagsins á Akureyri verður haldinn sunnudaginn 22. júní næstkomandi, í menningarhúsinu Hofi, Mói bistro. Aðalfundurinn hefst kl. 16:00
Helsta verkefni fundarins er að afgreiða tillögu um sameingu félagsins við aðrar félagsdeildir Norræna félagsins á Norðurlandi (á Siglufirði og Ólafsfirði) undir merkjum Norræna félagsins á Norðurlandi.

Aðalfundur Norrænafélagsins á Akureyri verður haldinn sunnudaginn 22. júní næstkomandi, í menningarhúsinu Hofi, Mói bistro. Aðalfundurinn hefst kl. 16:00
Helsta verkefni fundarins er að afgreiða tillögu um sameingu félagsins við aðrar félagsdeildir Norræna félagsins á Norðurlandi (á Siglufirði og Ólafsfirði) undir merkjum Norræna félagsins á Norðurlandi.

Í samræmi við lög félagsins er því boðað til aðalfundarins með svofelldri dagskrá:

1. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
2. Skýrsla stjórnar um störf og fjárhag félagsdeildarinnar.
3. Tillaga um sameiningu félagsins við aðrar félagsdeildir Norræna félagsins á Norðurlandi:
" Aðalfundur NF á Akureyri samþykkir að taka þátt í fyrirhugaðri sameiningu félagsdeilda Norræna félagsins á Norðurlandi og leggja félagatal og eignir félagsdeildarinnar til hinnar nýju, sameinuðu félagsdeildar."
4. Tillaga um frestun kosninga til embætta félagsins og boðun aukaaðalfundar:
"Aðalfundur samþykkir að boða til aukaaðalfundar síðar á árinu þar sem tekin verði endanleg afstaða til sameiningar félagsdeildarinnar við aðrar félagsdeildir Norræna félagsin á Norðurlandi og felur formanni NF að undirbúa tillögur að nýrri stjórn og nýju nafni hins sameinaða félags, í samráði við formenn annarra félagsdeilda sem taka munu þátt í sameiningunni. Kjöri formanns, stjórnar og skoðunarmanna félagsdeildarinnar er vísað til komandi aukaaðalfundar, eða hinnar nýju sameinuðu félagsdeildar."
5. Önnur mál.

Allt félagsfólk NF á Akureyri er velkomið til fundarins og hægt er að skrá sig í félagið á heimasíðu Norræna félagsins www.norden.is

Read More
Ásdís Hannesdóttir Ásdís Hannesdóttir

Málstofa

Hvað getum við gert til að skapa áhuga hjá ungu fólki á Norðurlöndunum og hvernig hjálpum við þeim að nálgast áhugavert efni þar um. Norræn málstofa um tungumál, tengsl og tækifæri í skólastarfi verður á vegum Norræna félagsins og Norden i skolan í Norræna húsinu, miðvikudaginn 21. maí kl 14.00. Öll velkomin og aðgangur ókeypis.

Norræn nálgun í námi barna og ungmenna

Norden i skolen og Norræna félagið standa fyrir norrænni málstofu um tungumál, tengsl og tækifæri í skólastarfi í Norræna húsinu miðvikudaginn 21. maí 2025, kl. 14:00-16:30.. Viðburðurinn er haldinn með stuðningu frá A.P. Møller sjóðnum.

Viðburðurinn er ætlaður öllum þeim sem hafa áhuga á norrænum málum og málefnum, bæði innan og utan skólakerfisins. Málstofan er ókeypis og opin öllum, en hún er sérstaklega ætluð þeim sem kenna á unglingastigi og í framhaldsskólum.
Skráning fer fram hér: https://forms.office.com/e/1THYTkkNhL

Viðburðurinn fer fram á norrænu tungumálunum íslensku, dönsku og norsku. Þátttakendur nota það tungumál sem þeim finnst eðlilegast að tala.
 
Dagskrá:

14.00-14.15 - Opnun og umfjöllun um Norræna félagið
Ásdís Eva Hannesdóttir framkvæmdastjóri Norræna félagsins á Íslandi (IS)
Fjallað verður um mikilvægi norræns samstarfs og þátttöku barna og ungmenna í því samhengi, farið verður yfir vinnu og þátttöku Norræna félagsins í þeim verkefnum sem félagið hefur tekið þátt í á sviði tungumála og tengsla ungmenna á Norðurlöndunum.

14.15-14.30 - Starfsemi Samtaka Norrænu félaganna
Morten Fabricius skrifstofustjóri Samtaka Norrænu félagana (DK)
Hann fer yfir vinnu samtakanna undanfarið og pólitískar áherslur í tengslum við ungt fólk.

14.30-15.00 - Norden i skolen og möguleikar í kennslu
Elva Dögg Sigurðardóttir (IS) og Ingrid Lorange (NO)
Fjallað verður um það hvernig hægt er að nýta heimasíðu Norden í skolen til að auka skilning nemenda á norrænum tungumálum og þekkingu þeirra á nágrannalöndunum. Farið verður yfir ókeypis kennsluefni sem auðveldar vinnuna með norrænt sjónarhorn fyrir augum, ekki einungis í tungumálakennslu heldur einnig í sögu og samfélagsgreinum. Farið verður yfir möguleika þess að sækja um sem “vinabekkur” með bekk frá öðru norrænu landi og greint verður frá norræna skólaspjallinu.

15.00-15.15 Kaffihlé

15.15-16.00 - Virkjun tungumáls og reynsluheims barna og ungmenna
Kristín R. Vilhjálmsdóttir (IS)
Kristín R. Vilhjálmsdóttir er sjálfstætt starfandi ráðgjafi á Norðurlöndunum og hugmyndasmiður verkefnisins Menningarmót. Um þessar mundir leiðir hún m.a. Nordplusverkefnið SPIN (Sprogvenner i Norden - kunsten at forstå hinanden). Kristín mun fjalla um það hvernig við getum opnað gluggann að samfélaginu, og um leið að heiminum sem umkringir okkur, með því að virkja reynsluheim og tungumál barna og ungmenna. Erindið fjallar meðal annars um skapandi leiðir til að virkja fjölbreytta menningu og tungumál í skólastarfi, stuðla að þátttöku og efla inngildingu og vinna með sjálfsmynd. Sem dæmi kynnir hún norræna verkefnið SPIN og kennsluaðferðina Menningarmót.

 16.00-16.15 - Kostir þess að vinna með norræn tungumál í skólastarfinu
Rasmus Steenberg Christiansen (DK)
Rasmus ræðir kosti þess að vinna með norræn tungumál frá sjónarhorni kennara og fjallar um þær leiðir sem hann hefur farið í því að virkja sína nemendur.

16:15-16:30 - Tækifæri til að spjalla og spyrja spurninga

Skráning fer fram hér: https://forms.office.com/e/1THYTkkNhL 
Viðburðinum verður einnig streymt. https://vimeo.com/event/5145361

Read More
Ásdís Hannesdóttir Ásdís Hannesdóttir

Ársfundir deilda Norræna félagsins - Reykjanesbær - Borgarnes - Höfuðborgardeildar

Deildir Norræna félagsins í Reykjanesbæ, Borgarnesi og á Höfuðborgarsvæðinu eru með ársfundi sína á næstunni. Í Reykjanesbæ er hann 13. maí, Borgarnesi 22. maí og á Höfuðborgarsvæðinu 27. maí. Helsta verkefni fundanna í Reykjarnesbæ og Borgarnesi er að afgreiða tillögu um sameiningu deildarinnar við aðrar félagsdeildir Norræna félagsins á sama svæði til að styrkja starfssemi deildanna. Aðalfundur Norræna félagsins á Höfuðborgarsvæðinu er hefðbundinn aðalfundur með hefðbundinni dagskrá.

Norræna félagið á Höfuðborgarsvæðinu (Höfðborgardeild Norræna félagsins) boðar til aðalfundar 27. maí 2025, kl. 16.30.

Staðsetninga fundarins er við norræna vinalundinn Kópavogsmegin í Fossvogsdal við
Álfatún og er á móts við Fossvogsskóla. Í framhaldi af aðalfundinum munum við sinna árlegu viðhaldi vinalundarins en hann var settur á fót í tilefni af 100 ára afmæli Norræna félagsins árið 2022.
Dagskrá. Hefðbundin aðalfundarstörf.

Eftir að formlegum fundi er lokið er bígert að snyrta og laga í lundinum.

Allt félagsfólk NF á Höfuðborgarsvæðinu er velkomið til fundarins og hægt er að skrá sig í félagið á heimasíðu Norræna félagsins www.norden.is

Aðalfundur Norræna félagsins í Reykjanesbæ verður haldinn 13. maí

Aðalfundur Norræna félagsins í Reykjanesbæ verður haldinn þriðjudaginn 13. maí næstkomandi, í safnaðarheimili Njarðvíkurkirkju, við Njarðvíkurbraut, Innri-Njarðvík. Aðalfundurinn hefst kl. 17:00
Helsta verkefni fundarins er að afgreiða tillögu um sameingu félagsins við aðrar félagsdeildir Norræna félagsins á Suðurnesjum (í Vogum og Suðurnesjabæ) undir merkjum Norræna félagsins á Suðurnesjum.

sjá nánar hér

Allt félagsfólk NF í Reykjanesbæ er velkomið til fundarins og hægt er að skrá sig í félagið á heimasíðu Norræna félagsins www.norden.is

Aðalfundur Norræna félagsins í Borgarnesi verður haldinn 22. maí næstkomandi að Bjarnarbraut 8 í Borgarnesi. Aðalfundurinn hefst kl.19.30

Helsta verkefni fundarins er að afgreiða tillögu um sameingu félagsins við aðrar félagsdeildir Norræna félagsins á Vesturlandi (í Stykkishólmi og á Akranesi) undir merkjum Norræna félagsins á Vesturlandi.

sjá nánar hér

Allt félagsfólk NF í Borgarnesi er velkomið til fundarins og hægt er að skrá sig í félagið á heimasíðu Norræna félagsins www.norden.is

Aðalfundur Norræna félagsins á Höfuðborgarsvæðinu verður haldinn 27. maí næstkomandi . Nánari upplýsingar koma síðar.

Read More
Ásdís Hannesdóttir Ásdís Hannesdóttir

FRÁ NORRÆNUM MIÐÖLDUM

Stiftelsen Barbro og Sune Örtendahls fond í Svíþjóð stendur fyrir málstofu um norræn miðaldaefni í samvinnu við Þjóðminjasafn Íslands og Kakalaskála í Skagafirði. Málstofan í Þjóðminjasafninu verður laugardaginn 5. apríl kl 13.00 í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins og í Kakalaskála í Skagfirði sunnudaginn 6. apríl kl 13.00. Við hvetjum félagsmenn Norræna félagsins til að mæta.

Stiftelsen Barbro og Sune Örtendahls fond í Svíþjóð stendur fyrir málstofu um norræn miðaldaefni í samvinnu við Þjóðminjasafn Íslands og Kakalaskála í Skagafirði

Laugardaginn 5. apríl í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins og sunnudaginn 6. apríl í Kakalaskála í Skagfirði og hefst klukkan 13 á báðum stöðum

Viðburðurinn er hluti af Sænsk íslenska viðburðarárinu

Read More
Ásdís Hannesdóttir Ásdís Hannesdóttir

Hvernig er hægt að viðhalda félagsstarfi í dreifðum byggðum

Hefurður áhuga á framtíð dreifbýlis og sjálfbærri samfélagsþróun? Þá er viðburður “Hela Sverige skal leva” eitthvað sem ekki er hægt að láta fram hjá sér fara. HSSL mun kynna starfsemi sína og miðla reynslu sinni í byggðamálum og samfélagsþróun. Samtökin vinna að því að viðhalda búsetu um allt Svíþjóð, einnig í afskekktustu svæðum landsins, með áherslu á fjarvinnu, sjálfbærni og menningarstarfsemi.

Dagana 24-27. mars munu fulltrúar sænsku samtakanna Hela Sverige skal leva (HSSL) dvelja hér á landi. Markmið heimsóknarinnar er að kynna starfsemi HSSL og miðla reynslu þeirra í byggðamálum og samfélagsþróun. Samtökin vinna að því að viðhalda búsetu um allt Svíþjóð, einnig í afskekktustu svæðum landsins, með áherslu á fjarvinnu, sjálfbærni og menningarstarfsemi.

Þriðjudaginn 25. mars kl 16.00 munu þau halda málþing hjá Norræna félaginu, Óðinsgötu 7 þar sem fjallað verður m.a. um:
• Byggðamál og íbúalýðræði
• Sjálfbærni og virka þátttöku íbúa í dreifðum byggðum
• Hvað hefur tekist vel í Svíþjóð – og hvar má bæta

Hægt er að sækja málþingið á staðnum en einnig tengjast í gegnum eftirfarandi link: https://teams.live.com/meet/9365012095942...

Við hvetjum alla áhugasama um framtíð dreifbýlis og sjálfbæra samfélagsþróunar til að taka þátt!

Viðburðurinn er hluti af Sænsk-íslenska viðburðarárinu og styrktur af Sænsk íslenska samstarfssjóðnum.

Read More
Norræna félagið Norræna félagið

Grænlendingar á krossgötum – Opinn fundur Norræna félagsins

Höfuðborgardeild Norræna félagsins býður til opins fundar mánudaginn 10. mars kl. 17:00 á skrifstofu Norræna félagsins við Óðinstorg í Reykjavík. Þar verður fjallað um stöðu mála í Grænlandi í aðdraganda þingkosninga sem fram fara á Grænlandi þann 11. mars.

Undanfarin ár hefur lítið farið fyrir umræðu um Grænland hér á landi, en það breyttist þegar Donald Trump, þáverandi forseti Bandaríkjanna, lýsti yfir áhuga á að kaupa Grænland vegna hernaðarlegrar og efnahagslegrar þýðingar landsins. Á sama tíma hefur sjálfsvitund grænlensku þjóðarinnar eflst og með henni vaxið vonir um algjört sjálfstæði frá Danmörku.

Kosningarnar 11. mars eru taldar sérstaklega áhugaverðar í þessu ljósi. Allir stjórnmálaflokkar á Grænlandi segjast stefna að sjálfstæði, en ágreiningur snýst um hversu hratt skuli stefna í átt að því marki og hvernig tryggja megi efnahagslega sjálfbærni landsins, sem enn nýtur mikils fjárhagslegs stuðnings frá Danmörku.

Á fundinum munu Bogi Ágústsson fréttamaður og Geir Oddson, fyrrverandi aðalræðismaður Íslands í Nuuk, ræða pólitíska stöðu Grænlands, lykilviðfangsefni kosningabaráttunnar og hvaða valkostir blasa við Grænlendingum í framtíðinni.

Undanfarin ár hafa komið upp nokkur erfið mál í samskiptum Grænlands og Danmerkur sem kastað hafa skugga á samskipti innan danska ríkjasambandsins. Á sama tíma eflist sjálfsvitund grænlensku þjóðarinnar og með henni von um algjört sjálfstæði frá Danmörku. Allir stjórnmálaflokkar segjast stefna að sjálfstæði Grænlands.

Það er í þessu ljósi sem kosningar til grænlenska þingsins, Inatsisartu, þann 11. mars nk. eru sérstaklega áhugaverðar. Íbúar Grænlands, sem eru um 56 þúsund, geta valið á milli frambjóðenda frá 7 framboðum, og venjulega ná fjórir flokkar sæti á þingi. Sögulega hafa tveir flokkar á vinstri væng stjórnmálanna ráðið málum á þingi landsins; flokkur núverandi formanns landsstjórnarinnar Muté B. Egede sem nefnist Inuit Ataqatigiit og krataflokkurinn Siumut. Spurning um aukið sjálfstæði frá Danmörku og framtíðartengsl við Bandaríkin er helsta átakamálið í kosningabaráttunni. Deilumálið er hversu hratt á að ganga fram á sjálfstæðisbrautinni og hvernig á að tryggja efnahag landsins sem í dag hvílir á stuðning frá danska ríkinu.

Málefni fundarins:

  • Helstu breytingar frá því að síðast var kosið til þings í Grænlandi

  • Hvaða stjórnmálaöfl/einstaklingar eru að takast á í kosningabaráttunni og hver er afstaða þeirra til sambandsins til Danmerkur og tengsla við Bandaríkin. Önnur átakamál s.s. sjávarútvegur, jarðefni, velferðarmál.

  • Helstu einkenni grænlensk samfélags og samanburður við Ísland og Færeyjar.

  • Breytingar á sjálfsvitund Grænlendinga og afstöðunni til Danmerkur og ríkissambandsins undanfarin ár

  • Efnahagslegar forsendur fyrir sjálfstæði

  • Hvernig koma framangreind atriði fram í þingkosningunum

  • Spurningar og umræður 

    Áætlað er að fundinum ljúki kl 18.00
    Öll velkomin meðan húsrúm leyfir

Read More
Ásdís Hannesdóttir Ásdís Hannesdóttir

Góugleði deilda Norræna félagsins á Höfuðborgarsvæðinu

Norræna félagið á Höfuðborgarsvæðinu fagnar því að vetur lætur undan og það styttist í vorkomu með Góugleði, laugardaginn 1. mars n.k. kl 18.00. Gleðin verður við völd, söngur, gamanmál og góður félagsskapur! Þetta er skemmtun sem engin má missa af! Fyrstir koma fyrstir fá

Góugleði Norrænu félaganna á höfuðborgarsvæðinu verður haldið í Fjósinu á Valssvæðinu á Hlíðarenda laugardaginn 1. mars 2025. Húsið opnar kl.17.30 og skemmtunin hefst kl.18.00. Matur byrjar síðan kl.19.00. Verð er 5.900 krónur fyrir félagsmenn og maka. 6.900 fyrir utanfélagsmenn. Söngur, gamanmál og góður félagsskapur! Þetta er skemmtun sem engin má missa af! En vinsamlegast skráið ykkur á þessum hlekk fyrir fimmtudaginn 27. febrúar https://forms.office.com/r/Te7Fgb6nFw

Read More
Ásdís Hannesdóttir Ásdís Hannesdóttir

Tónleikar Björns Thoroddsen og Janne Schaffer í Salnum Kópavogi, föstudaginn 21. febrúar

Jan Erik Tage „Janne“ Schaffer (fæddur 24. september 1945) er sænskur lagahöfundur og gítarleikari. Hann er þekktastur fyrir störf sín sem session-gítarleikari hjá ABBA en hann hefur einnig hljóðritað með listamönnum eins og Bob Marley, Johnny Nash, Art Farmer og Tony Williams. Hann lék einnig á Montreux Jazz Festival 1977.

Norræna félagið mælir með tónleikum Björns Thoroddsen og hinum sænska Janne Schaffer sem lék með ABBA nær allan þeirra starfsferil. Tónleikarnir verða í Salnum Kópavogi föstudaginn 21. febrúar n.k.

Gitarleikararnir Björn Thoroddsen og Janne Schaffer leika á tónleikum í Salnum í Kópavogi föstudaginn 21.febrúar 2025 og með þeim verða Jón Rafnsson, bassaleikari, Sigfús Örn Óttarsson, trommuleikari og sænski píanóleikarinn og söngvarinn Jonas Gideon, en hann hefur starfað mikið með Janne Schaffer undanfarin ár og nú sem stendur eru þeir félagar á tónleikaferðalagi um Svíþjóð og leika þar þá tónlist sem Janne hefur sýslað með síðastliðin 50 ár. Sú tónleikaröð nefnist „My Music Story“.

Dagskrá tónleikanna í Salnum mun samanstanda af tónlist eftir Janne Schaffer, - fusion-kennd gítartónlist sem einnig hefur yfir sér skemmtilegan sænskan þjóðlegan blæ og eflaust fær eitthvað ABBA-lag að fljóta með, en hann lék með ABBA nær allan þeirra starfsferil. Tónlist Björns Thoroddsen fær sinn sess, bæði hans frumsamda tónlist og íslensk þjóðlög, en Björn er stofnandi tríósins Guitar Islancio, sem er þekkt fyrir sínar útsetningar á íslenskum þjóðlögum og eitthvað af þeim lögum verða væntanlega á dagskránni í nýjum útsetningum þeirra félaga.

Sjá nánar: https://salurinn.kopavogur.is/.../bjorn-thoroddsen-og.../

Read More
Ásdís Hannesdóttir Ásdís Hannesdóttir

Hvers vegna kennum við dönsku? Þess vegna kennum við dönsku!

Sorry, I don´t speak Danish, var ráðstefna sem Norræna félagið hélt í nóvember 2023. Staða dönskunnar er enn til umfjöllunar og nú er spjótunum beint að þeim möguleikum sem dönskukunnátta opnar.

Málþingið er öllum opið og aðgangur ókeypis. Við hvetum áhugamenn um norræna samvinnu til að mæta og taka þátt í umræðum.

Föstudagin 31. janúar 2025, klukkan 15:00 stendur Dansk-íslenska félagið fyrir málþingi um dönskukennslu. Málþingið verður í Auðarsal í Veröld og er öllum opið og aðgangur ókeypis.



Dansk-íslenska félagið er hópur fólks sem hefur áhuga á samskiptum Íslendinga og Dana, ekki síst á félagslegum og menningarlegum grunni . Systurfélagið í Danmörku er Dansk-Islandsk Samfund. Bæði félögin eru liðlega 100 ára. Félagið gefur árlega út ritið "Rask og Repp" Tíðindi frá Dansk-íslenska félaginu á Íslandi. Ritið er kennt við fræðimennina Rasmus Christian Rask (1787-1832) og Þórleif Repp (1794-1857).



Félaginu er fátt óviðkomandi varðandi þessi samskipti. Eitt af því er danska í skólakerfinu - og þar á meðal önnur skandinavísk tungumál. Dansk-íslenska félagið er hreint ekki eitt um að vilja stuðla að því að börn nútíma og framtíðar geti án vandkvæða nýtt sér þá möguleika sem þeim standa til boða á Norðurlöndunum. 



Bakhjarlar málþingsins eru m.a. Félag dönskukennara á Íslandi, Norræna félagið, Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur, Hugvísindasvið Háskóla Íslands og Stúdentafélag Reykjavíkur.

Read More